- Dagsetning
9. október 2023
- Tími
13:00 - 16:00
- Staðsetning
Salur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22
- Verð
kr. 9.000
- Umsjón
Dr. Sigrún Sigurðardóttir er prófessor við Háskólann á Akureyri. Hún er með doktorspróf í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands. Sigrún hefur haldið fjölda fyrirlestra um áföll og ofbeldi, afleiðingar þess og úrræði, með áherslu á áfallamiðaða nálgun.
Sálræn áföll, ofbeldi og áfallamiðuð nálgun er námskeið þar sem fjallað er um skilgreiningar, einkenni og afleiðingar sálrænna áfalla og ofbeldis. Einnig er fjallað um forvarnir, úrræði og áfallamiðaða nálgun. Afleiðingar sem geta komið fram geta verið líkamlegar, sálrænar og félagslegar afleiðingar.
Á námskeiðinu er áhersla á að efla hjúkrunarfræðina til að skima fyrir áfalla- og ofbeldissögu skjólstæðina, eins og með ACE listanum (Adverse Childhood Experience). ACE listinn hefur m.a. verið lagður fyrir alla skjólstæðina Reykjalundar frá áramótum, einnig hefur meðferðarheimilið Krýsuvík nýlega tekið listann í notkun.
Einnig er áhersla lögð á að hjúkrunarfræðingar viti hvernig á að bregðast við ef skjólstæðingur segir frá áföllum eða ofbeldi, hvernig skal vinna með það og hvert sé hægt að vísa fólki áfram, í viðeigandi úrræði eða meðferð.
Áhersla er lögð á mikilvægi hlutverka hjúkrunarfræðinga í áfallamiðaðri nálgun, eins og í ung- og smábarnavernd og skólahjúkrun þar sem þeir geta gegnt lykilhlutverki í förvörnum og viðbrögðum við áföllum og ofbeldi. Einnig er fjallað um hlutverk hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu, á spítölum, í endurhæfingu og úti í samfélaginu.