Fara á efnissvæði
Frétt

Óskað eftir tilnefningum fyrir hvatningarstyrki

Veist þú um framúrskarandi hjúkrunarfræðing sem hefur haft áhrif á þróun hjúkrunar eða heilbrigðisþjónustu á Íslandi? Tilnefningafrestur er til 19. apríl.

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur ákveðið að veita hvatningarstyrki að upphæð 500.000 kr. til framúrskarandi hjúkrunarfræðinga sem hafa haft áhrif á þróun hjúkrunar eða heilbrigðisþjónustu á Íslandi.

Markmiðið er að styðja við hjúkrunarfræðinga sem hafa á einhvern hátt skarað fram úr á sínu sviði. Viðurkenningin byggir á gildum Fíh, ábyrgð, áræðni, árangur og horft skal til þátta sem lúta að klínískri færni, stjórnun, kennslu, rannsóknum og nýsköpun í hjúkrun.

Styrknum er ætlað að styðja hjúkrunarfræðinga til að afla sér frekari þekkingar og/eða þjálfunar sem nýtist þeim til að þróa enn frekar sín verkefni sem tengjast hjúkrun og þeir eru í forsvari fyrir eða leiða. Þessir hvatningarstyrkir eru veittir einstaklingum en ekki fyrir verkefni eða rannsóknir sem eru fjármagnaðar að fullu eða hluta annarstaðar.

Allir félagar í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga geta tilnefnt hjúkrunarfræðing sem fellur undir ofan talin viðmið með rökstuðningi fyrir framúrskarandi hæfni og færni viðkomandi.

Tilnefningum ber að skila inn fyrir föstudaginn 19. apríl og senda á formann Fíh, formadur@hjukrun.is.