
Umsögn um drög að aðgerðaráætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana 2026-2030
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) fagnar því að unnin sé aðgerðaráætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana fyrir árin 2026–2030. Slík vinna er afar mikilvæg fyrir þróun og eflingu þjónustunnar um land allt.




