Fara á efnissvæði
Frétt

Óskað eftir framboðum í stjórn og nefndir

Kjörnefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) auglýsir eftir framboðum fyrir kjörtímabilið 2026-2028.

Óskað er eftir:

  • Þremur aðalmönnum og einum varamanni í stjórn Fíh
  • Þremur aðalmönnum í ritnefnd (einum í almenna hlutann og tveimur í ritrýnda hlutann)
  • Tveimur skoðunarmönnum reikninga

Stjórn Fíh

Stjórn Fíh fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli aðalfunda. Hlutverk stjórnar er að móta stefnu og megináherslur félagsins í samræmi við stefnumörkun og ákvarðanir aðalfundar. Stjórn ber ábyrgð á fjárreiðum félagsins og starfseminni gagnvart aðalfundi.

Framboðum til stjórnar Fíh skal fylgja stutt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu framboðs ásamt rökstuðningi um færni til að gegna stjórnarsetu. Kynning á frambjóðendum til stjórnar Fíh fer fram á samfélagsmiðlum Fíh að loknum framboðsfresti.

Ritnefnd

Hlutverk ritnefndar er að marka ásamt ritstjóra stefnu tímaritsins og annast umsjón með útgáfu þess. Nefndin velur sér formann og skiptir með sér verkum að öðru leyti.

Framboðsfrestur til og með 21. apríl

Félagsfólk með fulla aðild eru kjörgengir í stjórn, sjóði, nefndir og ráð á vegum félagsins ef lög þessi eða landslög kveða ekki á um aðra skipan. Félagsfólk með fagaðild og lífeyrisaðild er kjörgengt í nefndir og ráð á vegum félagsins ef lög þessi eða landslög kveða ekki á um aðra skipan.

Samkvæmt lögum félagsins er kosið til tveggja ára í senn, nema í tilfelli skoðunarmanna, þar er kosið til eins árs í senn. Hámarksseta í nefndum og stjórn er fjögur tímabil samfellt.

Kosning fer fram á aðalfundi félagsins, 19. maí 2026. Framboðsfrestur er til og með 21. apríl 2026. Boðið verður upp á streymi af aðalfundinum og rafrænar kosningar.

Framboð tilkynnist til kjörnefndar í netfangið [email protected]. Frambjóðendur eru beðnir um að skila til kjörnefndar fullu nafni, kennitölu, símanúmeri og netfangi.