Fara á efnissvæði
Frétt

Ályktun fundar starfsfólks bráðamóttöku Landspítala

Starfsfólk bráðamóttöku Landspítala hélt fund um starfsskilyrði sín á Grand hótel Reykjavík, miðvikudaginn 11. febrúar 2026. Um 180 manns sóttu fundinn og var ályktun samþykkt einhljóða með kröftugu lófataki.

Aðstæður á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi eru svo alvarlegar að dag hvern stefna þær öryggi sjúklinga og starfsfólks í bráða og óverjandi hættu. Þetta hefur lengi verið opinbert og viðurkennt af stjórnendum spítalans, embætti landlæknis og heilbrigðisyfirvöldum, án þessað brugðist hafi verið við með fullnægjandi hætti.

Daglegur fjöldi innlagðra sjúklinga er langt umfram það sem húsnæði,mönnunog öryggiskerfi þola. Afleiðingin er sú að hvorki er hægt að tryggja öryggi sjúklinga né starfsfólks, fullnægjandi sýkingavarnir, brunavarnir eða persónuvernd. Spítalinn hefur verið á hæsta viðbúnaðarstigi í meira en heilt ár án þess að heilbrigðisyfirvöld hafi brugðist við. Aðgerðaleysið endurspeglar það úrræðaleysi ogþau lausatöksem Ríkisendurskoðun hefur bent á.

Landlæknir staðfesti í minnisblaði 2. júní 2022 að bráðamóttakan uppfyllti ekki faglegar kröfur vegna þrengsla, of mikils sjúklingafjölda ogundirmönnunarog að hvorki væri hægt að tryggja öryggi sjúklinga né gæði þjónustu.Landlæknir sagði á þeim tíma að í raun væri réttast að loka deildinni vegna hættu og óviðunandi aðstæðna, en viðurkenndi jafnframt að það væri ekki raunhæfur kostur þar eð deildin er ein sinnar tegundar á landinu og sinnir lífsnauðsynlegri þjónustu.

Þessar alvarleguyfirlýsingarlandlæknis voru hunsaðar. Síðan hefur staðan ekki batnað, heldur versnað.

Yfir 100 sjúklingar eru að jafnaði vistaðir í rými sem er hannað fyrir 36. Einangrun er ómöguleg, órólegum eða óstöðugum sjúklingum er ekki tryggt öryggi og súrefniskútar ásamt öðrum búnaði eru eins og hráviði á göngumbráðamóttökunnarmeð augljósri bruna- og sprengihættu. Þetta er alvarleg öryggisógn fyrir starfsfólk og sjúklinga, og með þessum fjölda sjúklinga eru vinnuaðstæður starfsfólks fullkomlega óboðlegar.

Bráðamóttakan hefur í lengri tíma verið að sinna innlögðum sjúklingum sem eiga að vera komnir á viðeigandi legudeildir. Það er ekki hlutverk bráðamóttökunnar að reka tvöfalda legudeild ofan á bráðaþjónustu. Það lamar viðbragðsgetu bráðamóttökunnar og hindrar starfsfólk í að fá næði og frið til að sinna lögbundnu starfi sínu í móttöku og meðferð slasaðra og bráðveikra.

Starfsfólk neyðist til að starfa við aðstæður sem ganga gegn faglegri þekkingu þess og viðurkenndum viðmiðum um góða og örugga heilbrigðisþjónustu. Slíkt ástand er óverjandi og hefur varanleg og neikvæð áhrif á starfsfólk og gæði þjónustu.

Starfsfólk og sjúklingar eru sett í aðstæður þar sem hætta á smiti, slysum, ofbeldi og alvarlegum afleiðingum er augljós og viðvarandi.

Í desember greindust átta starfsmenn með leynda berkla. Þetta undirstrikar afleiðingar þess að sýkingavarnir og aðbúnaður eru ekki í samræmi við lög og reglur. Aðgerðaleysi í uppbyggingu og fjárfestingu í heilbrigðisinnviðum hefur skapað kerfisbundinn vanda sem nú birtist með skýrum og hættulegum hætti á bráðamóttökunni.

Við krefjumst þess að vinnustaðurinn uppfylli lög um hollustuhætti, öryggi og aðbúnað og að tafarlaust verði gripið til aðgerða enda ríkir viðvarandi og versnandi neyðarástand og við því verður að bregðast nú þegar.

Við krefjumst þess jafnframt að þeir aðilar sem bera lögbundna ábyrgð bregðist strax við og fylgi eftir athugasemdum, úttektum og nefndarniðurstöðumsem áður hafa komið fram:

  • Embætti landlæknis fylgi úrbótum eftir af festu af þegar gerðu mati á aðstæðum deildarinnar.
  • Vinnueftirlitið framkvæmi heildstæða úttekt á aðbúnaði starfsfólks og bregðist við brotum á vinnuverndarlögum.
  • Heilbrigðiseftirlit taki út aðstæður með tilliti til hollustuhátta ogsmitvarna.
  • Eldvarnaeftirlit fylgi eftir mati sínu á brunahættu vegna súrefnisbúnaðar og þrengsla.
  • Persónuvernd kanni aðstæður með tilliti til friðhelgi og verndar sjúklinga.
  • Heilbrigðisyfirvöld geri úttekt á skaða og dánartíðni sjúklinga með tilliti til dvalarlengdar á bráðamóttöku.

Öryggi sjúklinga og starfsfólks má ekki lengur vera fórnarkostnaður.Það er með öllu óásættanlegt að þessar aðstæður hafi verið látnar óátaldar árum saman þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir. Í stað loforða gerum við kröfu um úrbætur. Þeir sem fara með stjórn og eftirlit í heilbrigðiskerfinu verða að axla ábyrgð og beita völdum sínum strax.