Ráðstefnan Hjúkrun 2023 verður haldin dagana 28. og 29. september 2023 á Hilton Reykjavík Nordica.
Á vísindaráðstefnunni verður boðið upp á fyrirlestra um niðurstöður rannsókna, þróunar- og gæðaverkefna, veggspjaldakynningar og málstofur.
Tekið verður á móti ágripum frá 1. mars til 15. maí á vefsíðu ráðstefnunnar radstefna.hjukrun.is
Allar heilbrigðisstéttir eru velkomnar á ráðstefnuna.
Ráðstefnan er á vegum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í samvinnu við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Landspítala og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.