Verkið er eftir James Graham og byggir á sannri sögu Jacobs Dunne, sem varð manni að bana með einu hnefahöggi 19 ára gamall. Sýningin fjallar um ábyrgð, fyrirgefningu og sátt í kjölfar ofbeldis og missis. Hún snertir málefni þolenda, aðstandenda og gerenda og á erindi við fagfólk í heilbrigðisþjónustu, réttarkerfi, forvörnum og stuðningi.
Þjóðleikhúsið er jafnframt opið fyrir því að skipuleggja umræður í kjölfar sýninga.
Hægt er að kaupa miða með afslætti inn á Mínum síðum




