Um deildina
Fagdeild hjúkrunarfræðinga á vöknun var stofnuð 19. maí 2026.
Tilgangur deildarinnar er:
- Að hafa áhrif á stefnumótun í heilbrigðismálum einkum er lýtur að hjúkrun sjúklinga á vöknun.
- Að vera stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og nefndum til ráðgjafar í öllu því er snýr að hjúkrun sjúklinga á vöknun.
- Viðhalda faglegum tengslum við hjúkrunarfræðinga sem starfa á vöknun hér heima og erlendis.
- Hvetja til framþróunar á sviði vöknunarhjúkrunar og rannsóknarvinnu.
- Veita hjúkrunarfræðingum sem starfa á vöknun tækifæri til símenntunar.
Stjórn
Formaður
Halla Þorsteinsdóttir
Varaformaður
Margrét Rúna Guðmundsdóttir
Gjaldkeri
Björg Alexandersdóttir
Ritari
Anna Jóhanna Henryksdóttir
Meðstjórnandi
Hólmfríður Morgan
Reglur
Kafli I – Fagdeild hjúkrunarfræðinga á vöknun
1 gr. Nafn
Fagdeild hjúkrunarfræðinga á vöknun er sjálfstætt starfandi fagdeild innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og starfar samkvæmt lögum Fíh.2.gr. Tilgangur
Tilgangur deildarinnar er:- Að hafa áhrif á stefnumótun í heilbrigðismálum einkum er lýtur að hjúkrun sjúklinga á vöknun
- Að vera stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og nefndum til ráðgjafar í öllu því er snýr að hjúkrun sjúklinga á vöknun
- Viðhalda faglegum tengslum við hjúkrunarfræðinga sem starfa á vöknun hér heima og erlendis
- Hvetja til framþróunar á sviði vöknunarhjúkrunar og rannsóknarvinnu
- Veita hjúkrunarfræðingum sem starfa á vöknun tækifæri til símenntunar
Deildin heyrir undir fagsvið Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Kafli II – Aðild
3. gr. Aðild
Rétt til aðildar að deildinni eiga hjúkrunarfræðingar í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga sem starfa á vöknunardeildum á Íslandi.Þeir hafa rétt til að vinna að ákveðnum verkefnum innan félagsins, sitja aðalfund og hafa kosningarétt.
4. gr. Umsókn um aðild
Umsókn um aðild að deildinni skal berast til stjórnar deildarinnar á netfangið [email protected].5. gr. Úrsögn
Úrsögn úr deildinni er hægt að skila skriflega til stjórnar Fagdeildar hjúkrunarfræðinga á vöknun. Einnig getur stjórn litið á það sem úrsögn ef félagsmaður hefur ekki greitt árgjald deildarinnar tvö ár í röð.Kafli III – Skipulag deildar
6. gr. Lög
Deildin heyrir undir Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og lög félagsins eru lög deildarinnar.7. gr. Aðalfundur
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum deildarinnar. Aðalfund skal halda ár hvert og skal til hans boða með að minnsta kosti tveggja vikna fyrirvara með sannanlegum hætti.Aðalfundur telst löglegur sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna ræður úrslitum mála.
8. gr. Stjórn.
Stjórn Fagdeildar hjúkrunarfræðinga á vöknun skipa fimm félagsmenn, sem kjörnir eru á aðalfundi félagsins, til tveggja ára í senn.
Formaður er kosinn sérstaklega en aðrir stjórnarmeðlimir skipta með sér hlutverkum gjaldkera, ritara og tveggja meðstjórnenda. Heimilt er að kjósa tvo varamenn í stjórn. Kosning skal vera skrifleg og leynileg ef fleiri en einn félagi býður sig fram til sama embættis. Meirihluti aðalfundar ræður kjöri. Kjöri skal þannig háttað að aldrei gangi fleiri en þrír kjörnir stjórnendur auk varamanna úr stjórn hverju sinni.
Laus embætti innan stjórnar skal auglýsa með aðalfundarboði. Allir félagsmenn sem uppfylla kröfur geta boðið sig fram í stjórn. Framboð skal tilkynna stjórn fagdeildarinnar á netfang [email protected] í síðasta lagi viku fyrir aðalfund
9. gr. Dagskrá aðalfundar
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar lögð fram
- Ársreikningar lagðir fram til samþykktar
- Reglubreytingar
- Ákvörðun félagsgjalds
- Kosning stjórnar
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
10. gr. Félagsgjald
Ákvörðun um félagsgjald skal tekin á aðalfundi og endurskoðuð árlega. Árgjald skal greiðast samkvæmt kröfu í heimabanka.
Greiði félagsmaður ekki árgjald tvö ár í röð skoðast það sem úrsögn úr Fagdeild.
11. gr. Slit deildar
Ákvörðun um slit deildarinnar skal taka á aðalfundi með ¾ hlutum greiddra atkvæða og renna eignir deildarinnar til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Skili deildin ekki ársskýrslu til stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga tvö ár í röð getur aðalfundur félagsins tekið ákvörðun um slit deildarinnar.Kafli IV – Ársskýrsla, reikningar og endurskoðun
12. gr. Ársskýrsla
Deildin skal skila skýrslu um starfsemi sína til sviðsstjóra fagsviðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fyrir lok marsmánaðar ár hvert.13. gr. Reikningar og endurskoðun
Reikningstímabil deildar skal miðast við Aðalfund deildar ár hvert. Á aðalfundi skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga úr röðum félagsmanna.Kafli VI – Gildistaka
14. gr. Gildistaka
Starfsreglur þessar öðlast gildi þegar þær hafa verið samþykktar á sérstaklega boðuðum stofnfundi deildarinnar.





