Þingsályktunartillaga ríkisstjórnarinnar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027 til 2031 er nú til meðferðar hjá fjárlaganefnd Alþingis. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) hefur sent inn umsögn þar sem fjármálaáætlunin er rýnd út frá sjónarhóli hjúkrunarfræðinga, starfsaðstæðum þeirra og þörfum heilbrigðisþjónustunnar.
Fjármálaáætlunin gerir ráð fyrir víðtæku aðhaldi í heilbrigðisþjónustu. Aðhaldið er brotakennt og í mótsögn við yfirlýst markmið um styrkingu stoða heilbrigðiskerfisins. Ein helsta áskorun næstu ára er að manna þær stofnanir sem reisa á og hafa hæft starfsfólk að störfum til að koma til móts við vaxandi sjúkdómsbyrði. Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar veitir lítil svör við því hvernig koma á til móts við þær áskoranir.





