Fyrsti viðmælandi Rapportsins er Dr. Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og fyrrverandi hjúkrunarforstjóri Landspítala. Anna tók við heiðursdoktorsnafnbót við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands á síðasta ári.
Anna fer yfir víðan völl í viðtalinu og segir meðal annars frá í námsárunum í Skotlandi, hvernig hjúkrun varð ævistarfið og hvers vegna hún ákvað að hætta sem hjúkrunarforstjóri Landspítala eftir að eiginmaður hennar féll skyndilega frá í slysi.