Hjartaþing í Reykjavík
Fagdeild Hjartahjúkrunarfræðinga vekur athygli á Nordic-Baltic Congress of Cardiology (NBCC) sem haldið verður í Hörpu dagana 8. til 10. júní 2023.
Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir heilbrigðisstéttir sem sinna sjúklingum með hjartasjúkdóma og aðra lífstílssjúkdóma.
Hjúkrunardagskráin samanstendur af áhugaverðum erindum um mat á árangri þjónustu, brjóstverkjamóttökur, áhættuþætti, forvarnir, nýja nálgun, rafræna þjónustu o.fl.
Auk íslenskra fyrirlesara eigum við von á gestafyrirlesurum frá Norðurlöndunum, Bretlandi, Írlandi og Ástralíu.
Lykilfyrirlesarar
Dr. Jeroen Hendriks RN, MSc, PhD sem er vel þekktur fyrir rannsóknir sínar og þróun hjúkrunarþjónustu og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir framlag sitt til hjartahjúkrunar.
Shirley Ingram, RANP, RGN, MSc, hefur verið brautryðjandi í þróun brjóstverkjamóttaka í Dublin og hlaut hún nýlega viðurkenningu fyrir forystu sína í þróun brjóstverkjamóttöku utan spítala.
Fagdeild hjartahjúkrunarfræðing hvetur hjúkrunarfræðinga, hjúkrunarrannsakendur og nemendur til að senda inn ágrip en lokafrestur til að senda inn ágrip er 1. apríl 2023.
Snemmskráning er til 23. mars og hvetjum við alla hjúkrunarfræðinga og aðra þá sem sinna sjúklingum með hjartasjúkdóma til að taka þátt í þessari spennandi ráðstefnu.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna eru á www.nbcc2023.is