Fara á efnissvæði

Fagdeild krabbameinshjúkrunar

Hjúkrun einstaklinga með krabbamein og aðstandenda þeirra er sérhæfð hjúkrun á öllum stigum sjúkdómsins.

Um fagdeildina

Fagdeild krabbameinshjúkrunarfræðinga var stofnuð 12. maí 1996. Félagafjöldinn hefur aukist jafnt og þétt og telur nú hátt á annað hundrað. Stefna fagdeildarinnar samræmist í megin atriðum stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í hjúkrunar-og heilbrigðismálum. Fagdeildin vinnur eftir ákveðnum starfsreglum, ásamt því að reka styrktarsjóð sem útthlutað er úr árlega. Fagdeildin er aðili að samtökum Evrópskra krabbameinshjúkrunarfræðinga (EONS) og alþjóðasamtökum krabbameinshjúkrunarfræðinga (ISNCC). Árleg hefð er fyrir vel sóttu málþingi fagdeildarinnar að hausti.

Krabbameinshjúkrunarfræði hefur alþjóðlega viðurkenningu sem sérgrein innan hjúkrunar. Krabbamein er langvinnur sjúkdómur og meðferð og umönnun þeirra sem eru með krabbamein krefst samvinnu og samhæfingar margra fagstétta innan heilbrigðiskerfisins ef veita á gæðaþjónustu.

Hjúkrunin tekur mið af þörfum sjúklingsins og fjölskyldu hans og leggur fagdeildin áherslu á að hvers kyns breytingar innan heilbrigðisskerfisins komi ekki í veg fyrir að skjólstæðingum verði veitt árangursrík, markviss og örugg þjónusta. Þjónustan á að vera skipulögð og veitt af sérhæfðu fagfólki og er mikilvægt að allar heilbrigðisáætlanir tryggi skjólstæðingum jafnan og greiðan aðgang og tryggja þarf aðgang að þverfaglegu teymi hvenær sem er á sjúkdómsferlinu; við greiningu, meðferð, eftirlit, endurhæfingu og lífslok.

Stjórn

Formaður

Halldóra Hálfdánardóttir

Verðandi formaður

Katrín Edda Snjólaugsdóttir

Gjaldkeri

Ásta I. Þorsteinsdóttir

Ritari

Magna Jónmundsdóttir

Meðstjórnandi

Halldóra Egilsdóttir

Meðstjórnandi

Steinunn Helga Sigurðardóttir

Meðstjórnandi

Aldís Erna Vilhjálmsdóttir

Erlent samstarf

Fagdeildin á aðild að Evrópusamtökum krabbameinshjúkrunarfræðinga (EONS) og Alþjóðasamtökum krabbameinshjúkrunarfræðinga (ISCNN). Fjölmargir styrkir og námsmöguleikar, bæði í formi vinnusmiðja og náms á netinu, standa meðlimum til boða. Einnig fá þeir afslátt af ráðstefnugjaldi. Meðlimir fagdeildarinnar fá einnig sent fréttabréf EONS í tölvpósti mánaðarlega.

Fagdeildarmeðlimir eru hvattir til að kynna sér hið mikla starf sem fram fer á vegum þessara samtaka á vefsíðum þeirra:

Fræðastörf

Fagdeild krabbameinshjúkrunarfræðinga telur rannsóknir vera lykilatriði til að stuðla að þróun þekkingar og gagnreyndri krabbameinshjúkrun fyrir almenning, sjúklinga og aðstandendur þeirra og hvetur því hjúkrunarfræðinga til að stunda rannsóknir og hagnýta rannsóknir í klínísku starfi. Fagdeildin styður við þekkingaröflun og rannsóknir til að tryggja að krabbameinshjúkrun á Íslandi taki mið af bestu fyrirliggjandi þekkingu hverju sinni.

Fagdeild krabbameinshjúkrunarfræðinga leggur áherslu á virka þátttöku sjúklinga og almennings í rannsóknarferlinu, allt frá rannsóknarhugmynd til framkvæmd rannsókna. Þarfir sjúklinga og aðstandenda eru leiðarstef í rannsóknum í krabbameinshjúkrun.

Fagdeild krabbameinshjúkrunarfræðinga telur mikilvægt að hjúkrunarfræðingar taki þátt í fjöl- og þverfaglegu rannsóknarsamstarfi til að mæta þörfum almennings, sjúklinga og aðstandenda á sem víðtækastan hátt. Leggja þarf áherslu á rannsóknir á sviði einkennameðferðar, lífslokameðferðar og á lífsgæðum og þörfum eftirlifenda (survivorship).

Markmið rannsókna í krabbameinshjúkrun eru að:

  • Efla forvarnir gegn krabbameini
  • Bæta lífsgæði og líðan krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra
  • Bæta þjónustu við sjúklinga og aðstandendur
  • Stuðla að aukinni þekkingu og faglegri þróun krabbmeinshjúkrunarfræðinga
  • Hagnýta vísindalega þekkingu til að efla gagnreynda starfshætti krabbmeinshjúkrunarfræðinga

Styrktarsjóður

Starfsreglur sjóðsins

  1. Sjóðurinn heitir Styrktarsjóður fagdeildar krabbameinshjúkrunarfræðinga.
  2. Stjórn sjóðsins er skipuð þremur félögum í fagdeildinni, og þar af minnst einum stjórnarmanni. Stjórn sjóðsins er kosin til tveggja ára í senn, en þó skulu ekki allir stjórnarmenn ganga úr stjórn á sama tíma.
  3. Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er til 1. apríl ár hvert og verður umsóknum svarað fyrir 1. maí. Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu fagdeildarinnar, undir Styrktarsjóður fagdeildar.
  4. Umsækjendur skulu vera skuldlausir við fagdeildina og hafa verið félagar í deildinni í að minnsta kosti eitt ár.
  5. Styrkveitingar úr sjóðnum skulu miðast við að höfuðstóll hans haldi verðgildi sínu að upphæð 1.000.000,- kr. Hver styrkur skal ekki vera hærri en 100.000,- kr.
  6. Styrkir verða eingöngu veittir í verkefni og til símenntunar á sviði krabbameinshjúkrunar.
  7. Styrkþegar skulu kynna verkefni sín fyrir fagdeildinni innan 6 mánaða frá veitingu. Kynningin getur verið í formi greinar í fréttabréfinu eða með því að kynna verkefnið á fundum deildarinnar.
  8. Umsóknum verður raðað í forgangsröð. Umsóknir til að sækja vísindaþing, einkum þar sem styrkþegi kynnir rannsóknarniðurstöður ganga fyrir. Þeir sem hlotið hafa styrk áður lenda aftar í röðinni.
  9. Eldri verkefni en ársgömul eru ekki styrkhæf.
  10. Styrkjum verður úthlutað samkvæmt fjárhagsáætlun eða framlögðum reikningi í frumriti. Sé styrks ekki vitjað fyrir 1. apríl ári eftir að hann var veittur, fellur hann niður.
  11. Sjóðurinn er í vörslu gjaldkera fagdeildarinnar. Reikningsár sjóðsins er 1. janúar til 31. desember ár hvert. Reikningar sjóðsins verða yfirfarnir af skipuðum endurskoðendum fagdeildarinnar
  12. Reglur sjóðsins skal endurskoða árlega, fyrir aðalfund fagdeildarinnar.

Endurskoðað af stjórn fagdeildar og samþykkt í mars 2012.

Fylgiskjöl

Starfsreglur krabbameinshjúkrunar