Á fundinum var meðal annars rætt um niðurstöður og tillögur skýrslunnar Innleiðing mönnunarviðmiða í hjúkrun á bráðalegudeildum LSH og SAk og næstu skref í þeirri vinnu.
Á fundinum lagði ráðherra ríka áherslu á mikilvægi mönnunar í heilbrigðisþjónustunni og greindi frá umfangsmikilli vinnu sem nú fer fram innan ráðuneytisins við að skilgreina mönnun og hæfni starfsfólks í heilbrigðiskerfinu.
Stjórn Fíh kom skýrt á framfæri þeirri afstöðu félagsins að mikilvægt sé að mönnun í hjúkrun byggist á faglegum, samræmdum og lögbundnum viðmiðum. Með því verði skapaður sameiginlegur skilningur á því hvað felst í réttri mönnun og lagður grunnur að heildstæðri nálgun við mat á mönnunarþörf, skipulagningu og þróun hjúkrunarþjónustu, auk þess sem lögfesting viðmiðanna myndi styrkja réttarvernd hjúkrunarfræðinga.
Jafnframt ítrekaði stjórnin þá áherslu félagsins að komið verði á fót embætti yfirhjúkrunarfræðings innan stjórnsýslunnar til að styrkja yfirsýn, samræmingu og faglega stefnumótun í hjúkrun á landsvísu.
Fíh bindur vonir við að samtalið stuðli að frekari framgangi málsins. Félagið mun áfram beita sér fyrir því að skýr og samræmd mönnunarviðmið verði fest í sessi, með öryggi sjúklinga og gæði heilbrigðisþjónustunnar að leiðarljósi.





