Fréttsafn eftir árum//
Samningur um sérhæfða heimahjúkrun framlengdur
Samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um greiðslur til hjúkrunarfræðinga fyrir hjúkrun í heimahúsum vegna alvarlegra og langvinnra sjúkdóma og slysa, frá 7. febrúar 2006 með síðari breytingum, hefur verið framlengdur til 28. febrúar 2009.
Samningur vegna fæðinga og umönnunar sængurkvenna í heimahúsum framlengdur
Samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um greiðslur til hjúkrunarfræðinga vegna fæðinga og umönnunar sængurkvenna í heimahúsum, frá 8. júní 2006 með síðari breytingum, hefur verið framlengdur til 28. febrúar 2009.
Minningarsjóður Bjargar Magnúsdóttur og Magnúsar Jónassonar stofnaður
Í dag var stofnaður nýr styrktarsjóður við Háskóla Íslands, sem veitir styrki til nemenda í framhaldsnámi í ljósmóður- og hjúkrunarfræðum. Stofnframlagið er 25 milljónir króna sem er gjöf frá Soffíu Þuríði Magnúsdóttur sem arfleiddi Háskóla Íslands að meginhluta eigna sinna
Skrifstofa Fíh er lokuð vegna jóla- og "sumarleyfa" starfsfólks
Skrifstofa Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður lokuð frá 23. desember til 5. janúar vegna jóla- og "sumarleyfa" starfsfólks. Með brýn erindi er hægt að hafa samband við Steinunni, fulltrúa í síma 861-2956 eða Elsu, formann í síma 861-2892 eða á elsa@hjukrun.is
Söfnunin "Á allra vörum" hlaut jólakortastyrk Fíh 2008
Félagið hefur um árabil styrkt ýmiskonar líknarstarfsemi í stað þess að senda út jólakort. Það er mat félagsins að fé því sem annars hefur verið varið til kaupa og útsendingar jólakorta, sé betur varið með framlagi til góðra mála.
Ályktun frá fagdeild geðhjúkrunarfræðinga
Reynslan sýnir að samfélagslegt ástand eins og nú er á Íslandi reynir mjög á andlega heilsu landsmanna, bæði þeirra sem eru veikir fyrir, sem og margra sem aldrei hafa kennt sér meins. Breyttar þjóðfélagsaðstæður, kaupmáttarrýrnun, eigna- og atvinnumissir eru miklir streituvaldar og hafa áhrif á heilsufar fólks ekki síst geðheilbrigði.
Kjarasamningur við Launanefnd sveitarfélaga undirritaður
Í gærkvöldi undirritaði samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga samkomulag um breytingu og framlengingu á kjarasamningi félagsins við Launanefnd sveitarfélaga.
Fyrirhugaðar eru breytingar á komugjöldum og/eða upptaka fæðisgjalda á heilbrigðisstofnunum.
"Ég skil þetta þannig að sjúklingar gætu þurft að inna af hendi einhverja greiðslu fyrir innlagnir, eins og til dæmis fæðisgjald. Nú greiðir fólk eingöngu gjald fyrir göngudeildar- og dagdeildarþjónustu,"segir Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítalans í viðtali við Morgunblaðið.
Undirbúningur fyrir útboð á hönnun nýs háskólasjúkrahúss er á lokastigi. Verkefnismálíð íslenska
Undirbúningur fyrir útboð á hönnun nýs háskólasjúkrahúss er á lokastigi. Verkið verður boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Samskipti við íslenskt heilbrigðisstarfsfólk verði eftirleiðis mikil og því eðlilegt að notast sé við íslensku í samskiptum
Ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga til stjórnvalda:
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hvetur stjórnvöld til að standa sérstakan vörð um og vernda núverandi heilbrigðiskerfi við þær samfélagsaðstæður sem þjóðin tekst á við um þessar mundir.
Skipun í stjórn Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 2/1997 skipar Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga tvo af fjórum fulltrúum í stjórn Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga. Skipunartími stjórnar LH er þrjú ár. Stjórn Fíh leitar nú eftir hjúkrunarfræðingum sem áhuga hafa á þessari stjórnarsetu f.h. hjúkrunarfræðinga.
Hugmyndir um hagræðingu heilbrigðisstofnanna
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra kynnti hugmyndir sínar um stóraukið samstarf á sviði útboða og sameiginlegra innkaupa heilbrigðisstofnana á fundi ríkisstjórnar í morgun. Fram kemur í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu að ráðherra hafi komið á fót vinnuhópi fyrir stuttu sem fékk það hlutverk að setja fram tillögur og kanna ma. möguleika á öflugra samstarfi sjúkrahúsa við útboð, innkaup og pökkun lyfja
Sýndarsjúklingur gengur til liðs við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands bættist á dögunum góður liðsauki þegar deildin eignaðist sýndarsjúkling. Tilkoma þessa tölvustýrða hermis er gríðarleg bylting í hjúkrunarfræðikennslu hér á landi.
FRESTUN Á FUNDI BHM Háskólamenn og samfélagið - hugmyndir til framtíðar
BHM hefur af óviðráðanlegum ástæðum frestað fundinum: Háskólamenn og samfélagið - hugmyndir til framtíðar - starfsdagur Mánudaginn 1. desember
Ályktun stjórnar Fíh um nýja námsleið í hjúkrunarfræði
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) styður samþykkt deildarfundar hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands frá 21. október sl. um að hefja í janúar 2009, námsleið til BS prófs í hjúkrunarfræði, fyrir fólk með annað háskólapróf.
Flutningur heimahjúkrunar til velferðarsviðs Reykjavíkurborgar
Heilbrigðisráðherra ásamt fleirum fundar með hjúkrunarfræðingum um flutning heimahjúkrunar til velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.
Ályktun stjórnar BHM 25. nóvember 2008
Stjórn Bandalags háskólamanna hvetur stjórnvöld til að standa vörð um velferðarþjónustu og menntun á erfiðum tímum.
Landspítali sýknaður af kröfu fjögurra starfsmanna sem kröfðust launaflokkahækkunar
Landspítalinn (LSH) var í dag sýknaður af kröfu fjögurra starfsmanna veirudeildar spítalans sem töldu að þeir ættu rétt á eins launaflokks hækkun vegna vinnu með hreinræktir smitefna eða eiturefni. Starfsmennirnir vísuðu í ákvæði stofnanasamnings milli LSH og Félags náttúrufræðinga frá árinu 2001 en héraðsdómur taldi ósannað að röðun starfsmannanna fjögurra bryti í bága við stofnanasamninginn.
Fagdeild geðhjúkrunarfræðinga boðar til aðalfundar
Aðalfundur fagdeildar geðhjúkrunarfræðinga verður haldinn fimmtudaginn 27.nóvember kl 20 í fundarsal hjúkrunarfélagsins að Suðurlandsbraut 22
Heilsugæsluhjúkrunarfræðingur ársins valinn
Á aðalfundi fagdeildar heilsugæsluhjúkrunarfræðinga hlaut Margrét Héðinsdóttir útnefningu sem heilsugæsluhjúkrunarfræðingur ársins 2008. Margrét starfar í skólaheilsugæslu og hefur gert lengi, eða um 11 ár innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Þjónustuskerðing óumflýjanleg
Fréttablaðið greinir í dag frá viðbrögðum nokkurra forstöðumanna heilbrigðisstofnanna til óskar um tillögu að því hvernig skera megi niður kostnað um 10 %. Meðal hugmynda eru fækkun innlagnardaga með skipulagsbreytingum og opnun sjúklingahótels.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur verið skipað að loka skurðstofu og ná fram sparnaði
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur verið skipað að loka skurðstofu og ná fram 10% sparnaði í rekstri sem mun þýða lokun deilda og uppsagnir starfsfólks. HSS þarf að ná fram 200 milljóna króna sparnaði. Stofnuninni hefur verið naumt skammtað síðustu ár og hefur verið rekin fyrir minna fé en sambærilegar stofnanir hér á landi. Þetta kemur fram í Víkurfréttum í dag.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélags Íslands fagnar eins árs afmæli
Í grein Fréttablaðsins í dag er í viðtali við Ragnheiði Alfreðsdóttur hjúkrunarfræðing, vakin athygli á afmæli og starfsemi Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands. Ráðgjafarþjónustan var sett á fót sem tilraunaverkefni til þriggja ára og hefur sannað gildi sitt því um 3.000 manns á aldrinum níu ára til níræðs hafa þegar notið góðs af henni.
Nýrra aðila leitað í stað Heilsuverndarstöðvarinnar
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, segir nú leitað nýrra samstarfsaðila í stað Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg. Það að ekki séu lengur sjúklingar á göngum Landspítalans segir hann m.a. mega rekja til góðrar þjónustu stöðvarinnar.
Rétt notkun sýklalyfja - vitundarvakning í Evrópu
Í dag 18. nóvember, er haldinn fyrsta sinni vitundarvakning um notkun sýklalyfja í Evrópu. Er þetta gert til að vekja athygli á mikilvægi sýklalyfja og réttri notkun þeirra. Ætlunin er að halda árlega slíka vitundarvakningu en í ár er athyglinni beint sérstaklega að óþarfa notkun sýklalyfja
Kynningu heilbrigðisráðherra á heilsustefnu frestað skv. tilkynningu ráðuneytisins
Af óviðráðanlegum orsökum verður að fresta kynningunni á heilsustefnunni. Kynningin verður haldin þriðjudaginn 18. nóvember kl. 14:00 á hótel Hilton.
Heilbrigðisráðherra mun kynna heilsustefnuna sunnudaginn 16. nóvember n.k. kl. 14:00 á Hótel Hilton.
Heilsustefnan nær til ársloka 2011 og er markmið hennar að skapa samfélagslegar forsendur sem stuðla að bættri heilsu allra landsmanna.
85,5% útgreiðsluhlutfall úr Peningamarkaðssjóði SPRON
SPRON gaf út tilkynningu þann 11. nóvember um að allar eignir sjóðsfélaga yrðu greiddar út þann 17. nóvember nk., en útgreiðsluhlutfallið nemur 85,52% miðað við gengi sjóðanna þann 3. október 2008.
Að afloknu hjúkrunarþingi
Þá er lokið fjölmennu og vinnusömu hjúkrunarþingi en alls mættu rúmlega 150 hjúkrunarfræðingar til leiks.
Fagdeild taugahjúkrunarfræðinga boðar til aðalfundar
Aðalfundur Fagdeildar taugahjúkrunarfræðinga verður haldinn þriðjudaginn 18. nóvember kl. 18.00 í fundarsal Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga að Suðurlandsbraut 22, Reykjavík. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt starfsreglum fagdeildarinnar.
Meistaranám í stjórnun heilbrigðisþjónustu
Í janúar 2008 hófst nýtt meistaranám við Háskólann á Bifröst, meistaranám í stjórnun heilbrigðisþjónustu. Þrjátíu og fimm nemendur hófu nám í stjórnun heilbrigðisþjónustu sem er þverfaglegt nám fyrir þá sem vilja öðlast þekkingu og skilning á rekstri og stjórnun í heilbrigðisþjónustu
Ályktun frá hjúkrunarþingi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Hjúkrunarþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldið 6. og 7. nóvember 2008 hvetur stjórnvöld til að standa sérstakan vörð um heilbrigðiskerfið við þær samfélagsaðstæður sem nú eru uppi.
Skrifstofa Fíh er lokuð í dag frá hádegi vegna Hjúkrunarþings félagsins
Hjúkrunarþing Félagsins hefst í dag og af þeim sökum verður skrifstofa félagsins lokuð frá kl 12.00 Skrifstofan er opin á morgun föstudag á venjulegum tíma
Er betra að vera hestur en aldraður?
Samtök Heilbrigðisstétta boða til málþings um aðbúnað og sjálfræði aldraðara undir yfirskriftinni "Er betra að vera hestur en aldraður?"
Umsóknarfrestur vegna styrkja sem miðast við almanaksárið 2008 rennur út 9. desember n.k.
Sjóðfélagar í Styrktarsjóði og Sjúkrasjóði BHM athugið! Gögn vegna umsókna sem þegar hafa verið sendar og verða sendar fram að þeim tíma þurfa einnig að hafa skilað sér eða verið póstlögð í síðasta lagi þann 9. desember svo hægt sé að greiða styrkina út á þessu almanaksári.
því meira sem konur leggja á sig í líkamlegri þjálfun, því ólíklegri voru þær til að fá brjóstakrabba
Líkamsþjálfun kvenna minnkar líkurnar á brjóstakrabbameini samkvæmt nýrri bandarískri rannsókn. Jafnvel rækileg hreyfing við erfiðari hússtörf getur gert sitt gagn
Hjúkrunarfræðingur kaus sjálfur að haga verkum sínum með þeim hætti sem hún gerði og beri því fulla ábyrgð
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað Landspítala af kröfu hjúkrunarfræðings um skaðabætur. Hjúkrunarfræðingurinn krafðist skaðabóta af Landspítala vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir í vinnuslysi hinn 22. júlí 2002 á deild A7 hjá LHS í Fossvogi, þegar hún féll við og fékk slink á bakið við að aðstoða sjúkling á deildinni við að fara úr rúmi í hjólastól
Magnús Pétursson, fyrrum forstjóri Landspítala skipaður ríkissáttasemjari
Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað Magnús Pétursson, fyrrum forstjóra Landspítala, til þess að gegna embætti ríkissáttasemjara til næstu fimm ára.
Símatími verkefnastjóra kjara- og réttindamála felldur niður
Símatími verkefnastjóra kjara- og réttindamála fellur niður frá og með 3. nóvember n.k., þess í stað verður hægt að hringja í síma skrifstofunnar og velja í kjölfarið númer beint til verkefnastjórans.
Þátttökutilkynning á hjúkrunarþingið framlengd um viku.
Enn gefst hjúkrunarfræðingum tækifæri á að tilkynna þátttöku sína á hjúkrunarþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Rauði krossinn í samvinnu við Allar heimsins konur um verkefnið "Félagsvinur - mentor er málið""
Félagsvinur - mentor er málið er unnið í samstarfi við hópinn Allar heimsins konur. Verkefnið hófst í september 2007 og þegar hafa um 30 pör hafið störf. Verkefnið er starfrækt til tilraunar í tvö ár á höfuðborgarsvæðinu þ.e. í Garðabæjardeild og verður starfrækt hjá fleiri deildum Rauða krossins á landinu í samvinnu við ýmsa aðila. Undirbúningur er hafinn í Fjarðarbyggð
Hótelmiðar. Margir nýjir möguleikar.
Orlofssjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga býður félagsmönnum sínum afsláttarmiða á ýmis hótel í vetur. Hver hótelmiði reiknast sem 1 orlofspunktur í frádrátt. Vetrarverðið gildir frá 1. október til 31. maí.
BHM býður ítilefni 50 ára afmælis bandalagsins til málþings undir yfirskriftinni "Farseðill til framtíðar"
BHM fagnar 50 ára afmæli Í tilefni þess höldum við málþing á Grand hótel Reykjavík (gyllti salur) fimmtudaginn 23. október kl. 13.00 - 16.00. Málþingið ber yfirskriftina Farseðill til framtíðar og er öllum opið. Að dagskrá lokinni gleðjumst við og njótum veitinga og tónlistar. Skráning fer fram á www.bhm.is.
Ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um flutning heimahjúkrunar
Á fundi stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga þann 20. október sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt, vegna viljayfirlýsingar heilbrigðisráðherra og borgarstjórans í Reykjavík frá 8. október sl., um þriggja ára þjónustusamning um sameiginlega stjórnun heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu Reykjavíkurborgar
Steingrímur Ari Arason, skipaður forstjóri sjúkratryggingastofnunar
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hefur skipað Steingrím Ara Arason, forstjóra sjúkratryggingastofnunar til næstu fimm ára. Hann tekur við embættinu 1. nóvember nk. Steingrímur Ari Arason hefur verið framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna frá árinu 1999, en hann er MA í hagfræði frá háskólanum í Uppsala
BHM fagnar styrivaxtalækkun
Miðstjórn Bandalags háskólamanna (BHM) telur lækkun Seðlabanka Íslands á stýrivöxtum vera fyrsta skrefið í átt að bættum hag almennings í landinu.
Auglýsingar eftir hjúkrunarfræðingum aukast á ný
Eftir um 3 mánaða tímabil með fáum atvinnuauglýsingum þar sem leitað er hjúkrunarfræðinga má nú merkja aukningu atvinnuauglýsinga á Atvinnutorgi hjúkrunarfræðinga.
Íslenskir hjúkrunarfræðingar hvattir til að ráða sig ekki hjá starfsmannaleigunni VGS á Grænlandi
Heilbrigðisbandalagið í Grænlandi (Peqqinnissaq Pillugu Kattuffiats -PPK) hefur sett ráðningarbann á starfsmannaleiguna VGS. PPK hefur án árangurs reynt að ná sambandi við starfsmannaleiguna til að ná samningum um ráðningarkjör félagsmanna bandalagsins. Starfsmannaleigan hefur enn ekki sinnt erindum PPK. Af þessum sökum hefur PPK frá með 14. október sett ráðningarbann á starfsmannaleiguna. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hvetur félagsmenn sína til að virða ráðningarbannað og að sækja ekki um störf hjá VGS á meðan ráðningarbann Heilbrigðisbandalags Grænkands er í gildi.
Skilaboð frá Vinnueftirliti og Rannsóknarstofu í vinnuvernd
Þau efnahagslegu áföll sem nú dynja á íslensku þjóðinni koma við okkur öll og hefur áhrif á líðan okkar. Þær aðstæður sem nú hafa skapast gera að verkum að áhyggjur okkar beinast að mörgum þáttum og áhyggjurnar eru með okkur hvort sem við erum heima eða í vinnunni.
Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur og verkefnisstjóri Þjóðar gegn þunglyndi ráðleggur um svefn
Margis vansvefta yfir efnahagsvandamálum. Ýmis bjargráð til fyrir þá sem eiga erfitt með svefn. "Það getur verið gott að fara í heitt bað fyrir svefninn eða fá sér heitan drykk. Hvers kyns slökun getur líka virkað mjög vel og þá getur einnig reynst gott að fara í göngutúr fyrir svefninn svo maður verði líkamlega þreyttur."
Ráðgjafamiðstöð á vegum geðsviðs Landspítala í Heisluverndarstöðinni við Barónstíg
Geðsvið Landspítala mun í dag klukkan 13 opna sálfræðiráðgjöf fyrir einstaklinga sem glíma við mikinn kvíða, depurð, sektarkennd eða önnur álagseinkenni vegna þróunar fjármála á Íslandi.
Námsstefna um verkjameðferð á Reykjalundi
Dagana 7. og 8. nóvember 2008 mun verkjasvið Reykjalundar halda námsstefnu um verkjameðferð. Námsstefnan verður haldin á Reykjalundi. Fyrri daginn verður farið í nokkur grundvallaratriði í verkjameðferð auk þess sem fjallað verður um ýmislegt sem við kemur verkjum en erfitt er að nálgast upplýsingar um (menning, kynlíf o.fl.). Seinni daginn verða síðan vinnusmiðjur þar sem þátttakendum gefast tækifæri á að dýpka skilning sinn og færni í meðferð þrálátra verkja.
Skráning er hafin á hjúkrunarþingið "Breytt umhverfi - ný tækifæri"
Skráning er hafin á hjúkrunarþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Breytt umhverfi - ný tækifæri sem haldið verður á Grand Hótel Reykjavík 6.-7. nóvember n.k.
Nýr opinn gagnagrunnur um norrænar samfélagsaðstæður opnaður á www.norden.org
Opnaður hefur verið ókeypis aðgangur að gagnagrunni með þúsundum talna um norrænar samfélagsaðstæður. Hægt er að nálgast gagnagrunninn og Norrænar hagtölur 2008 í pdf-útgáfu á www.norden.org.
Ráðstefna fagdeilda svæfinga- og gjörgæsluhjúkrunarfræðinga
Fagdeildirnar kynna um þessar mundir sameiginlega ráðstefnu sína sem haldin verður á Grand Hótel Reykjavík þann 1. nóvember nk.
Geðsvið undirbúið fyrir þjónustu við einstaklinga sem þurfa aðstoð til að takast á við erfiðleika vegna aðstæðna á fjármálamarkaði
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra fól í gærkvöld forstjóra Landspítala að hefja undirbúning að því að styrkja og undirbúa geðsvið spítalans þannig að það geti sem best þjónað þeim einstaklingum sem þurfa aðstoð til að takast á við erfiðleika sem upp koma vegna núverandi aðstæðna á fjármálamarkaði. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.
Leshringur um greinaskrif
Í vetur mun ritstjóri Tímarits hjúkrunarfræðinga bjóða upp á leshring fyrir alla sem hafa áhuga á að skrifa grein eða kynna starfinu sínu í tímaritinu. Fundir verða á miðvikudagskvöldum og hefjast 22. október.
Breytt númer á álagsþrepum hjá Skjóli, Eir og Hrafnistu
Álagsþrep sem voru með númerin 0-8 í launatöflum Fíh voru númeruð frá 1-9 hjá Skjóli,Eir og Hrafnistu. Nú hafa fyrrgreindar stofnanir samræmt númerin við launatöflu Fíh.
Kjarasamningur Fíh við Skjól og Eir samþykktur
Kynningar- og kjörfundur var haldinn í húsakynnum Fíh í gær og var kjarasamningurinn samþykktur með 95% atkvæða þeirra sem mættu á fundinn.
Ljósmæður og fjármálaráðherra samþykktu miðlunartillögu ríkissáttasemjara
Bæði ljósmæður og fjármálaráðherra samþykktu miðlunartillögu ríkissáttasemjara, sem lögð var fram á mánudag, og er því kominn á kjarasamningur milli þessara aðila.
Hjúkrunarfræðingi dæmdar miskabætur
Hæstiréttur hefur fallist á kröfu konu, sem starfaði sem hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum, um að ógilda beri þá ákvörðun stjórnenda spítalans að flytja konuna til í starfi eftir að karlmaður, sem var samstarfsmaður konunnar, sakaði hana um kynferðislega áreitni
Herdís Sveinsdóttir kosin formaður WENR
Á fundi sem haldinn var í Vínarborg 2. september sl. var Herdís Sveinsdóttir kosin formaður Samtaka evrópskra hjúkrunarrannsakenda (WENR). Herdís er prófessor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og fyrrverandi formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Ný lög um sjúkratryggingar samþykkt í gær
Frumvarp um sjúkratryggingar varð að lögum í gær. Með þeim verða öll verk innan heilbrigðisþjónustunnar kostnaðargreind og fjármagn mun fylgja sjúklingum milli stofnana.
Kjarasamningur við Skjól og Eir undirritaður
Fíh undirritaði í dag 10. september kjarasamning við Skjól og Eir. Kynningar- og kjörfundur verður haldinn Miðvikudaginn 24. september kl. 16:30
Sigurður Guðmundsson, landlæknir, verður forseti á heilbrigðisvísindasviði HÍ - Hjúkrunarmenntun heyrir undir sviðið
Tilkynnt var í Háskóla Íslands í dag hverjir hafa verið valdir forsetar fimm nýrra fræðasviða skólans. Um er að ræða félagsvísindasvið, heilbrigðisvísindasvið, hugvísindasviði, menntavísindasvið og verkfræði- og náttúruvísindasvið.
Kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu samþykktur.
Kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu frá 25. ágúst sl. var samþykktur með 98% greiddra atkvæða. Alls voru 223 á kjörskrá. Atkvæði greiddu 54 eða 24,22%.
Kjarasamningur við Krabbameinsfélag Íslands undirritaður
Fíh undirritaði í dag 8. september kjarasamning við Krabbameinsfélag Íslands. Kynningar- og kjörfundur verður haldinn á næstu dögum.
Umsóknarfrestur vegna styrkja í Styrktarsjóði og Sjúkrasjóði BHM sem miðast við almanaksárið 2008 rennur út 9. desember n.k.
Styrktarsjóður og Sjúkrasjóður BHM minna hjúkrunarfræðinga sem eiga aðild að sjóðunum á að umsóknarfresti lýkur þann 9. desember.
Samstaða með ljósmæðrum
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga styður samstöðu við ljósmæður á Austurvelli á morgun. Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að sýna ljósmæðrum samstöðu í kjarabaráttu þeirra með því að mæta á Austurvöll kl. 12:15 á morgun, föstudaginn 5. september.
Sáttafundi samninganefnda Ljósmæðrafélags Íslands og fjármálaráðuneytisins slitið án árangurs
Sáttafundi samninganefnda Ljósmæðrafélags Íslands og fjármálaráðuneytisins var slitið í húsakynnum ríkissáttasemjara um klukkan 15:30 í dag. Nýr sáttafundur hefur ekki verið boðaður í deilunni fyrr en 9. september.
Hjúkrunarfræðingar munið að kjósa um kjarasamninginn ykkar við SFH
Kjarasamningur Fíh við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) var undirritaður þann 25. ágúst s.l. Samningurinn var kynntur í gær 3. september og kjörfundur hófst strax í kjölfarið í húsakynnum Fíh við Suðurlandsbraut 22. Kjörfundi lýkur á morgun 5. september kl. 17:00. Hjúkrunarfræðingar sem starfa á eftirfarandi stofnunum hafa atkvæðisrétt:
Dregur úr aðsókn að námi í hjúkrun við Háskóla Íslands, full aðsókn við Háskólann á Akureyri - Hefur alvarleg áhrif varðandi manneklu
Hjúkrunarfræðinemum á fyrsta ári í Háskóla Íslands hefur fækkað verulega frá því í fyrra þrátt fyrir að fjöldatakmörkun hafi verið felld niður. Nemendur á fyrsta ári eru 86 talsins í haust en voru 115 í fyrrahaust. Á sama tíma er full aðsókn að námsplássum í hjúkrun við Háskólann á Akureyri eða 48. Í stað 126 nýútskrifaðra hjúkrunarfræðinga til starfa á Íslandi árið 2012 munu þeir einungis verða 110
Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) stofnar til opinbers áheyrnarfundar um drög að stöðlum um alþjóðlegar ráðningar heilbrigðisstarfsfólks landa á milli "code of practice on the international recruitment of health personnel "
Öllum aðilum sem eiga hagsmuna að gæta varðandi staðla um alþjóðlegar ráðningar heilbrigðisstarfsfólks landa á milli, er boðið að koma sjónarmiðum sínum á framfæri á opinberu vefrænu áheyrnarkerfi sem sett er upp af WHO . Framtakið mun gefa öllum kost á að hugsa um og gera athugasemdir við drög að stöðlunum. Öll innlegg í vefrænu áheyrninni munu eiga þátt í þróun staðla um alþjóðlegar ráðningar heilbrigðisstarfsfólks landa á milli.
Kynning á kjarasamningi við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu
Samkomulagið verður kynnt á fundi í húsnæði Fíh að Suðurlandsbraut 22, Reykjavík miðvikudaginn 3. september kl. 16:00. Boðið verður upp á fjarfund til þeirra hjúkrunarfræðinga sem starfa á einhverri ofantaldra stofnana sem eru utan höfuðborgarsvæðisins.
Námskeið í boði hjá BHM eru ókeypis fyrir félagsmenn Fíh
Fræðslunefnd BHM býður félagsmönnum upp á fjölbreytta fræðsludagskrá í vetur. Í september verður boðið upp á fyrirlestra sem tengjast jafnrétti kynjanna, námskeið um örugga framkomu og fjölmiðla og síðast en ekki síst námskeið í að semja um hærri laun. Flestir ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi. Námskeið og fyrirlestrar eru félagsmönnum aðildarfélaga BHM að kostnaðarlausu.
"Að vinna með fólk og með fólki er mest gefandi af öllu" segir Hulda Gunnlaugsdóttir hjúkrunarfræðingur, sem ráðin hefur verið forstjóri Landspítala
Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Aker-háskólasjúkrahússins í Ósló, hefur verið ráðinn nýr forstjóri Landspítalans. Alls sóttu fjórtán einstaklingar um starf forstjóra, átta konur og sex karlar. Hulda tekur til starfa 1. september 2008.
Sjálfstæður rekstur hjúkrunarfræðinga
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og heilbrigðisráðuneytið vinna nú að gerð rammasamnings um sjálfstæðan rekstur hjúkrunarfræðinga.
Hlaupið til styrktar skjólstæðingum gjörgæsludeildar LSH
Starfsfólk gjörgæsludeildar LSH hljóp til styrktar skjólstæðingum deildarinnar.
Samgönguráðuneytið úrskurðar uppsögn hjúkrunarfræðings hjá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands ólögmæta
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands (HV) sagði í nóvember 2007 hjúkrunarfræðingi upp störfum. Ástæða uppsagnar var sögð af rekstrarlegum toga. Þann 30. júlí s.l. úrskurðaði ráðuneytið uppsögnina ólögmæta.
Ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vegna kjaradeilu ljósmæðra
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) tekur undir kröfur Ljósmæðrafélags Íslands um aukið verðmat á háskólanámi.
Hjúkrunarfræðingar í forystu í Reykjavíkurmaraþoni
Tveir hjúkrunarfræðingar voru meðal efstu kvennanna í Reykjavíkurmaraþoni 23. ágúst sl. Björg Árnadóttir var í fjórða sæti og fyrsta íslenska konan til að ljúka keppni. Í áttunda sæti og 3. íslenska konan í mark var Sigrún Barkardóttir. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar þær Björgu og Sigrúnu til hamingju með árangurinn.
Kjarasamningur við Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu (SFH) undirritaður
Fíh undirritaði kjarasamning við SFH rétt í þessu. Kjarasamningurinn er sambærilegur kjarasamningi félgasins við ríkið.
ICN kynnir útgáfu 1.1. af Alþjóðlegum stöðlum fyrir hjúkrun - International Classification for Nursing Practice (ICNP®)
Alþjóðasamband hjúkrunarfræðinga hleypti í dag af stokkunum útgáfu 1.1. af Alþjóðlegum stöðlum fyrir hjúkrun - International Classification for Nursing Practice (ICNP®) og gerði þá rafrænt aðgengilega um allan heim. ICNP er samræmt hjúkrunartungumálakerfi sem gefur kost á þróun og samsvörun staðbundinna skilgreininga og fagorða.
Haustþing Læknafélags Akureyrar og Norðausturlandsdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Haustþing Læknafélags Akureyrar og Norðausturlandsdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldið að Hólum, Menntaskólanum á Akureyri laugardaginn 4.október 2008. Haustþingið ber yfirskriftina "Bráðaþjónusta á landsbyggðinni"
Golfmót Hjúkrunarfræðinga
Síðara golfmóti hjúkrunarfræðinga 2008 verður haldið föstudaginn 29. ágúst kl. 13:00 á golfvellinum Seltjarnanesi og verður ræst út af ölllum teigum samtímis. Það verður keppt í 2 flokkum og er hæsta forgjöf 40.
Endurmenntun býður upp á nám í hugrænni atferlismeðferð: eins árs þverfaglegt, hagnýtt nám fyrir háskólamenntað starfsfólk heilbrigðiskerfisins
Umsóknarfrestur er til 18. ágúst. Eins árs námið er fyrst og fremst hagnýtt nám og er ætlað fyrir ýmsar háskólamenntaðar fagstéttir sem geta nýtt aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar í sínu starfi, s.s. lækna, hjúkrunarfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, kennara, þroskaþjálfa og náms- og starfsráðgjafa. Boðið verður upp á tvær leiðir í eins árs náminu, eina fyrir fagfólk á heilbrigðissviði og aðra fyrir fagfólk á menntasviði.
Yfir 80.000 síðuflettingar á www.hjukrun.is í Júlímánuði
Aldrei fyrr hafa jafn margir skoðað vef Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga en nú í Júlímánuði 2008. Alls voru gerðar 81.453 síðuflettingar á vefsvæðinu þennan mánuð sem er um 100% aukning frá meðalmánuði.
Opið bréf til hjúkrunarfræðinga
Fyrir hönd stjórnar og samninganefndar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vil ég þakka ykkur fyrir góða þátttöku í atkvæðagreiðslum um þá kjarasamninga sem þegar hafa verið undirritaðir og samþykktir á þessu sumri.
Samkomulag Fíh og Reykjalundar einróma samþykkt
Samkomulag Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Reykjalundar frá 23. júlí sl. var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Alls voru 36 á kjörskrá. Atkvæði greiddu 20 eða 55,6%. Samkomulagið var einróma samþykkt á kjörfundi nú síðdegis.
Kjarasamningur Fíh við ríkið samþykktur með 91% atkvæða
Kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs frá 9. júlí sl. var samþykktur með 91% greiddra atkvæða.
Kjarasamningur við Reykjavíkurborg samþykktur einróma
Kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Reykjavíkurborgar frá 21. júlí sl. var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum. Alls var 31 á kjörskrá. Atkvæði greiddu 14 eða 45,2%. Samningurinn var einróma samþykktur á kjörfundi nú síðdegis.
Kjarasamningur við Reykjalund undirritaður
Í dag undirritaði samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga samkomulag um breytingu og framlengingu á kjarasamningi félagsins við Reykjalund.
Hjúkrunarfræðingar - greiðið atkvæði - náum 60% þátttöku
Nú kl. 15:00, þriðjudaginn 22. júlí, höfðu 1069 hjúkrunarfræðingar, sem taka laun skv. kjarasamningi félagsins við ríkið, greitt atkvæði um nýgerðan kjarasamning. Þetta samsvarar rúmlega 51% þeirra sem rétt eiga á að greiða atkvæði. Nú fer hver að verða síðastur að greiða atkvæði því atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 11:59 á morgun.
Hjúkrunarfræðingar - hafið skoðun á eigin kjörum - greiðið atkvæði í dag
Í morgun, þriðjudaginn 22. júlí, höfðu 982 hjúkrunarfræðingar, sem taka laun skv. kjarasamningi félagsins við ríkið, greitt atkvæði um nýgerðan kjarasamning. Þetta samsvarar rúmlega 47% þeirra sem rétt eiga á að greiða atkvæði.
Samkomulag við Reykjavíkurborg undirritað
Í dag undirritaði samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga samkomulag um breytingu og framlengingu á kjarasamningi félagsins við Reykjavíkurborg.
Hjúkrunarfræðingar - greiðið atkvæði um kjarasamninginn
Í morgun, mánudaginn 21. júlí, höfðu 743 hjúkrunarfræðingar, sem taka laun skv. kjarasamningi félagsins við ríkið, greitt atkvæði um nýgerðan kjarasamning. Þetta samsvarar 36% þeirra sem rétt eiga á að greiða atkvæði. Stjórn og kjörnefnd Fíh skorar á þá félagsmenn sem fengið hafa veflykil í pósti að nýta atkvæðisréttinn og greiða atkvæði sem fyrst.
14 sótt um forstjórastarf á Landspítala
Fjórtán einstaklingar sóttu um starf forstjóra Landspítala en umsóknarfrestur rann út 15. júlí. Nýr forstjóri tekur við starfinu 1. september 2008.
Kennitölur og atkvæðagreiðsla
Þau mistök urðu við útprentun bréfa til þeirra félagsmanna í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga sem nú greiða atkvæði um kjarasamning félagsins við ríkið, að kennitölur og nöfn félagsmanna passa ekki saman. Fullt samræmi er hins vegar á milli nafns hvers félagsmanns og þess veflykils sem hún/hann fékk úthlutað í útsendu bréfi. Kjörnefnd Fíh hefur úrskurðað að þessi villa hafi ekki áhrif á atkvæðagreiðsluna, þar sem veflykillinn tengist nafni viðkomandi en ekki kennitölu. Um leið og félagsmenn eru hvattir til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni eru þeir beðnir afsökunar á þessum mistökum.
Hefur þú áhuga á að læra eitthvað nýtt og hitta hjúkrunarfræðinga allsstaðar að úr heiminum
Þú hefur nú frábært tækifæri til að taka þátt í ráðstefnu International Council of Nursing (ICN) í Durban í SuðurAfríku sumarið 2009, hitta hjúkrunarfræðinga allsstaðar að úr heiminum, mynda tengslanet og skiptast á hugmyndum og vitneskju. Hjúkrunarfræðingar ættu að hvetja starfsfélaga sína til þátttöku því ráðstefnan er sérlega góður hugmyndabrunnur fyrir daglegt starf þeirra.
Helstu áhrif nýs kjarasamnings
Með þeirri kerfisbreytingu sem gerð var í þessum nýja samningi hækka dagvinnulaun reynds hjúkrunarfræðings í kr. 327.339- eða um tæp 14%. Ný útskrifaðir hjúkrunarfræðingar hækka í dagvinnulaunum um rúm 15%.
Kjarasamningur undirritaður og yfirvinnubanni aflýst
Nýr kjarasamningur Fíh við fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs var undirritaður rétt fyrir kl. 22 í kvöld.
Fundi frestað til morguns
Samninganefndir Fíh og ríkisins hafa fundað stíft frá því snemma í gærdag. Fundi hefur verið nú verið frestað til klukkan 11 á morgun.
Unnið að endurnýjun kjarasamnings við Reykjavíkurborg
Viðræður samninganefndar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og samninganefndar Reykjavíkurborgar eru nú hafnar. Hafa aðildar fundað í þrígang og Fíh lagt fram áherslur sínar í samningunum.
Fjölmenni á fundum um boðað yfirvinnubann
Formaður félagsins og verkefnastjóri kjara- og réttindamála funduðu með á fjórða hundrað hjúkrunarfræðingum víða um land í liðinni viku. Fundarefnið var kjaraviðræður félagsins við samninganefnd ríkisins og boðað yfirvinnubann.
Símatími verkefnastjóra kjara- og réttindamála fellur niður
Símatími verkefnastjóra kjara- og réttindamála fellur niður til 1. september n.k.
Grafalvarlegt ástand skapast á fyrstu klukkustundum yfirvinnubanns - Fjölmennur fundur á Grand Hótel
Fjöldi hjúkrunarfræðinga kom saman á fundi á Grand Hóteli í Reykjavík í kvöld til að ræða stöðuna í kjaraviðræðum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við samninganefnd ríkisins, og boðað yfirvinnubann. Formaður og verkefnastjóri kjara- og réttindamála félagsins, ásamt fulltrúum úr samninganefnd félagsins, kynntu gang kjaraviðræðnanna og þau lög og reglur sem gilda í boðuðu yfirvinnubanni. Miklar umræður urðu á fundinum. Einstök samkennd og baráttukraftur ríkti og hjúkrunarfræðingar gáfu tóninn með miklu hvatningaklappi
Árangurslaus fundur hjá ríkissáttasemjara
Fundi samninganefnda Fíh og ríkisins er lokið. Fundurinn var árangurslaus. Næsti fundur er boðaður á næstkomandi mánudag. Fíh heldur fundi um stöðuna í samningamálum og um boðað yfirvinnubann sem hefst þann 10. júlí kl 16.00
Ljósmæður skrifuðu ekki undir samning BHM við ríkið
Guðlaug Einarsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands, segir í viðtali við Morgunblaðið að samninganefnd ríkisins hafi ekki komið að neinu leyti til móts við þær kröfur um launaleiðréttingu sem ljósmæður hafi farið fram á og verið studdar af öllum félögum BHM sem hafi átt samleið í samningaviðræðunum. Krafist sé sex ára háskólamenntunar hjá ljósmæðrum en aukamenntun hafi ekki verið metin heldur séu launin svipuð og hjá illa launaðri stétt með fjögurra ára háskólamenntun.
Heilbrigðisráðherra segir að yfirvinnubann hefði mjög slæm áhrif og væntanlega neikvæð á árangur við styttingu biðlista
Verði boðað yfirvinnubann hjúkrunarfræðinga að veruleika má ljóst vera að öllum aðgerðum sem hugsanlega geta beðið verður frestað. Aðspurður af blaðamanni Morgnblaðsins segist Guðlaugur Þór vissulega hafa áhyggjur af því að yfirvinnubannið verði að veruleika.
Yfirlýsing frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
Samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og samninganefnd ríkisins hittust á fundi í dag hjá ríkissáttasemjara. Fundurinn var árangurslaus. Í ljósi þessa hefur Fíh boðað til yfirvinnubanns hjúkrunarfræðinga sem starfa á samningi Fíh við fjármálaráðherra fh. ríkissjóðs frá kl. 16.00 fimmtudaginn 10. júlí 2008. Frá þeim tíma að telja og þar til samningar nást munu hjúkrunarfræðingar einungis skila vinnuskyldu sinni í samræmi við umsamið starfshlutfall, en er óheimilt að vinna alla yfirvinnu.
94,6% fylgjandi yfirvinnubanni
Niðurstaða atkvæðagreiðslu um heimild til boðunar yfirvinnubanns frá og með 10 júlí nk. meðal hjúkrunarfræðinga sem starfa á ríkisstofnunum liggur nú fyrir Alls voru 2.068 á kjörskrá. 1.316 greiddu atkvæði eða alls 63,64% Af þeim sem greiddu atkvæði voru 94,6% fylgjandi boðun yfirvinnubanns en 5,4% andvígir. Samninganefnd Fíh hefur verið boðuð til fundar með samninganefnd ríkisins hjá ríkissáttasemjara á miðvikudag. Í framhaldi þess fundar mun Fíh gefa frá sér yfirlýsingu.
Atkvæðagreiðslu félagsmanna sem vinna hjá ríki lauk á miðnætti
Atkvæðagreiðslu um boðun yfirvinnubanns frá og með 10 júlí n.k. meðal hjúkrunarfræðinga sem starfa á ríkisstofnunum lauk á miðnætti. Starfsmenn Outcome sem hafði umsjón með atkvæðagreiðslunni vinna nú að úrvinnslu atkvæða. Stjórn Fíh mun hittast eftir hádegi í dag.
Yfirvinna orsök þunglyndis og kvíða?
Fólki sem vinnur yfirvinnu er hættara við þunglyndi og kvíða ef marka má niðurstöður norskrar rannsóknar.Það var hópur rannsóknarfólks við Háskólann í Björgvin í Noregi sem skoðaði rúmlega 10.000 manna hóp sem vann ýmist 40 tíma á viku og skemur eða 41 til 100 tíma.
Engar yfirlýsingar eftir fund BHM með ráðamönnum
Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna (BHM), segir fund sem forsætisráðherra bauð fulltrúum BHM til með fjármála- og utanríkisráðherra í morgun að mörgu leyti hafa gengið mjög vel
Verkfalli lokið í Danmörku - Heilbrigðisbandalagið hefur samið um 13,3% hækkun eftir 8 vikna verkfall.
Stéttarfélög heilbrigðisstarfsfólks á vegum danskra sveitarfélaga sem mynda Heilbrigðisbandalagið(Sundhedskartellet) höfðu krafist 15% launahækkunar fyrir félagsmenn sína en samkomulag náðist um 13,3% launahækkun á næstu þremur árum.
Árangurslausum fundi samninganefnda Fíh og ríkisins hjá sáttasemjara lokið - Næsti fundur ekki fyrr en eftir 2 vikur
Fundi samninganefndanna sem haldinn var hjá sáttasemjara í morgun lauk án árangurs . Formsins vegna hefur næsti fundur verið boðaður eftir hálfan mánuð.
Opnað hefur verið fyrir rafræna atkvæðagreiðslu um yfirvinnubann.
Hér að ofan geta þeir félagsmenn sem starfa á ríkisstofnunum greitt atkvæði um tillögu stjórnar um yfirvinnubann. Öllum félagsmönnum sem eru á kjörskrá hafa verið sendir veflyklar í pósti og ættu hann að berast þeim næstu daga. Atkvæðagreiðslu lýkur með lokun kjörsíðu þann 22. júní kl 23.59
Hjúkrunarfræðingar í Danmörku auka við aðgerðir sínar á mánudag
Á meðan félags-og heilbrigðisaðstoðarmenn (SOSU) og vaktmenn á sjúkrahúsum í Danmörku hafa endanlega afblásið aðgerðir sínar,tilkynntu hjúkrunarfræðingar að þeir muni frá og með mánudegi auka við aðgerðir sínar.
Símatími verkefnastjóra kjara- og réttindamála fellur niður út júní mánuð
Símatími verkefnastjóra kjara- og réttindamála fellur niður út júní mánuð vegna áherslu á gerð kjarasamninga. Félagsmenn eru beðnir um að senda erindi í tölvupósti á netfangið: cissy@hjukrun.is
Atkvæðagreiðsla um yfirvinnubann
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ákvað á fundi sínum fyrr í dag að efna til atkvæðagreiðslu um yfirvinnubann frá og með 10. júlí 2008 á meðal þeirra félagsmanna sem starfa á ríkisstofnunum.
Árangurslausum samningafundi lokið
Fundi samninganefnda Fíh og ríkisins lauk fyrir skömmu í húsnæði ríkissáttasemjara án árangurs. Samninganefnd Fíh lagði á fundinum fram tilboð sem var hafnað af hálfu SNR, sem ítrekaði fyrra tilboð sitt. Næsti fundur hefur þó verið boðaður n.k. þriðjudag.
Verkfalli lokð í norskum sveitafélögum utan Osló
Verkfalli starfsmanna sveitafélaga í Noregi er lokið og vinna hefst að nýju frá kl 06.00 á morgun 5. júní. Þrátt fyrir að samkomulag hafi náðst við sveitafélögin heldur verkfall Unios í Osló áfram þar sem engin samskipti hafa átt sér stað milli samningsaðila þar. Unio eykur við aðgerðir í Osló og um 1500 manns munu verða í verkfalli í sveitarfélaginu.
Opnunartími skrifstofu í sumar
Skrifstofa Fíh er opin milli kl 09 - 16.00 alla virka daga í júní, júlí og ágúst
Styrkir til framhaldsnáms og rannsókna - og vísindastarfa hjúkrunarfræðinga
Fíh auglýsir til umsóknar styrki úr minningasjóðum Hans Adolfs Hjartarsonar, Minningasjóði Kristínar Thoroddsen og úr Rannsókna og vísindasjóði hjúkrunarfræðinga. Umsóknarfrestur um styrkina er til 1. október 2008
www.8.is brást við áskorun Fíh
Í áskorun Fíh til félagsmanna sinna var þess farið á leit við þá að þeir sendu tölvupóst til vefsíðufyrirtækisins Allra átta og mótmæltu auglýsingu fyrirtækisins. Með texta auglýsingarinnar var birt mynd af léttklæddri konu í búningi sem augljóslega á að vísa til hjúkrunarfræðinga. Myndin er klassísk tilvísun í klám.
Árangurslausum fundi lokið - Fjöldi hjúkrunarfræðinga hættur að taka aukavaktir
Fundi samninganefnda Fíh og ríkisins sem fram fór hjá ríkissáttasemjara lauk 20 mínútum eftir að hann hófst. Fundurinn var algjörlega árangurslaus. Mikill hiti virðist kominn í hjúkrunarfræðinga og skrifstofu Fíh berast stöðugt fleiri fréttir af hjúkrunarfræðingum sem hafa valið að hætta að taka aukavaktir þar til samningar nást.
Fundur trúnaðarmanna Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga ályktar og hvetur stjórn til að hefja undirbúning aðgerða
Á fundi trúnaðarmanna Fíh, sem haldinn var í dag kl 14.30 ályktuðu trúnaðarmenn um stöðu samningaviðræðna, lýstu yfir stuðning við samninganefnd félagsins og hvöttu stjórn til að hefja undirbúning að formlegri yfirvinnustöðvun og tímabundnum vinnustöðvunum.
Verkfalli lokið í Svíþjóð - Lægstu laun 261.200 krónur
Vardforbundet og sveitafélögin hafa náð samkomulagi og verkfallsaðgerðir hafa verið stöðvaðar. Boðað var til sameiginlegs fréttamannafundar í gærkvöldi þar sem aðilar tilkynntu að samningar hefðu náðst og að allur ágreiningur sé leystur.
Samninganefnd ríkisins hafnar vel ígrunduðu og ábyrgu gagntilboði Fíh - samningaviðræður í hnút
Á fundi með SNR hjá ríkissáttasemjara í dag var rætt vel ígrundað og ábyrgt gagntilboð Fíh við tilboði SNR. SNR hafnaði gagntilboðinu. Samninganefnd Fíh ályktaði að afloknum fundi með SNR
Samninganefnd Fíh hafnar tilboði samninganefndar ríkisins.
Eins og fram kom í hádegisfréttum í dag bauð samninganefnd ríkisins (SNR) Fíh sambærilegan samning og BSRB, Starfsgreinasambandið og SNR f.h fjármálaráðherra undirrituðu í gær. Í tilboðinu var gert ráð fyrir framlengingu gildandi samnings til 31. mars 2009, en frá 1. maí 2008 kæmi til krónutöluhækkun að upphæð kr 20.300. Auk þess býður fjármálaráðherra hækkun persónuuppbótar um 2.300 krónur, fjölgun launaðra fjarvistardaga vegna veikinda barna um 2 daga á ári auk hækkunar framlags í fjölskyldu- og styrktarsjóð. Fíh hafnaði þessu tilboði SNR.
Samkomulag undirritað milli Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtök fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu gerðu með sér samkomulag í dag sem kveður á um 3% launahækkun frá 1. maí 2008. Samkomulag þetta er hugsað sem "innborgun" á komandi kjarasamning sem aðilar stefna á að gera í kjölfar kjarasamnings Fíh við fjármálaráðherra
Verkfall hafið í Noregi - Hjúkrunarfræðingar á Íslandi hvattir til að sækja ekki um starf
Verkfall um 3.500 hjúkrunarfræðinga, kennara og leikskólakennara skall á í Noregi í morgun. Verkfallið hófst formlega á laugardaginn en áhrifa gætir fyrst í dag þegar skólavikan hefst. Þúsundir skólabarna um allan Noreg verða fyrir áhrifum verkfallsins. Deilt er um laun en Unio, Bandalag samtaka fagfólks, fer fram á sjö prósenta launahækkun.
BSRB samdi á miðnætti.
Gengið var frá samningi aðildarfélaga BSRB sem áttu lausa samninga við ríkið 1. maí síðastliðinn við samninganefnd ríkisins um miðnættið. Samið var til skamms tíma eða til loka mars á næsta ári. Samið var um 20.300 króna hækkun frá 1. maí. Einnig var samið um að greiðsla ríkisins í styrkarsjóði BSRB hækki um 0,2%. Hún fer úr 0,55% í 0,75% um næstu áramót, eftir því sem fram kemur á vef BSRB
Aðalfundur Fíh sendir frá sér 3 ályktanir um Landspítala
Í ályktununum er tekið á væntanlegu breyttu rekstrarformi, stjórnun og nýbyggingu. Hjúkrunarfræðingar lýsa yfir fullum vilja til þátttöku og samráðs í því breytingaferli sem framundan er en vara jafnframt við því að of hratt sé farið í breytingar.
Aðalfundur ályktar harðlega gegn ráðningum læknanema í stöður hjúkrunarfræðinga
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga lýsir áhyggjum af mönnun heilbrigðisstofnana á komandi sumri. Borið hefur á því síðastliðin ár, að læknanemar séu ráðnir í störf hjúkrunarfræðinga. Aðalfundur Fíh mótmælir harðlega að slík ábyrgð sé lögð á herðar þeirra sem ekki hafa menntun í hjúkrunarfræði. Slíkt hefur afgerandi áhrif á öryggi sjúklinga og er brot á lögum
Ný lög Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga - Öll eldri lög félagsins felld úr gildi að ári.
Umræðum aðalfundar um frumvarp stjórnar til laga Fíh er lokið. Smávægilegar breytingar urðu á texta laganna í meðförum fundarins, sem samþykkti frumvarpið með breytingum.
Aðalfundur samþykkir tillögu stjórnar um félagsgjöld
Félagsgjöld verða áfram 1,5% af dagvinnulaunum en hámarksgreiðsla á ári verður þó ekki hærri en 60.000 kr. Gjöld fagaðila og aukaaðila hækka.
Aðalfundur Fíh samþykkir að gera Sólveigu Guðlaugsdóttur geðhjúkrunarfræðing á BUGL að heiðursfélaga
Sólveig Guðlaugsdóttir geðhjúkrunarfræðingur á BUGL lauk námi frá Hjúkrunarskóla Íslands árið 1974. Hún lauk síðan framhaldsnámi í geðhjúkrun frá Nýja Hjúkrunarskólanum árið 1977. Á árunum 1987-1990 stundaði Sólveig nám í fjölskyldumeðferð og er viðurkenndur fjölskyldumeðferðaraðili. Sólveig hefur verið afar ötul í símenntun og árið 2oo3 lauk hún MS prófi í geðhjúkrun þá 67 ára að aldri. Lokaverkefni hennar fjallaði um reynslu mæðra með börn með einhverfu
Heilbrigðisráðherra ræðir tækifæri í íslenskri heilbrigðisþjónustu við hjúkrunarfræðinga á aðalfundi Fíh
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, segir að engar breytingar verði gerðar á heilbrigðisþjónustunni án samráðs við hjúkrunarfræðinga. Í ræðu sinni fór Guðlaugur Þór yfir þau verkefni sem framundan eru. Hann ítrekaði að ekki standi til að gera breytingar sem feli í sér ójafnan aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu
Aðalfundur settur í fyrsta sinn
Elsa B. Friðfinnsdóttir setti í morgun 1. aðalfund félagsins. Á fundinum verða teknar til umfjöllunar og afgreiðslu ný lög félagsins. Elsa segir megin tilganginn með lögunum vera að gera félagið skilvirkara og gera það öflugri málsvara fyrir skjólstæðinga hjúkrunarfræðinga
Golfmót Hjúkrunarfræðinga
Golfmót hjúkrunarfræðinga og maka þeirra verður haldið á Akranesi föstudaginn 30.maí n.k. Keppt verður í 2 flokkum: A flokkur; þeir sem eru með forgjöf 0-28 B flokkur; þeir sem eru með forgjöf 29-42 Vegleg verðlaun verða í boði Vistor
Verkfallsviðvörun í Noregi - 3000 starfsmenn fara í verkfall 23. maí náist samningar ekki við sveitafélögin í Noregi
Unio hefur sent frá sér viðvörun um að 3000 starfsmenn í 4 sveitafélögum muni fara í verkfall á föstudaginn 23. maí . Verkfallið nær til hjúkrunarfræðinga, kennara, forskólakennara, rannsakenda, sjúkraþjálfa, iðjuþjálfa og skrifstofufólks
Sænskir hjúkrunarfæðingar enn í verkfalli.
Fulltrúar Vårdforbundet sátu fund hjá sáttasemjara á föstudag. Næsti fundur þeirra er boðaður í dag kl 15.00 Þagnarskylda ríkir um samningastarfið hjá sáttasemjara.
Verkfall hjúkrunarfræðinga í Danmörku hefur staðið í meira en mánuð. Rapp og rokk skapar góð samskipti.
Samhugur hjúkrunarfræðinganna aldrei meiri. Tónlist og söngvar um verkfallið heyrast reglulega þar sem hjúkrunarfræðingarnir hittast.
Framhaldsaðalfundi BHM lauk í dag. Ný stjórn tekin til starfa.
Guðlaug Kristjánsdóttir, sjúkraþjálfari, var í dag kjörin formaður Bandalags háskólamanna á framhaldsaðalfundi bandalagsins og Páll Halldórsson, Félagi íslenskra náttúrufræðinga, var kjörinn varaformaður. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga átti ekki fulltrúa í framboði til stjórnar.
Aðalfundur BHM sendi frá sér harðorða ályktun og lýsir ábyrgð á hendur fjármálaráðherra
Aðalfundur BHM lýsir yfir áhyggjum vegna þeirrar pattstöðu sem samningaviðræður við ríkið eru komnar í. Það er óásættanlegt að samninganefndir aðildarfélaga bandalagsins mæti á fund eftir fund með samninganefnd ríkisins án þess að nokkrar eiginlegar viðræður eigi sér stað. Þessi kyrrstaða í samningamálunum er alfarið á ábyrgð fjármálaráðherra.
Úthlutun úr Vísindasjóði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Í dag fór fram úthlutun styrkja úr B-hluta Vísindasjóðs Fíh. Veittir voru 23 styrkir til rannsóknaverkefna sem hjúkrunarfræðingar eru að vinna að.
Á vefsvæði Keilis er sagt að markmiðið sé að bjóða upp á hjúkrunarfræði til Bs gráðu.
Samkvæmt upplýsingum á vefsvæði Keilis www.keilir.net liggur ekki fyrir hvort og hvenær boðið verður upp á nám í hjúkrunarfræði en frá því er sagt að það verði kynnt vel þegar af því verður
Gagnrýna auglýsingar sem birst hafa um nám í hjúkrunarfræði á vegum Keilis
Forstöðumenn hjúkrunarfræðináms við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands gagnrýna auglýsingar sem birst hafa um nám í hjúkrunarfræði á vegum Keilis. Þeir tveir háskólar sem hafa leyfi frá menntamálaráðuneytinu til að mennta hjúkrunarfræðinga segja að engir formlegir samningar hafa átt sér stað milli skólanna og Keilis.
Fjórða verkfallsboðunin send út i Svíþjóð
Vårdforbundet hefur ákveðið að boða verkfall á 5 háskólasjúkrahúsum. Verkfallið nær til rúmlega 4000 starfsmanna og hefst 29. maí n.k. Þegar verkfallið hefst munu alls 10.000 félagsmenn í Vårdforbundet vera í verkfalli.
Samningar nást ekki í Danmörku - verkfall heldur áfram
Laus fyrir klukkan 20 á Þriðjudag stöðvuðust samningaviðræður milli Heilbrigðisbandalagsins og Danske Regioner. Þetta þýðir að félagar í Heilbrigðisbandalaginu halda áfram í verkfalli.
Sameiginlegt útboð lyfja fyrir sjúkrahús landsins
Öll sjúkrahús landsins munu sameinast um útboð á lyfjum í framtíðinni. Þetta segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra en hann mun í dag kynna ýmsar nýjungar tengdar lyfjamálum. Einnig verður leitað samstarfs við öldrunarstofnanir í lyfjaútboðum.
Fagdeild gjörgæsluhjúkrunarfræðinga boðar til aðalfundar
Á aðalfundinum sem haldinn verður þann 15. maí í sal Fíh, verða flutt erindi um Ráðstefnu AACN í Chicago og um orkublund.
Frestur til að ganga frá greiðslum fyrir orlofshús/orlofsíbúðir er lokið.
Lausr vikur í orlofshús ogórlofsíbúðir í sumar.
Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga
Alþjóðasamband hjúkrunarfræðinga, ICN, hefur ákveðið að Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga í ár verði helgaður mikilvægi hjúkrunarfræðinga í heilsuvernd og heilsugæslu sérhverrar þjóðar. Yfirskrift dagsins er: Heilsuvernd í höndum hjúkrunarfræðinga.
Kjarasamningar við fjármálaráðherra 2008
Samningasaðilar hittust á hittust og fóru yfir stöðu mála með ríkissáttasemjara í dag kl 13.00 Næsti fundur aðila hefur verið ákveðinn n.k. fimmtudag.
Verkefnastjóri kjara- og réttindamála uggandi vegna vaxandi þreytu á meðal hjúkrunarfræðinga
Skv. Cecilie B. H. Björgvinsdóttur verkefnastjóra kjara- og réttindamála hjá Fíh hafa hjúkrunarfræðingar leitað talsvert til félagsins að undanförnu til þess að kanna hvað hafa beri í huga þegar/ef skipt er um starf. Helstu ástæður sem félagsmenn gefa fyrir fyrirhuguðum breytingum á starfsvettvangi er langvarandi og viðvarandi álag í starfi sökum mannekklu.
100 ára
100 ára er í dag Ragna Nordal hjúkrunarkona. Ragna lauk hjúkrunarnámi 34 ára gömul og vann hún m.a. á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, Heilsuhælinu í Hveragerði og á Kleppsspítala. Hún er næstelsta hjúkrunarkonan á lífi á Íslandi og dvelur nú á Hrafnistu. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar henni til hamingju með daginn.
Gengið gegn slysum
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hvetur hjúkrunarfræðinga til að taka þátt í göngunni gegn slysum á fimmtudaginn 8. maí n.k. kl. 16:30. Gengið er frá Landspítala Hringbraut (Eiríksgötu megin) Skrifstofa félagsins verður lokuð frá kl. 16:00.
Hjúkrunarfræðingar í Danmörku
Hjúkrunarfræðingar sem starfs hjá ellefu sveitafélögum í Danmörku og fulltrúar vinnuveitenda þeirra munu eiga samningafund í dag. Hjúkrunarfræðingarnir eru eini hópurinn sem enn er í verkfalli í Danmörku eftir að önnur fagfélög féllust á samning stéttarfélagsins FOA um 12,8% launahækkun
Læknanemar ráðnir í störf hjúkrunarfræðinga
Árlega berast tilkynningar og kvartanir til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um ráðningu læknanema í stöður hjúkrunarfræðinga, sérstaklega á öldrunarstofnunum. Félagið hefur brugðist við þessum athugasemdum með því að senda á hverju vori, bréf til allra hjúkrunarforstjóra þar sem lögverndun starfa hjúkrunarfræðinga er ítrekuð
Fundur trúnaðarmanna haldinn 30.apríl hvetur hjúkrunarfræðinga til að fylgja reglum um hvíldartímtilskipun
Á fundinum kom fram að túnaðarmenn Fíh hvetja hjúkrunarfræðinga til að eyða tíma með fjölskyldu sinni, fremur en að taka yfirvinnu sem brjóti í bág við vinnutímatilskipun Evrópuþingsins.
Yfirlýsing frá forstjóra LSH
Starfandi forstjórar Landspitala lýsa yfir að það vinnufyrirkomulag sem öðlast átti gildi 1. maí 2008 er ekki til umræðu lengur og núverandi vaktafyrirkomulag gildir til 1. maí 2009, nema um annað verði samið.
Samkomulag hefur náðst um að skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingar dragi uppsagnir sínar til baka - von er á fréttatilkynningu frá forstjórum Landspítala
Á elleftu stundu hefur náðst samkomulag milli Landspítala og skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga sem höfðu sagt starfi sínu lausu. Fundi hjúkrunarfræðinganna sem lauk fyrir skömmu og fundarmenn á hinum samþykktu að draga uppsagnir sínar til baka. Von er á fréttatilkynningu frá forstjórum Landspítala.
Fundi lokið meðal hjúkrunarfræðinga - fulltrúar á fund ráðherra
Fundur er hafinn að nýju í heilbrigðisráðuneytinu. Á fundinum freista aðilar þess að leysa deilu milli Landspitala og skurð- og svæfingarhjúkrunarfræðinga, sem að öðrum kosti láta af störfum um miðnætti.
Skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingar funda í húsnæði Fíh
Um þessar mundir stendur yfir fundur skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga af Landspítala. Á fundinum er verið að fara yfir stöðuna og fulltrúar hjúkrunarfræðinganna, sem setið hafa fundi í heilbrigðisráðuneytinu eru að kynna efni þess fundar fyrir félögum sínum.
Þingmenn sammála um að nauðsynlegt sé að ná sáttum um lausn í þeirri stöðu sem ríkir á Landspitala
Í utandagskrárumræðu á alþingi í dag sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra að mikilvægt væri að lausn finnist á deilum hjúkrunarfræðinga og geislafræðinga við Landspítalann vegna fyrirhugaðra breytinga á vaktakerfi og að hann muni leggja sitt af mörkum
LSH lamast verði af uppsögnum
Læknaráð Landspítalans segir að starfsemi spítalans muni að stórum hluta lamast ef um 100 skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingar og 40 geislafræðingar hætta störfum og ganga út á miðnætti.
Geislafræðingar fresta uppsögnum
Geislafræðingar hafa ákveðið að draga uppsagnir sínar tilbaka í einn mánuð. Þetta var niðurstaða fundar Björns Zoëga, starfandi forstóra Landspítala og Ernu Einarsdóttur, starfsmannastjóra, með geislafræðingum nú í hádeginu.
Utandagskrárumræða á Alþingi um málefni Landspítala - Búist við fjölda skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga á þingpöllum
Miðvikudaginn 30.04.2008, kl. 15:00, fer fram umræða utan dagskrár um málefni Landspítala. Málshefjandi er SIv Friðleifsdóttir og til andsvara verður Heilbrigðisráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson
Samningaviðræðum vísað til ríkissáttasemjara
Samningaviðræðum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. Í framhaldi af fundi samninganefndar Fíh (SFíh) og samninganefndar ríkisins (SNR) í gærmorgun sem lauk að ósk SNR, hefur SNR vísað deilunni til ríkissáttasemjara. Í framhaldi af fundi samninganefndar Fíh (SFíh) og samninganefndar ríkisins (SNR) í gærmorgun sem lauk að ósk SNR, hefur SNR vísað deilunni til ríkissáttasemjara. Ríkissáttasemjari hefur boðaða fulltrúa beggja aðila á sinn fund á föstudag.
Geislafræðingar hætta á Landspítala
40 geislafræðingar ætla að hætta störfum á Landspítalanum á miðnætti, samkvæmt grein www.mbl.is Í gær ákváðu einnig rúmlega hundrað skurð- og svæfingarhjúkrunarfræðingar að standa við uppsagnir sínar.
Skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingar á Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) lýsa yfir stuðningi við skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga á Landsiptala (LSH).
Skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingar á Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir lýsa yfir stuðningi við skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga á Landsiptala (LSH). Í yfirlýsingunni lýsa þeir furðu á þeirri vanþekkingu sem það sýni að yfirmenn telja það raunhæfan möguleika að senda hóp hjúkrunarfræðinga til "skyndiþjálfunar" í umræddum störfum.
Landspítali vinnur að neyðaráætlun
Í viðtali við Morgunblaðið segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra að kappkostað verði að halda úti eins góðri þjónustu á Landsspítalanum og mögulegt er miðað við aðstæður
Yfirlýsing frá skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingum á Landspítalanum
Starfandi skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingar á LSH sjá sér ekki fært að verða við tilmælum stjórnenda LSH að fresta uppsögnum sem taka eiga gildi 1. maí.
Alvarleg staða í samningamálum - samkomulag um lengd samnings hefur ekki náðst
Alvarleg staða er nú komin upp í samningaviðræðum Samninganefnar Fíh (SFíh) og samninganefndar ríkisins (SNR). Fyrsti fundur samningsaðila var haldinn 18. mars s.l þar sem SFíh lagði áherslu á að gera skammtímasamning, enda gefi efnahagsástand ekki forsendur til annars.
Landspítali frestar gildistöku vaktakerfis
Landspítali hefur ákveðið að fresta breytingum á vaktafyrirkomulagi geislafræðinga og skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga, sem taka áttu gildi 1. n.k. til 1. október n.k. Vegna sjónarmiða sem fram hafa komið að starfsmenn fái lengri tíma til samráðs og til að koma að sínum sjónarmiðum hefur frestun þessi verið ákveðin. Jafnframt er höfð til hliðsjónar sú áskorun sem Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga setti fram um lengri tíma til að tryggja samsráðsferli milli stjórnenda og starfsmanna.
Hæsta verðbólga í 18 ár! - áhyggjuefni við gerð kjarasamninga
Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í apríl hækkaði um 3,4% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 4,2% frá mars. Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 11,8% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 10,6%. Hefur verðbólgan ekki verið meiri í tæp 18 ár eða frá september árið 1990 er verðbólga mæld á tólf mánaða tímabili var 12%.
Rétt rúm 95% segjast klárir í aðgerðir náist samningar ekki fyrir apríllok
Í vefspurningunni sem, nú hefur verið á vefsvæðinu í 14 daga, var spurt hvort þátttakandi sé klár í aðgerðir náist samkomulag um nýjan kjarasamning við Fjármálaráðherra ekki fyrir 30. apríl 2008. Rétt rúm 95% svöruðu spurningunni játandi
Verkfall hjúkrunarfræðinga í Svíþjóð harðnar - rúmlega 900 hjúkrunarfræðingar bætast við
Þegar eru rúmlega 2500 hjúkrunarfræðingar á útvöldum vinnustöðum í verkfalli í Svíþjóð en í dag og á morgun bætast rúmlega 900 hjúkrunarfræðingar við hópinn. Verkfallið mun stigmagnast næstu daga því þann 7. maí verða 7000 hjúkrunarfræðingar í aðgerðum.
80% styðja verkfallsaðgerðir í Danmörku - Hægt að stöðva verkfallið fyrir 126 íslenskar krónur á mánuði
Ef allir fullorðnir danir greiddu 126 krónum meira á mánuði, dygði það til að mæta kröfum þeirra sem eru nú í verkfalli um launahækkun. Ánægjulegt er að sjá að samkvæmt skoðanakönnun TV2 styðja 80% aðspurðra aðgerðirnar.
Fræðasvið HA fá viðurkenningu
Fræðasvið Háskólans á Akureyri fengu í gær viðurkenningu alþjóðlegrar sérfræðinefndar. Nefndin gefur kennslu og rannsóknum á sviðunum þremur, auðlinda-, félags- og heilbrigðisvísindum jákvæða umsögn. Þá fær starf kennara og framlag nemenda mjög góða dóma.
Verkfall hófst í Svíþjóð í dag
Hjúkrunarfræðingar í Svíþjóð hófu verkfall kl 12 í dag. Anna-Karin Eklund formaður Vårdforbundet segir í skrifum sínum til félagsmanna: "Við höfum nú náð þeim tímapunkti að þessi lífsnauðsynlegi faghópur gengur út og fer í verkfall. Það eru engin verðmæti falin í verkfalli, en þegar vinnuveitendurnir , sænsku bæjarfélögin og Landsþingið axla ekki ábyrgð sína vegna verðmætamats greinarinnar, tökum við þetta skref til að fá samning eins fljótt og mögulegt er"
Úthlutun orlofsstyrkja og orlofshúsa er lokið fyrir sumarið 2008.
Búið er að úthluta orlofshúsum og orlofsstyrkjum fyrir sumarið 2008. Bréf hafa verið send til allra sem sóttu um. Í boði voru 330 orlofsstyrkir og 171 vika í orlofshús. Alls bárust 986 umsóknir. Synjun fengu 519 félagsmenn.
29% hjúkrunarfræðinga, sem áttu að hefja verkfall í dag í Danmörku, geta ekki tekið þátt þar sem dagleg mönnun deilda nær ekki neyðarmönnun
Samkvæmt yfirliti sem Dansk Sygeplejeråd hefur gert, geta 7.902 hjúkrunarfræðingar á 448 af 1989 sjúkrahúsdeildum í Danmörku, ekki tekið þátt í verkfalli þrátt fyrir að verkfall hafi verið boðað á deildum þeirra.
Verkfall hefst í Danmörku 16. apríl
Um 40.000 danskir hjúkrunarfræðingar munu hefja verkfall þann 16. apríl n.k. þar sem sáttasemjari hefur gefist upp á að ná samkomulagi milli Heilbrigðisbandalagsins og vinnuveitenda.
Verkfallsaðgerðir í Danmörku geta kostað 30 - 61 milljarða í framleiðslutapi
Ef hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og leikskólakennarar í Danmörku leggja niður vinnu í næstu viku , getur það haft í för með sér framleiðslutap upp á ca. 30,8 milljarða og að það dregur úr hagvexti. Stærsta tapið verður þó á velferðarsviðinu, þegar aðgerðum er frestað og foreldrar þurfa að vera heima til að passa börnin sín.
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var haldinn þriðjudaginn 8. apríl s.l.
Fíh hvetur íslenska hjúkrunarfræðinga til að sækja ekki um vinnu í Danmörku á meðan á aðgerðum danskra hjúkrunarfræðinga stendur
Dansk Sygeplejeråd hefur tilkynnt viðsemjendum sínum að gripið verði til aðgerða í ljósi þess að ekki hafi náðst saman um nýja samninga. Verkfallsaðgerðirnar ná yfir um 40.000 hjúkrunar- og geislafræðinga. Í ljósi samstarfs hjúkrunarfélaga á Norðurlöndum hvetur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga félagsmenn sína til að sýna samstöðu og sækja ekki um vinnu hjá dönskum vinnuveitendum sem falla undir verkfallsaðgerðirnar.
Vårdforbundet boðar aðgerðir í Svíþjóð frá og með 21. apríl kl 12.00. Fíh hvetur íslenska hjúkrunarfræðinga til að sækja ekki um vinnu í Svíþjóð á meðan á aðgerðum sænskra hjúkrunarfræðinga stendur
Sænskir hjúkrunarfræðingar sendu íþann 4. apríl frá sé verkfallsviðvörun þar sem fram kemur að níu deildir félagsins muni hefja verkfallsaðgerðir frá og með 21. apríl hafi ekki komið fram tilboð frá viðsemjendum sem sé ásættanlegt.
Norsk sykepleierforbund lagði fram meginþætti krafna í viðræðum við vinnuveitendur. Verkfallsaðgerðir geta hafist í lok maí náist samkomulag ekki.
Norsk sykepleierforbund hefur frest til 30. apríl til að ná samkomulagi við viðsemjendur sína. Náist það ekki verður deilunni vísað til ríkissáttasemjara. Verði þörf fyrir verkfallsaðgerðir munu þær hefjast frá lokum maímánaðar. Komi til aðgerða hvetur Fíh íslenska hjúkrunarfræðinga til að sækja ekki um vinnu í Noregi á meðan á aðgerðum norskra hjúkrunarfræðinga stendur
Málþing um tímaritið fellur niður
Málþing um Tímarit hjúkrunarfræðinga, sem halda átti 9. apríl, fellur niður af óviðráðanlegum órsökum.
Meiri vinna fyrir minni laun?
Capacent Gallup kynnti í dag nýja kjarakönnun sem unnin var fyrir BHM og leiðir samanburður við Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Samband starfsmanna fjármálafyrirtækja í ljós að félagsmenn BHM þiggja minnstu launin fyrir mestu vinnuna.
Afgreiðsla starfsleyfa til heilbrigðisstétta færð til landlæknis
Staðfesting á hjúkrunarleyfi á Íslandi. Frá og með 1. apríl 2008, tekur Landlæknisembættið við því hlutverki að veita heilbrigðisstéttum starfsleyfi, en það hefur til þessa verið á verksviði heilbrigðisráðuneytisins.
Landlæknir vekur athygli á lögumum um heilbrigðisþjónustu og landlækni í dreifibréfi nr 4/2008
Í dreifibréfinu, sem tekur á starfsemi á sviði heilbrigðisþjónustu kemur fram að óheimilt er að hefja slíka starfsemi fyrr en fyrir liggur staðfesting um að ákveðnar lágmarkskröfur séu uppfylltar
Fæstir hjúkrunarfræðingar á Íslandi
í frétt Fréttablaðsins í dag 31. mars kemur fram að Íslendingar hafa flestu læknana en fæstu hjúkrunarfræðingana á Norðurlöndum, utan Grænlands og Færeyja. Fleiri hjúkrunarnemar skila sér ekki nógu vel, segir formaður Félags hjúkrunarfræðinga í fréttinni
Meiri hluti hjúkrunarfræðinga starfandi á ríkisreknum sjúkrahúsum veltir fyrir sér að hætta
Hjúkrunarfræðingum í Ástralíu finnst þeir vanmetnir, vinnuþjakaðir og útbrunnir. Í könnun sem m.a. var unnin á vegum NSW Nurses Association (NSWNA), kom í ljós að 60% af hjúkrunarfræðingum starfandi á ríkisreknum sjúkrahúsum hefur velt fyrir sér að segja upp
Vegið að þjónustu Landspítala við landsmenn
Sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar á Landspítala segja að sparnaðaraðgerðir séu farnar að vega að þjónustu spítalans við landsmenn og stöðu hans sem háskólasjúkrahúss. Er skorað á stjórnvöld og yfirstjórn Landspítalans að bæta kjör heilbrigðisstétta á spítalanum.
Svæðisdeild Reykjavíkur boðar til aðalfundar
Í Reykjavíkurdeild, sem nær yfir Reykjavík, Kópavog, Garðabæ, Bessastaðahrepp, Hafnarfjörð, Mosfellsbæ, Kjósarsýslu og Seltjarnarnes, eru 2.572 hjúkrunarfræðingar af 3.451 félagsmönnum sem teljast til svæðisdeildanna níu
Þann 25. mars 2008 var greitt út úr A-hluta Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Styrkurinn var greiddur beint inn á bankareikning, sem stofnaður er í SPRON í Borgartúni á viðkomandi félagsmann
Jafnlaunasigur tveggja norskra hjúkrunarfræðinga sem starfa sem deildarstjórar - verðmeta á störf þeirra til jafns við verkfræðinga
Tveir hjúkrunarfræðingar sem starfa sem deildarstjórar í Harstad umdæmi í Noregi hafa fengið stuðning í áliti umboðsmanns jafn- og misréttismála (LDO) um að vinnu þeirra eigi að verðmeta til samræmis við fjóra deildarstjóra sem eru verkfræðingar
Sáttasemjari frestar aðgerðum danskra hjúkrunarfræðinga um tvær vikur
Heilbrigðisbandalagið og þar með Dansk Sygeplejeråd áttu fundi með viðsemjendum eftir páska til að reyna til þrautar að ná samkomulagi um þau atriði sem standa út af í samningum. Samningum var haldið áfram í stofnun sáttasemjara þann 26. mars án þess að samkomulag næðist.
Þýskir hjúkrunarfræðingar leita vinnu í Danmörku
Fjöldi þýskra hjúkrunarfræðinga hafa snúið sér til danska sendiráðsins í Berlín til að leita upplýsinga um vinnu á dönskum sjúkrahúsum, þar sem von er á hærri launum og betra vinnuumhverfi.
Miðar lítið við lausn deilna á Landspítala
Á fundi sem fulltrúar geislafræðinga, svæfinga- og skurðhjúkrunarfræðinga áttu með stjórn Landspítala í gær miðaði lítið í samkomulagsátt segir í frétt mbl.is af málinu.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga kallar eftir félagsmönnum til þátttöku á aðalfundi BHM
FíH á rétt á 29 fulltrúum á aðalfundi BHM, sem haldinn verður 3. og 4. apríl n.k. Áríðandi er að full mæting sé frá félaginu þannig að hægt sé að fylgja eftir þeim málum sem félagið leggur áherslu á.
Kjaraviðræður Fíh og ríkisins hafnar.
Fyrsti fundur samninganefndar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og samninganefndar ríkisins vegna komandi kjarasamninga var haldinn í gær 18. mars. Samningasaðilar kynntu hvorir öðrum megin áherslur sínar og fram kom skýr vilji beggja að ljúka samningum áður en gildandi samningar renna út þann 30. apríl næstkomandi
Kallað eftir aðgerðum í mannauðsmálum í heilbrigðisstarfsfólks á alþjóðavísu
Fyrsta samkoma Global Forum on Human Resources for Health kallar eftir snöggum og viðvarandi aðgerðum til að leysa bráða manneklu meðal heilbrigðisstarfsmanna um heim allan og settu fram aðgerðaáætlun um þau skref sem taka þarf á næsta áratug til að snúa mannekluvandanum.
Heilbrigðisráðherra heimsækir Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra heimsótti í vikunni skrifstofu Fíh og átti fund með stjórn félagsins. Á fundinum ræddu aðilar gagnkvæm hagsmunamál og þær breytingar sem eru að verða á heilbrigðisþjónustu landsmanna
Of geyst farið í fyrirhugaðar vaktabreytingar á Landspítala
Of geyst var farið í fyrirhugaðar vaktabreytingar skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga á Landspítalanum. Nær hefði verið að ræða við þá. Þetta er mat Elsu B. Friðfinnsdóttur, formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Óánægja meðal lækna í mörg ár segir formaður læknaráðs
Á morgunvaktinni á Rás 1 í morgun sagði Þorbjörn Jónsson, formaður læknaráðs Landspítalans, að óánægja meðal lækna þar hafa verið í mörg ár. Fram hefur komið að 96 af 104 skurð- og svæfingarhjúkrunar- fræðingum hafi sagt upp störfum vegna óánægju með nýtt vaktafyrirkomulag.
Breytingar á yfirstjórn Landspítala
Anna Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, og Björn Zoëga, framkvæmdastjóri lækninga, á Landspítala, munu sameiginlega gegna starfi forstjóra spítalans þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn, en Magnús Pétursson, forstjóri, lætur af störfum þann 1. apríl nk
Hjúkrunarfræðingar meðal þeirra sem hlutu gæðastyrki heilbrigðisráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra veitti nýlega fjórtán gæðastyrki sem ætlað er að hvetja heilbrigðisstarfsmenn til dáða á sviði gæðamála. Þetta er í sjöunda sinn sem styrkir af þessu tagi eru veittir. Styrkupphæðin er að þessu sinni þrjár milljónir króna.
Rafrænar sjúklingaskrár á Google
Mest notaða vefleitarvél heimsins, Google, vill geyma sjúklingaskrár. Google er í samstarfi við Cleveland Clinic, eina af leiðandi heilbrigðisstofnunum BNA, um þróunarverkefni sem hjálpar sjúklingum að stjórna eigin heilbrigðisupplýsingum
"Hvað veldur því að hæstvirtur ráðherra neitar því að taka þessa umræðu? Treystir hann sér ekki til þess?"
Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, lýsti óánægju með að utandagskrárumræða um útvistun á rekstri hjúkrunardeildar Landspítalans, sem hann óskaði eftir í lok febrúar, skyldi ekki vera á dagskrá Alþingis áður en páskaleyfi hófst. Stjórn þingsins hafi heimilað þá umræðu en heilbrigðisráðherra hafi neitað. "Hvað veldur því að hæstvirtur ráðherra neitar því að taka þessa umræðu? Treystir hann sér ekki til þess?" mörg mál að fást við í vetur enda frétti hún bara út í bæ hvað veri sé að gera og að heilbrigðisráðherra sé ekki til staðar
Dagur nýrans er í dag 13. mars - Starfa nýrun þín eðlilega?
Í dag, 13. mars, er alþjóðlegur dagur nýrans. Slagorð dagsins er: Starfa nýrun þín eðlilega? Um það bil einn af hverjum tíu einstaklingum í heiminum upplifir einhverskonar breytingar á nýrnastarfsemi á lífsleiðinni. Breytingar á nýrnastarfseminni geta bæði verið tímabundnar og varanlegar. Sjaldnast er um varanlegar skemmdir að ræða og það eru einungis mjög fáir einstaklingar sem fá þær
Hjúkrunarfræðingar munu krefjast verulegrar hækkunar launa
Hjúkrunarfræðingar eru að hefja samningaviðræður og munu krefjast verulegrar hækkunar launa. Náist samningar ekki má búast við aðgerðum frá 1. maí en gildandi samningar hjúkrunarfræðinga renna út í lok apríl. Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir í viðtali við Morgunblaðið í dag, að lítið hafi enn heyrst frá samninganefnd ríkisins og enginn formlegur samningafundur verið haldinn.
Hjúkrunarfræðingar á öllum Norðurlöndunum krefjast verulegrar hækkunar launa
Samningar hjúkrunarfræðinga í Svíþjóð sigldu í strand í febrúar sl. og hefur verið vísað til sáttasemjara. Danskir hjúkrunarfræðingar hafa tilkynnt að ekki náist saman með viðsemjendum og hafa sent út viðvörun um fyrirhugaðar aðgerðir. Íslenskir hjúkrunarfræðingar hafa lagt til viðræðuáætlun og munu leggja fram kröfur um verulega hækkun launa. Norskir hjúkrunarfræðingar segja að náist samningar ekki muni þeir hefja verkfallsaðgerðir 1. maí.
Vísindasjóður B-hluti. Umsóknafrestur til 15. mars
Vakin er athygli á að frestur til að sækja um styrk í B-hluta Vísindasjóðs er til 15. mars n.k.
Jafnlaunanefnd norska ríkisins kynnir tillögur til aðgerða um hvernig hægt er að skapa samræmi í launum kvenna og manna í Noregi
Norska jafnlaunanefndin gaf í dag út skýrsluna Kyn og Laun. Nefndin mælir í skýrslunni með röð lausna sem geta bætt jafnrétti kynjanna. Sérstaklega er áhugavert að skoða tillögu nefndarinnar um hækkun launa valdra stétta sem eru að mestum hluta kvennastéttir í þjónustu hins opinbera.
Besta staðsetning fyrir nýtt háskólasjúkrahús er við Hringbraut
Besta staðsetningin fyrir nýtt háskólasjúkrahús er við Hringbraut að mati nefndar sem hefur síðan í nóvember endurmetið og farið yfir allar forsendur fyrir byggingu nýs Landspítala við Hringbraut.
Fræðsla fyrir væntanlega umsækjendur í B-hluta Vísindasjóð FÍH
Fræðsla fyrir væntanlega umsækjendur í B-hluta Vísindasjóð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldin í húsnæði félagsins að Suðurlandsbraut 22, miðvikudaginn 20. febrúar n.k. kl. 14:00-16:00. Farið verður yfir úthlutunarreglur sjóðsins, nýtt umsóknareyðublað kynnt og þátttakendum leiðbeint með umsóknarferlið og umsóknina. Auðna Ágústsdóttir hefur umsjón með fræðslunni.
Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur færð 1,5 m.kr. að gjöf
Á ársfundi Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði, sem haldinn var 14. feb. 2008, færði Anna Stefánsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala Rannsóknasjóði Ingibjargar R. Magnúsdóttur (RIM) veglega peningagjöf að upphæð 1,5 milljón króna. Gjöfina afhenti Anna fyrir hönd undirbúningshóps ENDA-ráðstefnu (European Nurse Directors Association) sem haldin var hér á landi 3.–5. okt. 2007.
Breyttur fundartími í Blásölum og auka fundur
Fundartíma kjarafundar í Blásölum Landspítala, miðvikudaginn 20. febrúar hefur verið breytt. Fundurinn verður frá 13:30-15:30. Þá hefur verið ákveðið að halda auka fund í þessari kjarafundaröð mánudaginn 25. febrúar kl. 20:00 að Suðurlandsbraut 22. Hjúkrunarfræðingar eru sem fyrr hvattir til að fjölmenna á fundina.
Myndabók dreift á allar deildir Landspítalans til að auðvelda samskipti milli starfsfólks og sjúklinga sem eiga í erfiðleikum með að tjá sig eða tala ekki íslensku
Mál í myndum er nafn nýrrar bókar sem dreift hefur verið á allar sjúkradeildir Landspítalans. Um er að ræða 38 síðna myndabók byggða upp af teikningum og ljósmyndum sem ætlað er að auðvelda samskipti milli sjúklinga og starfsfólks. Á síðasta ári leituðu um 1.380 erlendir sjúklingar frá um 90 mismunandi þjóðlöndum til spítalans.
Launataxtar í samningum aðila vinnumarkaðarins undirritaðir í gær. Hækkun 18 - 21 þúsund við undirskrift
Aðilar vinnumarkaðarins undirrituðu kjarasamninga á níunda tímanum í gærkvöldi. Launataxtar hækkuðu um 18 til 21 þúsund við undirskrift og munu hækka frekar á samningstímabilinu, sem rennur út í nóvember árið 2010. Laun hækka mest hjá þeim lægst launuðu
Aðgerðir ríkisstjórnar fyrir 20 milljarða
Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra, hittu fulltrúa Samtaka atvinnulífsins (SA) og Alþýðusambands Íslands (ASÍ) á fundi í húsi Stjórnarráðsins í gær. Þar var formlega kynnt yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um aðgerðir ætlaðar til að greiða fyrir gerð kjarasamninga. Yfirlýsingin var gerð einhliða og var ekki umsemjanleg í einstökum atriðum.
Samgönguráðuneyti færði BUGL 2 milljónir að gjöf
Samgönguráðuneytið hefur fært BUGL, barna- og unglingageðdeild Landspítala, tvær milljónir króna að gjöf. Fénu er ætlað að renna í sjóð til kaupa á íbúð í nágrenni deildarinnar. Íbúðin verði nýtt fyrir foreldra barna í dreifbýli sem þurfa að fylgja börnum sínum til innlagnar á BUGL
SUMS auglýsir tvo styrki til rannsókna/verkefna sem stuðla að aukini þekkingu á sáragræðslu og sármeðferð
Stjórn samtaka um sárameðferð auglýsir tvo styrki, hvor að verðgildi 100.000 kr. til rannsókna/verkefna er tengjast því markmiði félagsins að stuðla að aukinni þekkingu á sáragræðslu og sárameðferð. Þeir sem áhuga hafa, skulu sækja um styrkinn gegnum heimasíðu SUMS
Tímamótasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) og Endurmenntunar Háskóla Íslands um símenntun hjúkrunarfræðinga undirritaður í dag
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) og Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ) hafa gert með sér samstarfssamning um símenntun hjúkrunarfræðinga. Samningurinn var undirritaður í dag, þriðjudaginn 12. febrúar . Fyrir hönd samstarfsaðilanna undirrituðu þær Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður FÍH og Kristín Jónsdóttir endurmenntunarstjóri EHÍ, samninginn. Sérstaða samningsins felst í að verðlagning námskeiða er í lágmarki og mun EHÍ einnig bjóða félagsmönnum FÍH valin námskeið úr framboði sínu á sérstökum afsláttarkjörum.
Halli á rekstri Landspítalans nam 488 milljónum króna á síðasta ári eða 1,4%,
Halli á rekstri Landspítalans nam 488 milljónum króna á síðasta ári eða 1,4%, samkvæmt bráðabirgðauppgjöri að teknu tilliti til fjáraukalaga. Framlag til LSH á fjáraukalögum nam 1.737 m.kr. og þar af var 777 m.kr. framlag vegna uppsafnaðs halla fyrri ára. Launagjöld hafa aukist um rúm 10% frá fyrra ári, rekstrargjöld um rúm 7% og kostnaður vegna S-merktra lyfja um rúm 13%.
Hjúkrunarfræðingar - munið kjarafundina
Næstu kjarafundir með hjúkrunarfræðingum verða haldnir á Hótel Selfossi þriðjudaginn 12. febrúar og í Hringsal Landspítala miðvikudaginn 13. febrúar.
Kennarar fá álagsgreiðlsur því þeir hafa jafnvel sinnt vinnu fyrir utan venjulegan vinntíma!
Júlíus Vífill Ingvarsson formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar sagði: "Mér fannst rétt að segja frá þessu svo þeir vissu að við hefðum skilning á aðstæðum þeirra. Að við værum í raun þakklát fyrir að þeir skuli hafa tekið á sig aukaálag til að sinna ýmsum verkefnum, sem hafa jafnvel hafa verið fyrir utan venjulegan vinnutíma. Kennarar hafa stigið ölduna í því ástandi sem verið hefur þar sem mannekla hefur verið.“
Guðlaugur Þór fordæmir reykherbergi Alþingis
Í frétt á visir.is segist Guðlaugur ekki taka undir þau sjónarmið að tóbakslögin séu hrákasmíð. Hann segir skv fréttinni : "Þó heimilt sé gagnvart lögum með undanþágum að komið sé upp reykingaaðstöðu fyrir starfsfólk finnst mér fáránlegt að þingið sé með sitt eigið reykherbergi. Einhvern veginn finnst mér að löggjafasamkoman verði að ganga á undan með góðu fordæmi."
Breyttur fundarstaður. Trúnaðarmannanámskeið Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Vegna mikils fjölda á námskeið trúnaðarmanna Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga þurfum við að færa námskeiðið á Hótel Loftleiðir "Bíósal"
Ullevål dregur úr mönnun og fækkar Þjónustutilboðum
Í tengslum við fjárhagsáætlun 2008 hefur stjórn Ullevål universitetssykehus í Noregi lagt til samdrátt í mönnun sem hefur í för með sér fækkun ársverka um 300. Með tillögum sínum ætlar stjórn sjúkrahússins að ná fram sparnaði sem nemur um 4,5 milljörðum íslenskra króna. Á Ullevål starfa um 9600 manns.
Fastir símatímar verkefnisstjóra í kjara- og réttindamálum falla tímabundið niður
Vegna fundarherferðar um kjaramál falla fastir símatímar verkefnastjóra kjara- og réttindamála niður frá og með 5. febrúar til og með 20. febrúar
Reyksíminn og Lýðheilsustöð leita eftir tilnefningu heilbrigðisstarfsmanns til viðurkenningar á Degi tóbaks
Reyksíminn og Lýðheilsustöð hafa ákveðið að veita heilbrigðisstarfsmanni, meðferðaraðila eða hópi starfsmanna viðurkenningu fyrir störf þeirra í tóbaksmeðferð og að hafa lagt sig sérstaklega fram til stuðnings þeim sem eru að hætta að reykja
FSA fær 50 milljónir að gjöf
Góðtemplarareglan á Akureyri afhenti Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) í dag 50 milljónir króna að gjöf til stofnunar á sérstökum sjóði sem varið verður til kaupa á tækjum og búnaði til greiningar og meðferðar hjartasjúkdóma á FSA.
Endurskoðaðar reglur um B-hluta Vísindasjóð og nýtt umsóknareyðublað
Stjórn Vísindasjóðs hefur lokið endurskoðun á reglum um B-hluta Vísindasjóðs og eru þær komnar á heimasíðuna undir Styrkir og sjóðir. Stjórnin hefur einnig útbúið nýtt umsóknareyðublað ásamt leiðbeiningum svo og lokaskýrslu til að fá greiddan seinni hluta styrksins.
Kjarafundir með hjúkrunarfræðingum
Fyrsti fundurinn í kjarafundaröð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var haldinn á Akureyri í gær. Rúmlega 60 hjúkrunarfræðingar sátu fundinn. Á fundinum kynnti
Hvatt til aukningar námsframboðs og mannsæmandi launa hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og ófaglærðra svo tryggja megi öldrunarheimilum nægt starfsfólk til framtíðar
Í leiðara Morgunblaðsins í dag, sem ber yfirskriftina "ÍSLENSKT SAMFÉLAG Á ÖLDRUÐUM SKULD AÐ GJALDA" spyr leiðarahöfundur m.a. að því hvernig standi á því að hjúkrunarrýmis standi tóm vegna manneklu. Jafnframt eru færð að því rök að glórulaust sé að byggja upp fjölda hjúkrunarheimila fyrir aldraða svo lengi sem ekki er hægt að nýta rýmin vegna manneklu.
Vandamál með póstdreifingu í póstkerfum Vodafone
Hjúkrunarfræðingar sem skráð hafa netfang sitt á lista vegna Rapportsins, rafræns fréttabréfs Fíh hafa ekki allir móttekið fréttabréfið. Póstþjónn Heimsnet.is sem rekið er af Vodafone sendir ítrekað villuboð til Vefumsjónar um að ekki hafi tekist að senda viðkomandi móttakanda póstinn en engra frekari skýringa er getið. Vefumsjón hefur nú enn á ný leitað til Vodafone um skýringar á vandanum og þar til þær hafa borist getur orðið röskun á dreifingu
Ályktun stjórnar FÍH
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) fagnar samkomulagi Landspítalans við nágrannasjúkrahúsin fjögur um aukið samstarf og tilflutning verkefna.
Námskeið trúnaðarmanna verður haldið þann 7. febrúar
Á námskeiðinu er m.a. farið yfir starfsemi Fíh, imyndarverkefni, lífeyrismál, hlutverk trúnaðarmanna, kjarasamninga ofl. Trúnaðarmönnum var sent boð um fundinn fyrr í mánuðinum og eru þeir hvattir til að skrá þátttöku
Undirbúningur kjarasamninga
Boðað er til kjarafunda um landið 29. janúar til 20.febrúar. Fulltrúar félagsins hitta félagsmenn og fara yfir málefni komandi kjarasamninga. Fundirnir eru kjörinn vettvangur til skoðanaskipta
Mynd í auglýsingu ímyndarátaks tekin úr umferð
Fíh hefur ákveðið að mynd af tveimur hjúkrunarfræðingum við störf sem notuð er í ímyndarverkefni félagsins og birst hefur í Fréttablaðinu, Morgunblaðinu og í skjáauglýsingum verði tekin úr notkun eftir að nokkrir aðilar sem töldu sig þekkja sjúklinginn höfðu samband við verkefnisstjóra ímyndarátaksins. Í 2 tilfella var um óskylda aðila að ræða. Þar sem ljóst er að þriðji aðilinn þekkir aðstandanda sinn af höndum og hári auk þeirrar umgjörðar sem sjúklingurinn er í var sú ákvörðun auðveld að taka myndina úr umferð og biðja viðkomandi velvirðingar á birtingu hennar.
Um 130 ungir hjúkrunarfræðingar og nemar í hjúkrunarfræði stofnuðu ungliðadeild innan Fíh
Ungliðadeildinni sem var stofnuð í gærkvöldi á Hilton Reykjavík Nordica er ætlað að starfa innan félagsins með sama hætti og öldungadeild. Deildin skapar vettvang fyrir skoðanaskipti milli ungra hjúkrunarfræðinga
Ímyndarverkefni hleypt af stokkunum
Við viljum styrkja hjúkrunarfræðinga sem hóp sem og að vekja athygli almennings á því hversu víða við komum við í lífi allra landsmanna, alveg frá vöggu til grafar - og jafnvel enn fyrr því við sjáum um mæðravernd líka, "segir Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH), um ímyndarátak sem félagið ýtti úr vör í gær á fjórtán ára afmæli félagsins.
Slitnaði upp úr viðræðum um málefni vaktavinnufólks
Í morgun slitnaði upp úr viðræðum um úrbætur í málefnum vaktavinnufólk á milli BHM og BBRB annars vegar og fulltrúa ríkis, Reykjavíkurborgar og Launanefndar sveitarfélaga hins vegar.
Tryggingastofnun hefur auglýst laus til umsóknar leyfi í Reykjavík og á Akureyri
Tryggingastofnun ríkisins auglýsir laus til umsóknar leyfi í Reykjavík og á Akureyri til að starfa samkvæmt samningi Tryggingastofnunar ríkisins og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um hjúkrun í heimahúsum vegna alvarlegra og langvinnra sjúkdóma og slysa.
Fjölmennt á fundi um lífeyrismál
Á næstu árum munu fjölmennir árgangar hjúkrunarfræðinga fara á eftirlaun. Þann 10. janúar hélt Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga kynningarfund í samvinnu við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.
Boðað til stofnunar ungliðadeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Stofnfundur ungliðadeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica, þriðjudaginn 15. janúar næstkomandi . Megintilgangurinn með stofnun deildarinnar er að skapa skemmtilegan og líflegan vettvang fyrir unga hjúkrunarfræðinga allstaðar af landinu að hittast og skrafa saman og skiptast á skoðunum.
Af tæknilegum orsökum verður ekki hægt að senda fund um lífeyrismál út í fjarfundi
Vegna tækniörðugleika verður kynningafundur um lífeyrismál hjúkrunarfræðinga, sem haldinn verður á Grand hótel á morgun fimmtudaginn 10. janúar, ekki sendur út í fjarfundi eins og til stóð.
Hvað á bókin að heita?
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga gengst fyrir samkeppni um heiti bókar um sögu hjúkrunar á Íslandi, sem gefin verður út í tilefni 90 ára afmælis félagsins árið 2009. Leitað er hugmynda að aðal- og undirtitli bókarinnar
ÁSKORUN FRÁ LEITARSTÖÐ KRABBAMEINSFÉLAGSINS
Leghálskrabbamein er næst algengasta krabbamein meðal kvenna ef litið er til heimsins alls. Á hverju ári greinast í Evrópu 50.000 konur og 25.000 deyja af völdum þessa sjúkdóms. Við Íslendingar eigum því láni að fagna að á Íslandi er dánartíðni af völdum leghálskrabbameins hvað lægst á heimsvísu vegna vel skipulagðrar leitar. Aðra þjóðir, jafnvel innan Evrópu, geta ekki státað af slíkum árangri.
Samningur FÍH og TR endurnýjaður
Í lok síðasta árs var samkomulag milli Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) og samninganefndar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins (SHTR) fyrir hönd Tryggingastofnunar ríkisins (TR) undirritað. Samkomulagið felur í sér framlengingu á samningi dags. 7. febrúar 2006 með síðari breytingum, um hjúkrun í heimahúsum vegna alvarlegra og langvinnra sjúkdóma og slysa. Samkomulagið gildir frá 1. janúar til 30. júní 2008.
Fréttasafn
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
