Fara á efnissvæði
Frétt

Styrkir úr A-hluta vísindasjóðs greiddir út

Mánudaginn 2. mars 2026 voru greiddir styrkir úr A-hluta vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vegna innborgana launagreiðenda á árinu 2025.

Heildarfjárhæð styrkja úr A-hluta vísindasjóðs í ár nam 25 milljónum kr. og var styrkur greiddur til 463 hjúkrunarfræðinga.

Í fyrra fengu 3.782 hjúkrunarfræðingar greiddan styrk en fækkun styrkþega má rekja til þess að frá 1. nóvember 2024 greiða ríki og stofnanir innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu ekki lengur í vísindasjóð og er það í samræmi við gildandi kjarasamning þessara aðila. Á sama tíma hækkuðu styrkir Starfsþróunarseturs Fíh.

Meðalstyrkur ársins nemur 54 þúsund kr.