Fara á efnissvæði
Frétt

Hátíðleg stund með nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingum 2026

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga stóð fyrir hátíðarkvöldstund á Nauthóli, fimmtudaginn 17. september, þar sem nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar voru boðnir velkomnir í stéttina.

Gleðin var í fyrirrúmi og veðrið skartaði sínu fegursta. Viðburðurinn var vel sóttur og var sérstaklega ánægjulegt sjá hversu margir hjúkrunarfræðingar utan höfuðborgarsvæðisins sáu sér fært að mæta. Boðið var upp á léttar veitingar og slegið á létta strengi, en Vigdís Hafliðadóttir tróð upp með frábæru uppistandi sem flestir í hópnum gátu tengt innilega við.

Hjúkrunarheitin voru afhent í veislunni með góðum tækifærum til myndatöku.