Fara á efnissvæði

Styrktarsjóður

Styrktarsjóður veitir félagsfólki fjárhagsaðstoð í veikinda- og slysatilvikum, styður og eflir félagsfólk vegna endurhæfingar eftir slys eða veikindi auk þess að efla forvarnir sem varða heilsufar og heilbrigði.

Réttur félagsfólks

Rétt í styrktarsjóð öðlast félagsfólk þegar greiðslur hafa borist í 6 mánuði í sjóðinn, þar af 3 mánuði samfellt áður en atburður sem veitir rétt til styrks úr sjóðnum átti sér stað. Sótt er um styrk í Styrktarsjóð á Mínum síðum, en til að hafa aðgengi að þeim þarf annað tveggja: Íslykil eða rafræn skilríki.

Heilsustyrkur

Veittur er styrkur í heild allt að 60.000 krónur á ári vegna heilsutengdra útgjalda. Greiðslur úr sjóðnum eru almennt staðgreiðsluskyldar og er staðgreiðsla dregin af fjárhæð fyrir útborgun. Heilsurækt/endurhæfing er þó undanþegin skatti.

Mikilvægt er að senda inn kvittanir með umsókn sem sýna fram á að greitt hafi verið fyrir viðburðinn.

Sótt er um styrkinn á mínum síðum.

Umsóknir eru afgreiddar mánaðarlega, þó er heilsustyrkur ekki greiddur út í júlí. Umsóknum ásamt viðeigandi gögnum skal skila inn fyrir lok mánaðar. Að jafnaði er greitt út 24.-26. dag næsta mánaðar eða næsta virka dag á eftir. Umsóknir sem berast í desember greiðast út í janúar en færast sem styrkur sama ár og umsókn barst.

Heilsurækt/endurhæfing er undanþegið skatti en heilbrigðiskostnaður er skattskyldur. Hér má sjá dæmi um hvað flokkast undir hvorn þátt.

Fæðingarstyrkur

Fæðingastyrkur er að hámarki kr. 250.000 til foreldris vegna hvers barns. Upphæð styrksins ákvarðast af starfshlutfalli. Sækja þarf um styrkinn innan eins árs frá fæðingu barns. Sótt er um styrkinn á Mínum síðum og eru styrkir að jafnaði greiddir út 24.-26. dag mánaðar eða næsta virka dag á eftir.

Umsókninni þurfa að fylgja:

  • Fæðingarvottorð barns
  • Afrit af nýjasta launaseðli (mynd/skjáskot eða PDF skjal)

Sjúkradagpeningar

  • Hámarks mánaðargreiðsla þeirra er starfa hjá ríki er kr. 400.000.
  • Hámarks mánaðargreiðsla þeirra er starfa á almenna markaðinum er kr. 610.000.
  • Nánari upplýsingar er að finna í úthlutunarreglum sjóðsins.

Fylla þarf inn umsóknareyðublað og því skilað inn ásamt viðeigandi gögnum á skrifstofu Fíh, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík. Sjúkradagpeningar eru að jafnaði greiddir út 24.-26. dag mánaðar eða næsta virka dag á eftir.

Umsókninni þurfa að fylgja:

  • Læknisvottorð
  • Launaseðill með starfshlutfalli
  • Vottorð vinnuveitanda um tæmingu veikindaréttar
  • Skattkort (valkvætt)

Útfararstyrkur

Aðstandendur geta sótt um útfararstyrk vegna fráfalls félagsmanns að upphæð kr. 350.000. Sótt er um útfararstyrk með tölvupósti á sjodir@hjukrun.is. Útfararstyrkur er að jafnaði greiddur út 24.-26. dag mánaðar eða næsta virka dag á eftir. Nánari upplýsingar um útfararstyrk er að finna í úthlutunarreglum sjóðsins.

Útfararstyrkur er greiddur vegna:

  • Útfarar virks sjóðsfélaga
  • Útfarar sjóðsfélaga sem látið hefur af störfum og andast innan árs frá því að greiðslur hættu að berast fyrir hann í sjóðinn
  • Útfarar barna (18 ára og yngri) sjóðsfélaga

Nauðsynleg gögn:

  • Dánarvottorð

Stjórn sjóðsins

Formaður

Guðrún Yrsa Ómarsdóttir

Rut Gunnarsdóttir

Svanlaug Guðnadóttir

Varamaður

Kristrún Þórkelsdóttir

Varamaður

Tryggvi Hjörtur Oddsson

Reglur