Ég býð mig fram til áframhaldandi setu í stjórn Fíh. Síðastliðið ár hef ég setið sem varaformaður Fíh og öðlast töluverða þekkingu á starfi félagsins. Það tekur tíma að setja sig inn í málefni og starfsemi félagsins og langar mig því að halda áfram setu í stjórn svo að sú þekking sem ég hef öðlast á fyrsta kjörtímabili mínu nýtist félaginu til góðs.
Ég útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur árið 2013 og hef frá útskrift unnið fjölbreytt störf, bæði innan LSH en þó mest innan öldrunargeirans. Einnig hef ég unnið við heilsueflingu hjá Vinnuvernd ehf og við gerð útboða fyrir Rekstrarvörur.
Í dag vinn ég sem þjónustustjóri á Hrafnistu Sléttuvegi og held þar utan um starfsemi þjónustumiðstöðvar og dagdvalar.
Ég er með viðbótar diplóma í stjórnun i heilbrigðisþjónustu með áherslu á rekstur og mannauð og einnig er ég með viðbótar diplóma frá félagsráðgjafardeild í öldrunarþjónustu.





