Aðalfundur 2022
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn fimmtudaginn 12. maí kl. 17:00-20:45 á Hilton Reykjavík Nordica og á Teams.
Allir félagsmenn hafa rétt til setu á aðalfundi en félagsmenn með fulla aðild, fagaðild og lífeyrisaðild sem hafa skráð sig til þátttöku á fundinn fyrir lok dags 5. maí næstkomandi og sitja hann hafa atkvæðisrétt á fundinum. Aðrir fundarmenn hafa þar ekki atkvæðisrétt.
Kosningarnar fara fram rafrænt í fyrsta sinn, kjörseðillinn verður aðgengilegur í gegnum snjallsíma, forskráning á fundinn er forsenda þátttöku í kosningum. Þeir sem hafa skráð sig á fundinn fá sendan hlekk mun leiða inn á skráningarsíðu þar sem þáttakendur verða auðkenndir með rafrænum skilríkjum. Að því loknu opnast upplýsingasíðu fundarins. Þar er að finna fundargögn og hlekk inn á fjarfundinn þar sem hægt er að fylgjast með og taka þátt í fundinum. Loks munu kjörseðlar birtast þar þegar að kosningum kemur á fundinum.
Hægt er að taka þátt í fundinum í gegnum Teams, haka þarf við Teams við skráningu.
Dagskrá aðalfundar Fíh 2022
Fimmtudaginn 12. maí 2022 kl. 17:00-20:45, Hilton Reykjavík Nordica
17:00 Setning aðalfundar
Guðbjörg Pálsdóttir formaður
17:10 Kynning á rafrænu kosningakerfi
Þórður Höskuldsson frá Outcome
17:25 Kosning fundarstjóra og ritara
17:30 Skýrsla um starfsemi félagsins á liðnu starfsári
Guðbjörg Pálsdóttir formaður
17:40 Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
Hafdís Böðvarsdóttir fjármálastjóri og Gísli Nils Einarsson gjaldkeri
Ársreikningur 2021 og skýringar
Ársreikningur Rannsókna- og vísindasjóðs hjúkrunarfræðinga
Ársreikningur Minningarsjóðs Kristínar Thoroddsen
Ársreikningur Minningarsjóðs Hans Adolfs Hjartarsonar
18:00 Ákvörðun um félagsgjöld
Gísli Níls Einarsson gjaldkeri
18:05 Afgreiðsla markmiða og starfsáætlunar næsta starfsárs
Ásdís M. Finnbogadóttir varamaður í stjórn
18:15 Ákvörðun um laun stjórnar, sjóða og nefnda
Gísli Níls Einarsson gjaldkeri
18:20 Kjör í stjórn, nefndir og ráð
Ólöf Árnadóttir formaður kjörnefndar
18:45 Léttar veitingar
19:20 Önnur mál
Stofnun nýrra deilda
Ályktanir
Halla Eiríksdóttir varaformaður
19:50 Niðurstöður kosninga
Ólöf Árnadóttir formaður kjörnefndar
20:00 Afhending hvatningarstyrkja
Guðbjörg Pálsdóttir formaður
20:15 Afhending rannsóknarstyrkja B-hluta Vísindasjóðs
Marianne Klinke formaður stjórnar Vísindasjóðs
20:40 Aðalfundi slitið
Guðbjörg Pálsdóttir formaður