Fara á efnissvæði
Námskeið

Seigla, streita, samskipti, meðvirkni 24. - 27. september

Námskeið á Hótel Grímsborgum dagana 24. - 27. september 2024.

Skráning er hafin á námskeiðið Streita, seigla, samskipti og meðvirkni sem verður haldið á Hótel Grímsborgum dagana 24.- 27. september 2024. Námskeiðin eru vinsæl og þetta er mkilvægt efni sem á erindi dag, í umhverfi sem tekur sífellt hraðari breytingum.

Námskeiðið er í samvinnu við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og hægt er að sækja um endurgreiðslu í starfsmenntunarsjóð Fíh.

Áhersla er lögð á seiglu og streitu, svefn og líkamsklukkuna, álag og ósjálfráða taugakerfið, tengsl, meðvirkni - einkenni og áhrif á sambönd og samskipti. Athyglinni er beint að nýrri þekkingu, leiðum og úrræðum, áhrifum streitu og meðvirkni á líðan og heilsu og saamskipti í lífi og starfi. Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga, hópavinnu, hugleiðslu, djúpslökunar, hvíldar og viðveru í náttúrunni.

Dagsetning

24. - 27. september 2024.

Staðsetning

Hótel Grímsborgir, Grímsnesi

Innifalið

Námskeið, matur og gisting í 3 nætur í tveggja manna herbergi í nærandi og fallegu umhverfi. Verð kr. 206.000 (2ja manna herb.) Möguleiki á einstaklingsherbergi. Takmarkaður fjöldi þátttakenda.

Nánari upplýsingar

heillheimur@heillheimur.is

Dagskráin hefst kl. 11.00 þriðjudaginn 24. sept. og lýkur kl. 14.00 föstudaginn 27. sept.

Námskeiðið er í formi fyrirlestra, æfinga og hópavinnu.

Boðið er upp á gómsætan mat, gönguferðir út í náttúruna, núvitundaræfingar, djúpslökun og góða hvíld.

Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir hefur sinnt kennslu, heilsueflingu og forvörnum frá því í Læknadeild HÍ. Kristín kennir við Læknadeild HÍ og er í Fræðslustofnun LÍ. Hún sinnir fyrirlestrahaldi og fræðslu fyrir fyrirtæki og stofnanir.

Gyða Dröfn Tryggvadóttir, lýðheilsufræðingur EMPH og meðferðaraðili í áfalla-og uppeldisfræðum Piu Mellody. Gyða rekur eigin stofu og sinnir auk þess fyrirlestrahaldi og fræðslu. Hún stendur einnig fyrir heilsustengdum málþingum og námskeiðum. Hún hefur iðkað og kennt Zen hugleiðslu í 23 ár.