Fara á efnissvæði

Ásthildur Lísa B. Guðmundsdóttir

Frambjóðandi í stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Ég býð mig fram til stjórnar Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga með það að markmiði að leggja mitt af mörkum til réttindabaráttu hjúkrunarfræðinga, standa vörð um störf okkar og styðja við áframhaldandi þróun stéttarinnar.

Ég er menntuð skurðhjúkrunarfræðingur og í starfi mínu reynir daglega á fagmennsku, skipulag og góða teymisvinnu. Reynslan hefur kennt mér margt, meðal annars mikilvægi skýrra samskipta og markvissrar vinnu að sameiginlegum markmiðum. Ég hef mikinn áhuga á umbótastarfi og legg áherslu á að bæta verkferla, auka skilvirkni og tryggja öryggi og gæði í þjónustu.

Ég hef setið í stjórn Fagdeildar skurðhjúkrunarfræðinga ISORNA síðastliðið ár þar sem ég hef öðlast dýrmæta reynslu af samstarfi, hagsmunagæslu og faglegu starfi innan stéttarinnar.

Samhliða starfi mínu er ég að ljúka MS í verkefnastjórnun og er einnig með BA-gráðu í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði, sem nýtist mér í greiningu, heildarsýn og upplýstri ákvarðanatöku.

Mér er umhugað um að rödd hjúkrunarfræðinga fái skýrt vægi og að skapað sé starfsumhverfi þar sem fagmennska og starfsánægja fá að blómstra. Ég legg áherslu á samstarf, lausnamiðaða nálgun og að hlustað sé á ólík sjónarmið.

Ég vil leggja mitt af mörkum af heilindum og ábyrgð og vona að ég fái til þess ykkar traust.