Fara á efnissvæði
Frétt

Framfaraskref fyrir heilbrigðiskerfið

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fagnar þeim breytingum sem kynntar hafa verið af heilbrigðisráðuneytinu, enda fela þær í sér aukna nýtingu fagþekkingar ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga sem sinna meðgönguvernd.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga fagnar þeim breytingum sem kynntar hafa verið af heilbrigðisráðuneytinu, enda fela þær í sér aukna nýtingu fagþekkingar ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga sem sinna meðgönguvernd. Breytingarnar eru mikilvægt framfaraskref sem stuðlar að bættum gæðum þjónustunnar, auknu öryggi barnshafandi kvenna og skilvirkari og samfelldari umönnun.

Það er ánægjulegt að sjá stjórnvöld viðurkenna með þessum hætti mikilvægi þess að ábyrgð og verkefni heilbrigðisstarfsfólks taki mið af menntun, sérfræðiþekkingu og faglegri hæfni.

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga lýsir jafnframt ánægju með þá vinnu sem þegar er hafin á vegum stjórnvalda við að efla hlutverk hjúkrunarfræðinga í heilbrigðisþjónustunni. Félagið hvetur stjórnvöld til að fylgja þeirri vinnu markvisst eftir og ljúka henni, svo að þau mikilvægu tækifæri sem felast í aukinni nýtingu sérfræðiþekkingar hjúkrunarfræðinga verði að veruleika.

Þar gefst mikilvægt tækifæri til að stíga næsta skref í þróun heilbrigðisþjónustunnar og tryggja að sérfræðimenntun, þekking og hæfni hjúkrunarfræðinga nýtist samfélaginu til fulls, sjúklingum og heilbrigðiskerfinu til hagsbóta.