Fara á efnissvæði
Frétt

Endurgreiðsla ofgreiddra félagsgjalda

Búið er að endurgreiða hjúkrunarfræðingum ofgreidd félagsgjöld vegna ársins 2024.

Á aðalfundi Fíh 2024 var samþykkt að hámarksiðgjald félagsgjalda fyrir árið 2024 væri 160.000 kr. og fær félagsfólk endurgreiðslu á greiðslum umfram þá fjárhæð.

Alls fengu 262 hjúkrunarfræðingar endurgreiðslu í ár og nam heildarfjárhæð hennar 6,9 milljónum króna.