Í dag, 15. október, hófst 123. þing Evrópusamtaka hjúkrunarfélaga (EFN) í Vín í Austurríki. Þingið stendur yfir í þrjá daga og sitja þær Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, og Helga Pálmadóttir, sviðsstjóri fagsviðs félagsins, þingið fyrir hönd Fíh.
Á þinginu verður meðal annars fjallað um stefnumótun í hjúkrun í Evrópu, menntun hjúkrunarfræðinga og heilsu þeirra og öryggi í starfi. Einnig verður rætt um mikilvægi þess að rödd hjúkrunarnema heyrist og hvernig efla megi þátttöku þeirra í evrópsku samstarfi hjúkrunarfræðinga.
Hvað er EFN?
The European Federation of Nurses Associations (EFN) eða Evrópusamtök hjúkrunarfélaga er ráðgefandi vettvangur hjúkrunarfræðinga gagnvart ESB. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga gerðist aðili að þeim í mars 1998.
Þing EFN eru haldin tvisvar á ári og þar koma fulltrúar hjúkrunarfræðinga saman til að ræða sameiginleg hagsmunamál og helstu áskoranir stéttarinnar.





