Gunnhildur Sigurðardóttir, fyrrum hjúkrunarforstjóri á St. Jósefsspítala var fjallkona Hafnarfjarðar við hátíðarhöld þann 17. júní 2026. Gunnhildur, sem er 84 ára, sagði útnefninguna vera mikinn heiður.
Hún flutti Vígsluljóð á Ráðhússviðinu í Hafnarfirði fyrir áheyrendur. Í ár var ákveðið að heiðra sérstaklega merka sögu St. Jósefsspítala á þjóðhátíðardaginn, en spítalinn fagnar hundrað ára afmæli þann 5. september.
Gunnhildur starfaði á spítalanum í 40 ár, fyrst sem hjúkrunarfræðingur og síðan sem hjúkrunarforstjóri til þrjátíu ára.
Þess má geta að eftir Gunnhildi liggja áhugaverðar greinar bæði í Læknablaðinu og Tímariti hjúkrunarfræðinga sem gætu allt eins verið ritaðar í dag. Hér drögum við sérstaklega fram greinar um heimahjúkrun og velferð einstaklinga.
Gunnhildur sagði ljóðið vera sér kært, sérstaklega í ljósi tengingarinnar við spítalann.
„Þetta er magnað ljóð sem að sýnir það að það var mikil blessun á bakvið þetta allt saman og það var líka þrungið því að hjálpa fólki. Það var ekkert sjúkrahús á þessu svæði, nema bara sjúkrahúsið Landakot í Reykjavík.“
Vígsluljóð spítala heilags Jósefs í Hafnarfirði
Sjá húsið rísa glæst – , af föstum grunni
og geyma þúsund vona fyrirheit -;
það hús skal vígjast – helgum líknarbrunni
og heillagjafi reynast – bæ og sveit -;
og mannúð hreinni merki það skal bera
og máttugt standast – næstu tímamót -,
gegn heilsutjóni vígi það skal vera
og vinna sjúkum mönnum heilsubót. –
Ég sé þann lýð, með svitadögg á enni,
er sækir heill til gleði önnur drótt,
Hann biður þess, að blessuð sólin renni,
hann biður Guð, að stytta hverja nótt.
En þrauta andvörp þúsundanna mætast -,
og þessi bæn sem voldugt öldurót -;
„Ó Drottinn minn, lát drauma mína rætast -;
ó Drottinn, veit mér sjúkum heilsubót!
Vér biðjum þess, að bölið sjúkdóms-viðja,
það bæti Drottins máttur hjálpar fús.
Vér biðjum þess, að blessist líknar iðja,
og blessun Drottins gisti þetta hús;
að drottinn hæða líkn þeim sjúka leggi
og ljósi varpi gegnum þrauta húm,
að friður Drottins vígi hússins veggi,
að vefji Drottins mildi hvert þess rúm.
- Stefán frá Hvítadal - HELSINGJAR (útg. 1927)




