Fullbókað er á námskeiðið
Heildræn nálgun á líðan og heilsu í lífi og starfi.
Námskeiðið er haldið í samvinnu við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og hægt er að sækja um endurgreiðslu í starfsmenntunarsjóð.
Áhersla er lögð á seiglu og streitu, svefn og líkamsklukkuna, álag og ósjálfráða taugakerfið, tengsl, meðvirkni - einkenni og áhrif á líf, líðan, sambönd og samskipti
- Dagsetning
24.-27. október 2023
- Staðsetning
Hótel Sigló Siglufirði
- Innifalið
Námskeið, matur og gisting í 3 nætur, í nærandi og fallegu umhverfi. Verð kr. 216.000 (2ja manna herb.) Möguleiki á einstaklingsherbergi. Takmarkaður fjöldi þátttakenda.
- Nánari upplýsingar
heillheimur@heillheimur.is, aheildinalitid@gmail.com
Dagskráin hefst kl. 13:00 þriðjudaginn 24. október og lýkur kl. 14:00 föstudaginn 27. október.
Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga og hópavinnu.
Boðið er upp á gómsætan mat, gönguferðir út í náttúruna, núvitundaræfingar, djúpslökun og góða hvíld.

Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir. Hún hefur sinnt kennslu, heilsueflingu og forvörnum frá því í Læknadeild HÍ. Kristín kennir við Læknadeild HÍ og er í Fræðslustofnun LÍ. Hún sinnir fyrirlestrahaldi og fræðslu fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Gyða Dröfn Tryggvadóttir, lýðheilsufræðingur EMPH og meðferðaraðili í áfalla-og uppeldisfræðum Piu Mellody (PIT). Gyða sinnir meðferð á eigin stofu og sinnir fyrirlestrahaldi og fræðslu. Hún stendur einnig fyrir heilsustengdum málþingum og námskeiðum. Gyða hefur iðkað og kennt Zen hugleiðslu í 20 ár