Fara á efnissvæði
Endurmennturn Háskóla Íslands
Frétt

Úrval námskeiða fyrir félagsfólk Fíh hjá Endurmenntun HÍ

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Endurmenntun HÍ hafa gert samning þar sem félagsfólki Fíh býðst að sækja ýmis námskeið með 85% afslætti. Mikið úrval er af námskeiðum - einnig á meistarastigi.

Sífellt bætist við námskeið í boði fyrir hjúkrunarfræðinga en nú eru um 40 námskeið í boði sem hægt er að skoða hér.

Sérstaklega er vert að benda á úrval nýrra námskeiða á meistarastigi:

Hjúkr­un nýrna­sjúk­linga I (HJÚ0BLF)

Rekst­ur og heil­brigð­is­þjón­usta (HJÚ142F)

Inn­gang­ur að sér­hæfðri krabba­meins­hjúkr­un (HJÚ173F)

Stuðn­ing­ur við full­orðna í sam­fé­lag­inu (HJÚ0BGF)

Eins og fram hefur komið eru námskeiðin sem um ræðir sérstaklega valin þannig að sem flest geti nýtt sér þau til að efla sig í starfi. Félagsfólk Fíh getur sótt um til Starfsþróunarseturs Fíh (StFíh) endurgreiðslu fyrir þeim 15% af námskeiði sem það greiðir sjálft til Endurmenntunar HÍ.

Upplýsingar um afsláttarkóða sem nota skal við skráningu sækir þú inn á Mínar síður.

Afsláttarkóðinn gildir aðeins á þau námskeið sem birt eru hér fyrir neðan. Öðrum en félagsfólki Fíh er með öllu óheimilt að nota afsláttarkóðann. Ef afsláttarkóðinn er notaður af einstaklingi sem ekki er félagi verður námskeiðsgjald innheimt með greiðsluseðli á viðkomandi einstakling.

Athugið að mögulega verður fleiri námskeiðstímum bætt við, hægt er að fylgjast með á vef Endurmenntunar HÍ.

Skráning

Til að skrá sig þarf einfaldlega að smella á eitt af námskeiðunum hér fyrir ofan eða á vef Endurmenntunar HÍ.

Nýr notandi þarf að setja inn netfang, smella á Halda áfram og búa sér svo til lykilorð.
Notandi sem þegar er til í kerfinu smellir á Fara í innskráningu.

Setja á afsláttarkóðann í reitinn Afsláttarkóði. Afsláttarkóðann má finna á Mínum síðum.

Afskráning

Afskráning skal berast til Endurmenntunar í tölvupósti.

Breyting á námskeiði
Endurmenntun HÍ áskilur sér rétt til að fella niður eða fresta námskeiðum ef óviðráðanlegar aðstæður koma upp.