Fara á efnissvæði
Haustfundur NFF 2026
Frétt

Haustfundur NFF í Þórshöfn

Haustfundur NNF

Haustfundur NNF, samvinnuvettvangur hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndunum, var að þessu sinni haldinn í Þórshöfn í Færeyjum. Á fundinum var fjallað um þau málefni sem helst brenna á hjúkrunarfræðingum á Norðurlöndum. Meðal umræðuefna í ár voru mönnunarviðmið í heilbrigðisþjónustu og áhrif tíðra pólitískra breytinga á heilbrigðiskerfið.

Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, fjallaði meðal annars um fyrirhugaðar námskrárbreytingar í hjúkrunarfræði á Íslandi, skýrslu heilbrigðisráðuneytisins um mönnunarviðmið, vinnu í tengslum við víkkað starfssvið sérfræðinga í hjúkrun og möguleg áhrif verðbólgu á kjarasamninga hjúkrunarfræðinga.

Í kjölfar fundarins verður haldið málþing um viðbúnað og viðnámsþrótt heilbrigðiskerfisins í ljósi núverandi pólitísks landslags í heiminum. Þar verður jafnframt rætt um hlutverk stéttarfélaga við slíkar aðstæður.

NNF er samstarfsvettvangur félaga hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum, Danmörku, Færeyjum, Íslandi, FInlandi Noregi og Svíþjóð. Innan vébanda þeirra félaga eru meira en 340.000 hjúkrunarfræðingar.