Fara á efnissvæði
Frétt

Alvarleg staða á Landspítala

Starfsfólk bráðamóttöku Landspítala hefur að undanförnu leitað til sinna stéttarfélaga vegna óviðunandi starfsaðstæðna á deildinni. Af því tilefni boðuðu fimm stéttarfélög sameiginlegan fund með starfsfólki til að fara yfir stöðuna.

Fundurinn var haldinn á Grand hótel miðvikudaginn 11. febrúar. Að fundinum stóðu Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Læknafélag Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands, Sameyki og Efling og er þetta í fyrsta skipti sem stéttarfélögin standa fyrir fundi sem þessum. Tilefnið er óviðunandi starfsumhverfi þar sem ekki er hægt að tryggja öryggi sjúklinga eða starfsfólks á bráðamóttöku Landspítala. Átta starfsmenn úr flestum stéttum deildarinnar greindust með leynda berkla í desember síðastliðnum en ómögulegt er að viðhafa viðurkenndar sýkingavarnir á deildinni vegna sjúklingafjölda sem er langt umfram það sem húsnæði deildarinnar þolir. Vel var mætt á fundinn eða um 180 manns.

Staðan á bráðamóttöku Landspítala er birtingamynd af heildarvanda heilbrigðiskerfisins. Landspítali hefur verið á hæsta viðbúnaðarstigi í meira en ár þar sem allar deildir spítalans eru keyrðar umfram skilgreind legurými með tilheyrandi öryggisógn og álagi fyrir alla. Kannanir í aðdraganda þingkosninga sýna ítrekað fram á að þjóðin setur heilbrigðismál ofar öðrum málaflokkum þegar spurt er hvaða mál eigi að setja á oddinn, þjóðin vill heilbrigt heilbrigðiskerfi.

Á fundinum var samþykkt ályktun sem send var til stjórnvalda og eftirlitsaðila þar sem aðstæðunum á bráðamóttökunni er lýst og aðgerða krafist strax.

Margar lausnir hafa verið nefndar til þess að afstýra því öngþveiti sem skapast í heilbrigðiskerfinu. Þær felast í mörgum samhangandi þáttum, meðal annars betri nýtingu á starfskröftum hjúkrunarfræðinga, sólarhrings heimahjúkrun, fjölbreyttari úrræðum í bráðaþjónustu og fjölgun hjúkrunarrýma. Viðbrögðin nú þurfa að vera afgerandi og mun Fíh ásamt hinum stéttarfélögunum halda áfram að þrýsta á um úrbætur.