Fara á efnissvæði
Frétt

Námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga hjá Endurmenntun HÍ

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Endurmenntun HÍ hafa gert samning þar sem félagsfólki Fíh býðst að sækja ýmis námskeið með 85% afslætti.

Námskeiðin sem um er að ræða eru sérstaklega valin þannig að sem flest geti nýtt sér þau til að efla sig í starfi. Félagsfólk Fíh getur sótt um til Starfsþróunarseturs Fíh (StFíh) endurgreiðslu fyrir þeim 15% af námskeiði sem það greiðir sjálft til Endurmenntunar HÍ.

Upplýsingar um afsláttarkóða sem nota skal við skráningu sækir þú inn á Mínar síður.

Afsláttarkóðinn gildir aðeins á þau námskeið sem birt eru hér fyrir neðan. Öðrum en félagsfólki Fíh er með öllu óheimilt að nota afsláttarkóðann. Ef afsláttarkóðinn er notaður af einstaklingi sem ekki er félagi verður námskeiðsgjald innheimt með greiðsluseðli á viðkomandi einstakling.

Athugið að mögulega verður fleiri námskeiðstímum bætt við, hægt er að fylgjast með á vef Endurmenntunar HÍ.

Skráning

Til að skrá sig þarf einfaldlega að smella á eitt af námskeiðunum hér fyrir ofan eða á vef Endurmenntunar HÍ.

Nýr notandi þarf að setja inn netfang, smella á Halda áfram og búa sér svo til lykilorð.
Notandi sem þegar er til í kerfinu smellir á Fara í innskráningu.

Setja á afsláttarkóðann í reitinn Afsláttarkóði. Afsláttarkóðann má finna á Mínum síðum.

Afskráning

Afskráning skal berast til Endurmenntunar í tölvupósti.

Breyting á námskeiði
Endurmenntun HÍ áskilur sér rétt til að fella niður eða fresta námskeiðum ef óviðráðanlegar aðstæður koma upp.