Námskeiðin eru sérstaklega valin með það að markmiði að sem flestir hjúkrunarfræðingar geti nýtt sér þau til að efla þekkingu sína og færni í starfi.
Úrvalið er fjölbreytt og nær meðal annars til námskeiða um geðheilbrigði, áföll, samskipti, starfsþróun, gervigreind, stjórnun. Nýjum námskeiðum er reglulega bætt við.
Möguleiki á fullri endurgreiðslu
Þátttaka á námskeiðunum kemur ekki til frádráttar á styrkupphæðum einstaklinga. Auk 85% afsláttarins er hægt að sækja um endurgreiðslu hjá Starfsþróunarsetri Fíh fyrir þeim 15% námskeiðsgjaldsins sem þátttakendur greiða sjálfir.
Skráning og afsláttarkóði
Félagsfólk nálgast afsláttarkóða á Mínum síðum og notar hann við skráningu hjá Endurmenntun HÍ. Afslátturinn gildir eingöngu fyrir þau námskeið sem falla undir samstarfssamninginn.





