Fara á efnissvæði

Ásdís M. Finnbogadóttir

Frambjóðandi til varamanns í stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Ég heiti Ásdís M. Finnbogadóttir og býð mig fram í varamannasæti stjórnar Fíh tímabilið 2026-2028. Ég er fagstjóri hjúkrunar hjá sáá og hef starfað á Vogi í 20 ár.

Ég útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá HÍ 2004 og hef starfað við heimahjúkrun í Danmörku og einnig á gjörgæsludeild LSH í Fossvogi. Ég hef mikinn áhuga á félaginu okkar og sat í stjórn sem varamaður 2021-2023 og sem aðalmaður og ritari stjórnar 2023-2025.

Ég vil að rödd hjúkrunar heyrist og sé metin að verðleikum innan heilbrigðiskerfisins og utan. Ég vil efla sjálfstæði og fagmennsku í hjúkrun og viðhalda jákvæðri ímynd hjúkurnarfræðinga.

Ég er tilbúin til að leggja mig alla fram fyrir fagið okkar og félagið.