- Dagsetning
Föstudagurinn 11. október
- Tími
kl. 9-12
- Staðsetning
Hótel Reykjavík Natura
- Miðaverð
7.500 - 14.900 kr.
Í tilefni af 10 ára afmæli Tröppu blásum við til afmælisráðstefnu á Hótel Reykjavík Natura þann 11. október kl. 9 - 12. . Trappa þjónustar börn með ýmis konar vanda, sérstaklega málþroskavanda. Þema ráðstefnunnar er málþroski og tengsl. Miðaverð: 7.500 - 14.900 kr.
Dagskrá
09:00 Setning ráðstefnu
09:20 Sæunn Kjartansdóttir, hjúkrunarfræðingur og sjálfstætt starfandi sálgreinir - Hvað er svona merkilegt við tengsl? Í erindinu verður fjallað um tengsl ungbarna og foreldra; Hvers vegna þau eru mikilvæg, hvað hefur áhrif á þau, hvernig birtast hættumerki og hvenær þarf að grípa inn í.
09:50 Ásgerður Arna Sófusdóttir - teymisstýra og hjúkrunarfræðingur í Fjölskylduteymi 0-5 ára Geðheilsumiðstöð barna:Tengslamyndun og samvera: hvernig eflum við tengslamyndun og samskipti við börnin okkar fyrstu árin?
10:20 Léttar veitingar
10:50 Tinna Sigurðardóttir, talmeinafræðingur hjá Tröppu: Hvernig tvinnast málþroski og málþroskafrávik saman við tengslamyndun?
11:20 Halldís Ólafsdóttir talmeinafræðingur hjá Tröppu: Hver eru áhrif skjátíma á málþroska?