- Dagsetning
- 12. júní 2025
Ræst verður út kl 14.00 af öllum teigum samtímis.
Matur hefst kl. 19.00.
Golfnefndin mun keyra um og fylgjast með að leikurinn taki ekki meira en fjóra og hálfa klukkustund.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 80. Skráning á golf.is hefst 1. apríl 2025 og lýkur 11. júní kl. 12.00.
Fyrirkomulag er punktakeppni og er hámarksforgjöf 36.
Verðlaun verða veitt fyrir a.m.k. þrjú efstu sæti, lengsta teighögg og næst holu á öllum par 3 brautum.
Viðurkenning verður veitt fyrir besta skor.
Teiggjafir og dregið úr skorkortum.
Golfnefndin er að athuga hvort unnt sé að taka frá herbergi á Hótel Hamri fyrir þátttakendur sem þess óska og eru þeir sem hafa áhuga vinsamlegast beðnir um að hafa samband við fulltrúa í golfnefnd.
Golfnefndin:
Elín Ýrr Halldórsdóttir [email protected]
Herdís Sveinsdóttir [email protected]
Margrét Pálsdóttir [email protected]
Sjöfn Sigþórsdóttir [email protected]