Fara á efnissvæði
Skýrsla

Hjúkrunarþjónusta eldri borgara: Horft til framtíðar

Skýrsla fagsviðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fagdeildar öldrunarhjúkrunarfræðinga frá árinu 2015 um stefnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í hjúkrun og heilbrigðisþjónustu aldraðra til 2020.

Eitt af hlutverkum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) er að hafa frumkvæði að og taka þátt í umræðum um heilbrigðismál með hagsmuni skjólstæðinga heilbrigðisþjónustunnar að leiðarljósi. FÍH hefur fylgst með og tekið þátt í þróun öldrunarmála hér á landi undanfarna áratugi. Til að þjónusta við aldraða verði einstaklingsmiðuð, heildræn og örugg þarf að vera til staðar þekking og færni í hjúkrun auk viðeigandi mönnunar hjúkrunarfræðinga og annars fagfólks.

Tilgangur þessarar skýrslu er að kynna helstu áhersluatriði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fagdeildar öldrunarhjúkrunarfræðinga (FÖ) varðandi öldrunarhjúkrun og þjónustu við aldraða til 2020.