Fara á efnissvæði
Hj´´ukrunarfræðingar í heimsókn hjá Fíh
Frétt

Hjúkrunarfræðingar af erlendum uppruna í heimsókn hjá Fíh

Í morgun tók Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga á móti hópi hjúkrunarfræðinga af Landspítala á skrifstofu félagsins. Heimsóknin var hluti af starfsþróunarári hjúkrunarfræðinga af erlendum uppruna sem starfa á Landspítala.

Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna félagið og þá þjónustu og stuðning sem stendur félagsfólki til boða. Farið var meðal annars yfir starfsemi Fíh, sjóði félagsins og Starfsþróunarsetur, auk þess sem fjallað var um fagleg málefni, kjara- og réttindamál og ýmis atriði sem gagnast hjúkrunarfræðingum í starfi.

Góðar umræður sköpuðust og gafst þátttakendum tækifæri til að spyrja spurninga og ræða þau málefni sem helst brenna á þeim.

Fíh þakkar hópnum kærlega fyrir komuna og ánægjulega samveru.