Fréttasafn eftir mánuðum//

29.12.2009  //

Umsóknir í Styrktarsjóð og Sjúkrasjóð

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) hefur með lögmætum hætti og í samræmi við ákvörðun aðalfundar Fíh 12. maí 2009, sagt sig úr Bandalagi háskólamanna (BHM) og tekur úrsögnin gildi frá og með 1. janúar 2010. Unnið er að fjárhagsuppgjöri sem m.a. tengist Styrktarsjóði og Sjúkrasjóði BHM. Þeir hjúkrunarfræðingar sem hyggjast sækja um styrk í áðurnefnda sjóði í janúar eru beðnir að senda tilkynningu um það í tölvupósti á netfangið hjukrun@hjukrun.is og munu þeir þá fá leiðbeiningar um styrkumsókn í tölvupósti.

29.12.2009  //

Spara má 1700 milljónir með flutning verkefna milli kragasjúkrahúsanna og Landspítala

Skv fréttakýringu á www.mbl.is mætti spara 1700 milljónir árlega með flutningi verkefna milli kragasjúkarhúsanna og Landspítala. Þetta kemur fram í skýrslu starfshóps heilbrigðisráðherra. Ekki er í skýrslunni gerð grein fyrir þeim kostnaði sem fellur á sjúklinga og aðstandendur vegna legu á sjúkrahúsi fjarri heimabyggð svo sem vegna aksturs og gistingar.

24.12.2009  //

Jólalokun skrifstofu Fíh

Skrifstofa Fíh er lokuð milli jóla og nýárs. Opnum aftur 4. Jan. Ef erindið er brýnt þá má senda tölvupóst á formann elsa@hjukrun.is

14.12.2009  //

Ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um flutning hjúkrunarheimila

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) leggst alfarið gegn þeim hugmyndum ríkisstjórnarinnar að færa alla þjónustu við aldraða á hjúkrunarheimilum til félags- og tryggingamálaráðuneytis. Stjórnin hvetur alþingismenn til að greiða atkvæði gegn þessum flutningi þegar frumvarp til fjárlaga 2010 verður tekið til afgreiðslu á Alþingi.

14.12.2009  //

Heilbrigðisnefnd Alþingis kynntar hugmyndir um endurskipulagningu sjúkrahúsþjónustu á Suðvesturhorninu

Í fréttatilkynningu Heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að verkið hafi verið unnið af hópi manna á vegum og undir stjórn heilbrigðisráðuneytisins. Margt í niðurstöðum vinnuhópsins bendi til talsverðrar fjárhagslegrar hagkvæmni með tilflutningi verkefna milli sjúkrahúsanna á Suðvesturhorninu.

10.12.2009  //

Rjóður tekur formlega í notkun viðbótarhúsnæði til listmeðferðar

Rjóður, hvíldar- og endurhæfingarheimili fyrir langveik börn, tók í dag formlega í notkun viðbótarhúsnæði til listmeðferðar. Það samanstendur af myndlistarherbergi, nuddherbergi og viðtalsherbergi og er gjöf frá Velferðarsjóði barna.

07.12.2009  //

Síður svartur frakki tekinn í misgripum í afmælisboði Fih

Í afmælisboði Fíh í Laugardalshöll varð einhverjum á að taka síðan svartan frakka í misgripum fyrir sinn eigin. Hjúkrunarfræðingar vinsamlega kannið hvort hugsanlegt sé að frakkinn sé í ykkar fórum og hafið samband við skrifstofu félagsins sé svo.

04.12.2009  //

Ragnheiður Haraldsdóttir hjúkrunarfræðingur ráðin nýr forstjóri Krabbameinsfélags Íslands

Ragnheiður Haraldsdóttir tekur við af Guðrúnu Agnarsdóttur sem forstjóri Krabbameinsfélags Íslands eftir áramótin og lætur þá jafnframt af störfum sem sviðsstjóri á sviði stefnumótunar heilbrigðismála í heilbrigðisráðuneytinu.

03.12.2009  //

Yfirlýsing vegna greinar á vefsvæði Sjúkraliðafélags Íslands 2. desember

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga harmar þau ummæli um hjúkrunarfræðinga og hjúkrunarfræðinema sem fram koma í grein á vefsvæði Sjúkraliðafélags Íslands þann 2. desember og birt voru á visir.is. Stjórn Fíh vísar því á bug að hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarfræðinemar telji það ekki skyldu sína að svara kalli skjólstæðinga. Slíkur málflutningur er fráleitur og dæmir sig sjálfur.

02.12.2009  //

Stefnt að útkomu bókarinnar Saga hjúkrunar á Íslandi á 20 öld í byrjun árs 2010

Eins og fram kom í ræðu formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í afmælisboði félagsins er unnið að útgáfu bókarinnar Saga hjúkrunar á Íslandi á 20 öld um þessar mundir. Vonast var til þess að hægt væri að gefa bókina út nú fyrir jól en ljóst er að það mun dragast fram yfir áramót. Af þessum sökum býður félagið þeim sem vilja nota bókina til jólagjafa að kaupa gjafabréf á afmælisverði sem er 6.000 krónur.

02.12.2009  //

Unnið að algjörri endurnýjun á útliti og uppbyggingu vefsíðu Fíh

Vefsíða félags íslenskra hjúkrunarfræðinga www.hjukrun.is nýtur mikilla vinsælda meðal hjúkrunarfræðinga og annarra sem örugg upplýsingaveita um málefni hjúkrunar og hjúkrunarfræðinga. Um þessar mundir er unnið að algjörri endurnýjun á útliti og uppbyggingu síðunnar.