Fara á efnissvæði
Frétt

Almenn opnun fyrir sumarbókanir í orlofshús 1. apríl

Almenn opnun fyrir bókanir í orlofshús sumarið 2026 verður miðvikudaginn 1. apríl 2026 kl. 10:00. Þá geta allir sjóðfélagar, sem eiga til þess punkta, leigt orlofshúsnæði.

Nýjar Orlofshús/íbúðir

Við í sjórn orlofssjóðs erum spennt að kynna nýju orlofsíbúðirnar/húsin sem nú hefur verið bætt við úrvalið.

Á Stykkishólmi er falleg 70 fm íbúð á Laufásvegi 41 með svefnplássi fyrir 5–6 manns.

Á Hvolsvelli býður 110 fm íbúð á Gunnarsgerði 6d upp á gistingu fyrir 6, stutt frá sundlaug og frábær staður fyrir dagsferðir, til dæmis til Vestmannaeyja.

Fyrir stærri hópa er Norðurþing með 150 fm hús á Snartöðum 3 með pláss fyrir allt að 10 manns.

Einnig bjóðum við glæsilega íbúð í Green Hills á Spáni, Calle Clavo 7, fyrir 6 manns, nálægt verslun, sundlaugum og líkamsræktarstöð. Þessir nýju áfangastaðir bæta fjölbreytni og valkosti sjóðsfélaga.