Hjukrun.is-print-version

Seigla, streita, samskipti, meðvirkni - 25.-28. apríl

20. febrúar 2023

Skráning er hafin á námskeiðið Streita, seigla, samskipti og meðvirkni sem verður haldið á Hótel Grímsborgum dagana 25.-28. apríl 2023. Námskeiðin eru vinsæl og þetta er mikilvægt efni sem á erindi dag, í umhverfi sem tekur sífellt hraðari breytingum. 

Námskeiðið er í samvinnu við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og hægt er að sækja um endurgreiðslu í starfsmenntunarsjóð Fíh. 

Áhersla er m.a. lögð á seiglu og streitu, svefn og líkamsklukkuna, álag og ósjálfráða taugakerfið, tengsl, meðvirkni - einkenni og áhrif á sambönd og samskipti. Athyglinni er beint að nýrri þekkingu, leiðum og úrræðum, áhrifum streitu og meðvirkni á líðan og heilsu og samskipti í lífi og starfi. Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga, hópavinnu, hugleiðslu, djúpslökunar, hvíldar og viðveru í náttúrunni.

Innifalið: Námskeið, matur og gisting í 3 nætur í einstaklingsherbergi, heitir pottar við hvert hús, nærandi og fallegt umhverfi. 

Takmarkaður fjöldi þátttakenda. 

Verð: kr. 198.000

Nánari upplýsingar og skráning: heillheimur@heillheimur.is

Rafræn skráning: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfXI7EGJyq0kdnNee950ZseSdZx-5SradEwlgdZwF75LuEFEQ/viewform

 

Dagskráin hefst kl. 10.30 þriðjudaginn 25. apríl og lýkur kl. 14.00 föstudaginn 28. apríl. 

Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga og hópavinnu. Boðið er upp á gómsætan mat, gönguferðir út í náttúruna, núvitundaræfingar, jóga nidra djúpslökun og góða hvíld.

 

Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir hefur sinnt kennslu, heilsueflingu og forvörnum frá því í Læknadeild HÍ. Kristín kennir við Læknadeild HÍ,  í Opna háskólanum í HR og sinnir fyrirlestrahaldi og fræðslu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Kristín er formaður Fræðslustofnunar LÍ.

Gyða Dröfn Tryggvadóttir, lýðheilsufræðingur EMPH og meðferðaraðili í áfalla-og uppeldisfræðum Piu Mellody. Gyða kennir í Opna háskólanum í HR og sinnir fyrirlestrahaldi og fræðslu.og stendur einnig fyrir heilsustengdum málþingum og námskeiðum. Hún hefur iðkað og kennt Zen hugleiðslu í 23 ár.

Til bakaAðrir viðburðir

Þetta vefsvæði notar vafrakökur.

Lesa skilmála