Sjónaukinn 2021
Árleg ráðstefna Heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri verður rafræn og fer fram 20.-21. Maí 2021. Þema ráðstefnunnar að þessu sinni er: Notendamiðuð velferðarþjónusta: fortíð, nútíð, framtíð.
Nánari upplýsingar og skráning
Kall eftir ágripum
Opnað hefur verið fyrir skráningu á Sjónaukann. Áhugasömum einstaklingum og hópum er boðið að senda inn 250-300 orða ágrip um rannsóknir og verkefni sem tengjast þema ráðstefnunnar. Óskað er eftir ágripum fyrir erindi eða örkynningar á veggspjöldum.
Ágrip skal skila inn á íslensku eða ensku fyrir 14. mars næstkomandi. Flutningur erinda og kynning á veggspjöldum má vera á íslensku eða ensku. Ágripið þarf að innihalda stutta lýsingu á markmiði rannsóknar/verkefnis, aðferðum og helstu niðurstöðum eða lærdómi.