Fara á efnissvæði

Fagdeild barnahjúkrunarfræðinga

Barnahjúkrun er fjölbreytt starf þar sem miklir möguleikar eru á sérhæfingu. Barnahjúkrunarfræðingar starfa á fjölbreyttum vettvangi innan og utan sjúkrahúsa.

Um fagið

Fagdeild barnahjúkrunarfræðinga var stofnuð 14. mars 1994. Hjúkurnarfræðingar sem í sínu starfi þjónusta m.a. börn og fjölskyldur þeirra og eru félagsmenn í Fíh, geta gerst meðlimir að Fagdeild barnahjúkrunarfræðinga. Allir fagdeildarmeðlimir hafa tillögu og atkvæðisrétt.

Barnahjúkrun er fjölbreytt starf þar sem miklir möguleikar eru á sérhæfingu. Barnahjúkrunarfræðingar starfa á fjölbreyttum vettvangi innan og utan sjúkrahúsa. Fagdeildin starfar skv. Reglum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um fagdeildir innan þess.

Meðal markmiða Fagdeildar barnahjúkrunarfræðina eru:

  • Stuðla að bættri hjúkrun barna og ungmenna í samvinnu við fjölskylduna
  • Viðhalda og auka þekkingu hjúkrunarfræðinga sem sinna börnum og fjölskyldum þeirra
  • Hvetja til framþróunar og rannsóknarstarfa á sviði barnahjúkrunar
  • Efla samstarf við hjúkrunarfræðinga bæði innanlands og utan
  • Að vera stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og nefndum til ráðgjafar um faglegt efni er lýtur að barnahjúkrun

Stjórn

Formaður

Birna Rut Aðalsteinsdóttir

Varaformaður og tengiliður NoSB

Fjóla Helgadóttir

Gjaldkeri

Ingibjörg Einarsdóttir

Ritari

Erna Margrét Arnardóttir

Meðstjórnandi

Halldóra Rún Bergmann

Meðstjórnandi

Theja Lankathilak

Ritstjóri fréttabréfs

Kristín Erla Kjartansdóttir

Varamaður og tengiliður PNAE

Karítas Gunnarsdóttir

Erlent samstarf

Evrópskt samstarf

Fagdeild barnahjúkrunarfræðinga er félagi í samtökunum Pediatric Nursing Associations of Europe:
https://pnae.eu/

Norrænt samstarf

Fagdeild barnahjúkrunarfræðinga er félagi í samtökunum Nordic cooperation of nurses working for children NoSB.

Styrktarsjóður

Starfsreglur:

  1. Sjóðurinn heitir Styrktarsjóður Fagdeildar barnahjúkrunarfræðinga.
  2. Stjórn Fagdeildar barnahjúkrunarfræðinga hefur umsjón með sjóðnum.
  3. Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er tvisvar ári, 1. apríl og 1. október. Umsóknum er svarað í síðasta lagi mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út. Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu fagdeildarinnar, undir styrktarsjóður fagdeildar.
  4. Umsækjendur skulu vera félagar í Fagdeild barnahjúkrunarfræðinga og vera skuldlausir við fagdeildina.
  5. Styrkir verða eingöngu veittir í verkefni og til símenntunar á sviði barnahjúkrunar.
  6. Styrkþegar skulu kynna verkefni sín fyrir fagdeildinni innan árs frá veitingu. Kynningin getur verið í formi greinar í fréttabréfinu eða með því að kynna verkefnið á fundum deildarinnar.
  7. Umsóknum verður raðað í forgangsröð. Umsóknir til að sækja vísindaþing, einkum þar sem styrkþegi kynnir rannsóknarniðurstöður ganga fyrir. Þeir sem hlotið hafa styrk áður lenda aftar í röðinni.
  8. Eldri verkefni en tveggja ára eru ekki styrkhæf.
  9. Styrkjum verður úthlutað samkvæmt fjárhagsáætlun eða framlögðum reikningi í frumriti. Sé styrks ekki vitjað fyrir 31.des, sama ár og hann er veittur, fellur hann niður.
  10. Sjóðurinn er í vörslu gjaldkera fagdeildarinnar. Reikningsár sjóðsins er 1. janúar til 31. desember ár hvert. Reikningar sjóðsins verða yfirfarnir af skipuðum endurskoðendum fagdeildarinnar.
  11. Reglur sjóðsins skal endurskoða árlega, fyrir aðalfund fagdeildarinnar

Fylgiskjöl

Tengt efni