Fara á efnissvæði

María Kristjánsdóttir

Frambjóðandi í stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Ég útskrifaðist árið 2013 úr hjúkrun og hef síðan þá starfað víða innan heilbrigðiskerfisins: á Landspítalanum, í heimahjúkrun Reykjavíkurborgar og á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Árið 2023 lauk ég meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands með áherslu á stjórnarhætti og stefnumótun. Í dag starfa ég á verkefnastofu Landspítalans þar sem ég leiði og tek þátt í stórum umbótaverkefnum fyrir framkvæmdastjórn spítalans. Þar vinn ég þvert á fagstéttir við að bæta ferla, styrkja teymi og skapa raunverulegan árangur.

Ég sameina klíníska reynslu og sterka stjórnunarþekkingu og legg áherslu á að koma hlutum í framkvæmd, ekki bara tala um þá.

Í stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vil ég beita þessari reynslu til að styrkja stöðu stéttarinnar, efla faglegt umhverfi og leyfa röddum hjúkrunarfræðinga að heyrast þar sem ákvarðanir eru teknar.

Ég stend fyrir fagmennsku, drifkraft og framþróun og vil sjá hjúkrunarfræðinga eflast enn frekar sem fagstétt.