Starfsreglur fagdeildar krabbameinshjúkrunarfræðinga//
1. gr
Nafn fagdeildar er Fagdeild krabbameinshjúkrunarfræðinga. Fagdeildin starfar innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Heimili og varnarþing er í Reykjavík en umdæmið er landið allt. Lög Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eru lög fagdeildarinnar.
2. gr
-
Veita ráðgjöf til stjórnar og nefnda Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um hjúkrun einstaklinga með krabbamein og fjölskyldna þeirra.
-
Hafa áhrif á stefnu stjórnvalda í heilbrigðismálum hvað varðar forgangsröðun verkefna og standa vörð um hagsmuni einstaklinga með krabbamein.
-
Stuðla að aukinni fræðslu til skjólstæðinga um andleg, líkamleg og félagsleg viðbrögð og viðeigandi úrræði á öllum stigum krabbameins.
-
Bæta menntun á sviði hjúkrunar einstaklinga með krabbameinog hvetja hjúkrunarfræðinga til að viðhalda og efla hæfni sína og þekkingu á því sviði.
-
Hvetja til aukins samstarf við hjúkrunarfræðinga, er starfa við hjúkrun einstaklinga með krabbamein, jafnt innanlands og utan.
-
Stuðla að aukinni samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir til að tryggja samfelllu í þeirri þjónustu sem veitt er til einstaklinga með krabbamein og fjölskyldna þeirra.
-
Hvetja til þróunar og þátttöku í rannsóknum á sviði hjúkrunar sem snúa að einstaklingum með krabbamein, og að hvetja til nýtingar á rannsóknarniðurstöðum til að efla gæði hjúkrunar.
-
Mynda og efla tengsl við stofnanir og félög sem veita þjónustu á sviði krabbameins.
3. gr Aðild.
Félagar geta orðið allir hjúkrunarfræðingar innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem starfa við hjúkrun einstaklinga með krabbamein og/eða hafa sérmenntun á því sviði. Aðrir hjúkrunarfræðingar sem óska eftir aðild skulu sækja um inngöngu til stjórnar fagdeildar krabbameinshjúkrunarfræðinga. Þeir félagsmenn sem ekki greiða félagsgjöld í tvö ár í röð falla sjálfkrafa af félagaskrá.
4. gr
Aðalfundur skal haldinn í febrúar ár hvert. Aðalfund skal boða skriflega með tveggja vikna fyrirvara hið minnsta. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað.
Dagskrá aðalfunda:
- Skýrsla stjórnar
- Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram
- Kosning stjórnar samkvæmt 4. gr
- Tilnefning tveggja endurskoðenda
- Árgjald ákveðið
- Önnur mál
6. gr
Starfsreglum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og skulu skriflegar tillögur um breytingar á reglum berast stjórn eigi síðar en viku fyrir aðalfund.
Endurskoðað af stjórn fagdeildar og samþykkt óbreytt í janúar 2008
