Námskeiðið Streita, seigla, samskipti og meðvirkni - hjúkrun í lífi og starfi
Skráning er hafin á námskeiðið Streita, seigla, samskipti og meðvirkni - hjúkrun í lífi og starfi verður haldið á Hótel Grímsborgum dagana 27.-30. september 2022.
Námskeiðið er sérsniðið fyrir hjúkrunarfræðinga í samvinnu við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga.Hægt er að sækja um endurgreiðslu í starfsmenntunarsjóð Fíh.
Áhersla er m.a. lögð á seiglu og streitu, svefn og líkamsklukkuna, álag og ósjálfráða taugakerfið, tengsl, meðvirkni - einkenni og áhrif á sambönd og samskipti. Athyglinni er beint að nýrri þekkingu og úrræðum, áhrifum og afleiðingum streitu og meðvirkni á samskipti í lífi og starfi. Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga, hópavinnu, hugleiðslu, djúpslökunar, hvíldar og viðveru í náttúrunni..
Innifalið: Námskeið, matur og gisting í 3 nætur í einstaklingsherbergi, heitir pottar við hvert hús, nærandi og fallegt umhverfi.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda.
Verð: kr. 194.000
Nánari upplýsingar: edda@hjukrun.is
Dagskráin hefst kl. 11.00 þriðjud. 27. sept. og lýkur kl. 14.00 föstud. 30. sept. Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga og hópavinnu. Boðið er upp á gómsætan mat, gönguferðir út í náttúruna, núvitundaræfingar, jóga nidra djúpslökun og góða hvíld.
Kennarar
Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir. Hún hefur sinnt kennslu, heilsueflingu og forvörnum frá því í Læknadeild HÍ. Kristín kennir við Læknadeild HÍ, í Opna háskólanum í HR og sinnir fyrirlestrahaldi og fræðslu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Kristín er formaður Fræðslustofnunar LÍ.
Gyða Dröfn Tryggvadóttir, lýðheilsufræðingur EMPH og meðferðaraðili í áfalla-og uppeldisfræðum Piu Mellody. Gyða kennir í Opna háskólanum í HR og sinnir fyrirlestrahaldi og fræðslu.og stendur einnig fyrir heilsustengdum málþingum og námskeiðum. Hún hefur iðkað og kennt Zen hugleiðslu í 20 ár.