102:Þessi frétt er runnin út og mun ekki birtast!

Lækkun launa í heilbrigðiskerfinu //


Einar K. Guðfinnsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að af 402 einstaklingum sem eru með hærri laun en forsætisráðherra séu 90%  starfsmenn í heilbrigðisgeiranum, þar af eru 13 í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hann beindi því fyrirspurn til Álfheiðar Ingadóttur heilbrigðisráðherra varðandi það hvaða fyrirætlanir væru um að lækka laun, með hvaða hætti og hvaða áhrif það hefði á mönnun í heilbrigðiskerfinu.

Í svari ráðherra kom fram að megin áherslan væri á að vernda störfin og það yrði gert með launajöfnun þar sem verja ætti lægstu launin og lækka þau hæstu. Forstjórar heilbrigðisstofnana hafa fengið skýr fyrirmæli um að draga úr kostnaði með lækkun hæstu launa. Allar umframgreiðslur umfram kjarasamninga verða skoðaðar. Frá síðasta ársfjórðungi 2008 hafa laun heilbrigðsstarfsfólks lækkað.

Laun lækna hafa lækkað um 8,4% og stöðugildum hefur verið fækkað um 6,2%
Laun hjúkrunarfræðinga hafa lækkað um 9,7% og stöðugildum hefur fækkað um 2,5%
Laun ljósmæðra hafa lækkað um 8,4%, ekki er ljóst hvort fækkun stöðugilda hefur átt sér stað
Laun sjúkraliða hafa lækkað mest eða um 10,3% og stöðugildum hefur fækkað um 7,5%

Greiðslur vegna vaktaálags til handa hjúkrunarfræðingum hefur hækkað á sama tíma og greiðslur vegna yfirvinnu hafa lækkað um 51%. Önnur laun hafa lækkað um 19,2% og laun utan flokka hafa lækkað um 59%.

Mikil breyting hefur orðið á störfum innan heilbrigðiskerfisins, færri starfa nú í hlutastörfum og fleiri í fullu starfi. Þá er einnig ljóst að hjúkrunarfræðingar og læknar fara í vaxandi mæli til starfa erlendis í styttri eða lengri leyfum.




Til baka