Svæfingarhjúkrun//

Fagdeild svæfingarhjúkrunarfræðinga

Svæfingar í heiminum voru fyrst skráðar 1846 þótt þær hæfust nokkru fyrr. Svæfingalyfin urðu til nokkrum öldum fyrr (1540) þótt enginn vissi tilhvers ætti að nota þau þá. Fyrsta svæfing á Íslandi var 1857 á Akureyri.
 
Elstu gögn um hjúkrunarfræðinga að svæfa eru frá Bandaríkjunum en formleg kennsla í svæfingahjúkrun hófst 1909, einnig í Bandaríkjunum.
 
Á Íslandi kom fyrsti svæfingahjúkrunarfræðingurinn, Friðrikka Sigurðardóttir, til starfa 1962 eftir að hafa lært svæfingahjúkrun í Svíþjóð. Svæfingahjúkrunarnám hófst svo 1968 á Íslandi og hefur verið hér síðan. Núna er ákveðinn vendipunktur í því námi því uppi eru hugmyndir um að færa það á meistarastig í háskóla.

Fagdeild svæfingahjúkrunarfræðinga var stofnuð 1970. Hlutverk fagdeildarinnar er að standa vörð um menntun og hagsmuni svæfingahjúkrunarfræðinga og hafa samstarf við svæfingadeildir og félög hérlendis og erlendis. Á 30 ára afmæli sínu lét FS gera einkennismerki svæfingahjúkrunarfræðinga á Íslandi. Formaður FS er Stefán Alfreðsson, svæfingahjúkrunarfræðingur.

Árlega stendur FS fyrir ráðstefnu fyrir svæfingahjúkrunarfræðinga ýmist í samstarfi við aðrar fagdeildir eða sér. Hápunktur erlends og innlends samstarfs náðist í fyrra en þá stóð fagdeildin ásamt Fagdeild gjörgæsluhjúkrunarfræðinga, fyrri einhverri fjömennustu fagráðstefnu á Íslandi, Nokias 2001.

Alþjóðasamtök
Fagdeild svæfingahjúkrunarfræðinga er aðili að tvennum alþjóðasamtökum: NOSAM sem eru samtök svæfinga og gjörgæluhjúkrunarfélaga á Norðurlöndum og IFNA (sem stofnfélagi) sem er alþjóðasamband svæfingahjúkrunarfræðinga.
 
Lýsing á starfinu
Inni á skurðgangi hafa tvær deildir aðsetur. Önnur þeirra er svæfingadeild. Til að starfa sem svæfingahjúkrunarfræðingur þarf hjúkrunarfræðingur að bæta við sig námi í svæfingahjúkrun. Hins vegar geta hjúkrunarfræðingar kynnt sér svæfingahjúkrun á kjörári.
 

Tæki og tólSvæfingahjúkrun er elsta sérgrein hjúkrunar.Tæknileg færni og umhyggja sameinast í svæfingahjúkrun. Svæfingahjúkrunarfræðingur tekur þátt í að stjórna og stýra svæfingu og deyfingu hjá sjúklingum á öllum aldri og með mismundandi heilbrigðisvandamál. Svæfingahjúkrunarfræðingar starfa náið með mörgum starfsstéttum og starfssvið þeirra nær til margra deilda. Nánasti samstarfshópur svæfingahjúkrunarfræðinga eru svæfingalæknar, síðan skurðhjúkrunarfræðingar og skurðlæknar. Saman myndar þessi hópur skurðstofuteymi. Svæfingahjúkrunarfræðingar hafa einnig haslað sér völl víða sem dæmi má nefna hjarta og lungnavél og verkjateymi. Fyrst og fremst fer vinnan fram á skurðstofum en einnig á röntgendeild, slysadeild, geðdeild, verkjateymi, hjartadeild og hjartaþræðingu, svo eitthvað sé nefnt. Unnið er í dagvinnu en síðan eru bakvaktir á öllum öðrum tímum.
 
Dæmi um störf á svæfingadeild má lesa í frásögn Bryndísar Þorvaldsdóttur, svæfingahjúkrunarfræðings.
 
Skilgreining á svæfingahjúkrun (IFNA)
Svæfingahjúkrunarfræðingur veitir eða tekur þátt í að veita sjúklingum sem þurfa svæfingu, öndunaraðstoð, endurlífgun og/eða aðra lífsnauðsynlega bráðaaðstoð, sérhæfða hjúkrun og svæfingaþjónustu hvar sem þessarar þjónustu er þörf. Í svæfingahjúkrun mætast náttúruvísindi og atferlisvísindi og þau notuð til að mæta þörfum sjúklinga og fjölskyldna þeirra.
 
Menntun svæfingahjúkrunarfræðinga
Svæfingahjúkrunarfræðingar hafa flestir lært fag sitt á Íslandi. Með nokkuð reglulegu millibili hefur verið boðið upp á nám í svæfingahjúkrun, fyrst á vegum spítalanna, síðar á vegum Nýja hjúkrunarskólans og nú síðast í samvinnu Háskóla Íslands og Endurmenntunarstofnunar. Fram að þessu hefur námið ekki veitt háskólagráðu og er nú verið að marka framtíðarstefnu í menntunarmálum svæfingahjúkrunar. Verið er að meta í samvinnu fagdeildar, háskólanna og spítalanna hvernig staðið skal að menntun svæfingahjúkrunarfræðinga framtíðarinnar. Svæfingar hafa þróast mikið og það er ljóst að menntunarkröfur svæfingahjúkrunarfræðinga munu verða að fylgja þeirri þróun.
 
Nokkur dæmi um rannsóknir á sviði svæfingahjúkrunar:
This is my child - not just any child: The experience of anaesthesia lived by parents being present during induction of an elective anaesthesia of their children.
Ásgeir Valur Snorrason
 
Áhrif hitataps á svæfingu/skurðaðgerð.
Margrét Felixdóttir
 
Könnun á hitatapi hjá mismunandi aldurshópum á LSH, Hringbraut desember 2000 - mars 2001.
Margrét Pálsdóttir og Gísli Vigfússon
 
Ágrip af sögu svæfingahjúkrunar.
Stefán Alfreðsson og Valgerður Grímsdóttir
 
Könnun á viðhorfum kvenna, sem skyldu fara í keisaraskurð, til fræðsluefnis.
Árún K. Sigurðardóttir og Theodóra Gunnarsdóttir
 
Satisfaction among ambulatory surgery patients in two hospitals in Iceland.
Árún K. Sigurðardóttir
 
Halló; halló ég er hérna: Um meðvitund í svæfingu.
Árún K. Sigurðardóttir
 
"Láttu bara taka það". Upplifun kvenna af legtöku þar sem einungis legið var fjarlægt.
Bryndís Þorvaldsdóttir, Margrét Pálsdóttir og Súsanna Davíðsdóttir
 
 
Svæfingavefir:
http://www.aana.com - Bandaríska svæfingahjúkrunarfélagið
http://www.sash.fi - Finnska svæfingahjúkrunarfélagið
http://www.alnsf.no - Norska svæfingahjúkrunarfélagið

Stefán Alfreðsson
Formaður

Berglind Þorbergsdóttir
Gjaldkeri

Unnsteinn Alfonsson
Ritari

Þórdís Borgþórsdóttir
Meðstjórnandi





Smelltu á umslagið til að senda tölvupóst til deildarinnar