Fara á efnissvæði

Vísinda- og rannsóknarsjóður

Vísinda- og rannsóknarsjóður styrkir rannsóknir og fræðaskrif sjóðsfélaga.

Vísinda- og rannsóknarsjóður

Sækja skal um styrk í Vísinda- og rannsóknarsjóð á sérstöku umsóknareyðublaði. Eyðublaðið er Word-skjal og þarf umsækjandi að byrja á því að vista það á sinni tölvu og fylla síðan út og meðhöndla sem venjulegt Word-skjal.

Umsóknir og fylgiskjöl sendist á netfangið [email protected] fyrir miðnætti þann 15. mars ár hvert. Æskilegt er að umsóknareyðublaðið er á Word formi en önnur gögn á PDF-formi. Öll tölvuskjöl sem send eru sjóðnum skulu merkt með nafni umsækjanda og skýringu á innihaldi. Dæmi: jonajonsdottirCV2017.pdf, jonajonsdottirFylgiskj2.pdf

Umsókn

Eyðublöð

Umsækjendur sem fengið hafa úthlutað úr sjóðnum áður og ekki hafa lokið þeirri rannsókn þurfa að skila framvinduskýrslu um það verkefni vilji þeir sækja aftur um í sjóðinn.

Þegar styrkþegi hefur lokið rannsókninni/verkefninu, eða þeim hluta sem styrkurinn nær til, þarf hann að sækja um að fá útborgaðan seinni hluta styrksins á þar til gerðu umsóknareyðublaði. Umsóknin sendist á netfangið [email protected].

Stjórn sjóðsins

Formaður

Marianne Klinke

Árún K. Sigurðardóttir

Rannveig Jóna Jónasdóttir

Rakel Björg Jónsdóttir