Ég heiti Sólveig Tryggvadóttir og útskrifaðist með BS-gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2003. Ég lauk diplómanámi í hjúkrun aðgerðasjúklinga frá Háskóla Íslands árið 2009. Í haust stefni ég á að hefja örnám á framhaldsstigi í hjúkrun nýrnasjúklinga.
Ég hef starfað á Sjúkrahúsinu á Akureyri frá árinu 2000. Nú er ég verkefnastjóri hjúkrunar í blóðskilun og áður starfaði ég á kvennadeild, skurðlækningadeild og gjörgæslu. Ég var í stjórn hjúkrunarráðs SAk og formaður hjúkrunarráðs árin 2015-2021. Frá árinu 2022 hef ég verið trúnaðarmaður hjúkrunarfræðinga og setið í trúnaðarmannaráði Fíh.
Ég er í Fagdeild nýrnahjúkrunarfræðinga. Ég tók þátt í undirbúningsnefnd að stofnun Landsvæðadeildar hjúkrunarfræðinga við Eyjafjörð og er í þeirri deild, þar sem unnið er að eflingu og framgangi hjúkrunar við Eyjafjörð. Þá hef ég verið í Fagdeild um forystu í hjúkrun og Fagdeild gjörgæsluhjúkrunarfræðinga.
Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á að starfa fyrir Fíh og trúi því að reynsla mín nýtist vel til þess að vera í stjórn félagsins. Ég vil berjast fyrir bættum kjörum og starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga. Þá finnst mér mikilvægt að rödd hjúkrunarfræðinga af landsbyggðinni nái inn í stjórn félagsins.





