Starfsreglur Styrktarsjóðs Fagdeildar barnahjúkrunarfræðinga

 1.     Sjóðurinn heitir Styrktarsjóður Fagdeildar barnahjúkrunarfræðinga.

2.     Stjórn Fagdeildar barnahjúkrunarfræðinga hefur umsjón með sjóðnum.

3.     Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er tvisvar ári, 1. apríl og 1. október. Umsóknum er svarað í síðasta lagi mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út. Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu fagdeildarinnar, undir styrktarsjóður fagdeildar.  Sækja eyðublað

4.     Umsækjendur skulu vera félagar í Fagdeild barnahjúkrunarfræðinga og vera skuldlausir við fagdeildina.

5.     Styrkir verða eingöngu veittir í verkefni og til símenntunar á sviði barnahjúkrunar.

6.     Styrkþegar skulu kynna verkefni sín fyrir fagdeildinni innan árs frá veitingu.  Kynningin getur verið í formi greinar í fréttabréfinu eða með því að kynna verkefnið á fundum deildarinnar.

7.     Umsóknum verður raðað í forgangsröð. Umsóknir til að sækja vísindaþing, einkum þar sem styrkþegi kynnir rannsóknarniðurstöður ganga fyrir. Þeir sem hlotið hafa styrk áður lenda aftar í röðinni.

 

8.     Eldri verkefni en tveggja ára eru ekki styrkhæf.

9.     Styrkjum verður úthlutað samkvæmt fjárhagsáætlun eða framlögðum reikningi í frumriti.  Sé styrks ekki vitjað fyrir 31.des, sama ár og hann er veittur, fellur hann niður.

10.  Sjóðurinn er í vörslu gjaldkera fagdeildarinnar.  Reikningsár sjóðsins er 1. janúar til 31. desember ár hvert.  Reikningar sjóðsins verða yfirfarnir af skipuðum endurskoðendum fagdeildarinnar.

11.  Reglur sjóðsins skal endurskoða árlega, fyrir aðalfund fagdeildarinnar.