Hjúkrunardeildarstjórar//
Fagdeild hjúkrunardeildarstjóra
Stjórnun er veigamikill hluti af klínísku starfi hjúkrunarfræðinga. Þeir hafa yfirsýn yfir fjölmarga meðferðarþætti sinna skjólstæðinga, skipuleggja og stýra meðferðarstarfi, hafa yfirsýn yfir og skipuleggja störf samstarfsmanna sinna við hjúkrun. Einnig gegna hjúkrunarfræðingar stjórnunarstörfum sem bundin eru í lögum.
Þannig er deildarstjóri yfirmaður hjúkrunar á deild í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu og ber ábyrgð á daglegum rekstri deildar. Deildarstjóri á legudeild hefur að jafnaði undir sinni stjórn 40-50 starfsmenn og ber ábyrgð 100-150 milljón króna veltu við rekstur deildar. Í starfi sínu þarf deildarstjóri að setja markmið fyrir starfsemi deildar, gera áætlanir um rekstur og mönnun og sjá til þess að áætlanir standist. Starf hans er mjög fjölbreytt, hann ber ábyrgð á starfsmannahaldi deildar s.s. ráðningum og viðtölum við starfsfólk vegna starfsþróunar, gerir áætlanir um endurnýjun og viðhald á búnaði deildar og er ábyrgur fyrir árangursríku námi nemenda á deild. Hann stuðlar að öflugu fræðslu- og þróunarstarfi og tekur þátt í margvíslegum nefndarstörfum á vegum stofnunar. Hann ber einnig ábyrgð á gæðum hjúkrunar á deild.
Á minni heilbrigðisstofnunum er hjúkrunarforstjóri að jafnaði næsti yfirmaður deildarstjóra en á stærri stofnunum s.s. Landspítala - háskólasjúkrahúsi er starfseminni skipt upp í svið og þar er sviðstjóri hjúkrunar næsti yfirmaður deildarstjóra.
Sviðstjóri hjúkrunar ber ábyrgð á samræmingu og framkvæmd hjúkrunar á sviðinu. Starf sviðstjóra er umfangsmikið og felst m.a. í því að efla og þróa þjónustu við skjólstæðinga sviðsins og aðstandendur þeirra. Hann á að sjá til þess að þróun starfsmannamála sé í samræmi við þróun sviðsins og vinna að því að hlutverki spítalans sem háskólasjúkrahúss sé faglega sinnt með öflugri kennslu- og fræðastarfsemi. Hann hefur einnig það hlutverk með höndum að hvetja til vísindalegs starfs á sviðinu.
Hjúkrunarforstjóri er æðsti yfirmaður hjúkrunar á heilbrigðisstofnun og kemur fram sem forsvarsmaður hjúkrunar. Hjúkrunarforstjóri ber ábyrgð á að hjúkrunarþjónustan sé ávallt í samræmi við lög svo og stefnu og markmið stofnunarinnar. Hjúkrunarforstjóri vinnur að umbótum í hjúkrun og að hjúkrunin sé samkvæmt bestu þekkingu á hverjum tíma.
